Dagblaðið - 06.03.1976, Side 7
Dagblaðið. Laugardagur 6. marz 1976.
7
Timothy, Severin, skipuleggjandi
siglingarinnar.
Heilagur Brendan nefnist írskur
munkur sem álitinn er hafa verið
uppi um 500 e.kr. Vann dýrlingurinn
sér það til frægðar að vera helzta
sögupersóna í ævintýralegri sjóferð
sem hann er álitinn hafa farið og
varð seinna vinsælt ævintýr.
Sagan segir að Brendan hafi, lagt
GEGNVÆTTUM
LYSI
af stað með fjórtán öðrum munkum í
leit að fyrirheitna landinu langt í
vestri. Halda þeir félagar frá suð-
vesturströnd írlands norður um haf,
fram hjá Suðureyjum til Færeyja
þar sem sást til „hvítra kinda í
flokkum og fljóta fullra af fiski”
Einhvers staðar á leiðinni hitta þeir
hval, ganga út á hrygg hans og
setjast þar að snæðingi. Seinna varð
hvalur þessi hinn mesti ' vinur
leiðangursmanna. Kemur leiðangur-
inn loks upp að ströndum lands „þar
sem fjöllin spúðu eldi og rauðglóandi
grjóti með iniklum fnyk”, þar mun
vera átt við ísland. Þaðan varsiglt til
suðurstrandar Grænlands og áfram
til fyrirheitna landsins, sem reynist
vera „land haustsólarinnar, skógi
vaxið með geysistóru fljóti”, þar mun
vera átt við Lawrencefljótið ef
Brendan munkur og félagar hans
hafa náð svo langt sem til Ameríku.
Til að sannreyna þetta hyggst
ungur íri, Timothy Severin að nafni,
freista þess að sigla sömu leið og
Brendan munkur forðum daga og á
sama farkosti. Mun hann láta smíða
36 feta bát með bananalagi, grindin
á að vera úr írskri eik, klædd með
húðum 25 uxa gegnvættum í þorska-
lýsi. Tilgangur fararinnar er hávís-
indalegur og sá einn að kanna hvort
möguleiki hafi verið fyrir írana að
sigla leið þessa með þeirra tíma út-
búnaði. Tveggja alda afmæli banda-
rísku stjórnarskrárinnar kemur þessu
máli ekki vitund við, fullvissaði
Timothy okkur um.
Ætlunin er að leggja upp frá
Brendans-vogi á suðvestur írlandi á
degi heilags Brendans sem er 16.
maí. Mun ferðin sem að líkum lætur
sækjast fremur seint og munu þeir
eftir áætluninni ekki verða við Fær-
eyjar fyrr en um miðjan júlí. Þaðan
verður siglt til Vestmannaeyja og
Reykjavíkur þar sem þeir vonast til
að vera í byrjun ágúst. Haldið verður
til Grænlands, beinustu leið þaðan
til Labrador og Nýfundnalands og
stefnt að því að enda förina í Boston.
Til Boston eiga þeir að koma um
miðjan október eftir áætluninni.
Áhöfn farsins mun skipuð
Timothy Severin sjálfum, sem er
Knattspyrnu-
þjálfari
Dlafsvíkur Víkinga vantar þjálfara næsta
keppnistímabil. Allar nánari upplýsingar
gefur Rúnar Marvinsson sími 93-6300.
Teikning að skinnfarinu Brendan.
skipuleggjandi og hugmyndafræðing-
ur ferðarinnar, siglingafræðingi,
seglamanni, veðurfræðingi og
myndatökumanni. Myndatöku-
maðurinn á að festa ferðina á filmu
sem síðar er ætlunin að nota í bók ei
Timothy hyggst gefa út með ferða-
sögunni. Vonast Timothv til að bók-
inni verði lokið í árslok 1977 og mun
hún þá koma út í mörgum löndum
samtímis. Útgefendur um heim allan
hafa þegar tryggt sér útgáfuréttinn
að bókinni og í staðinn greitt fjár-
fúlgur er duga munu til að fjár-
magna siglinguna að fullu.
Timothy Severin lærði sögu landa-
funda við háskólann í Oxford og var
seinna í framhaldsnámi við háskól-
ana Berkeley, Minnesota og Harvard
í Bandaríkjunum. Hefur hann gefið
út nokkrar bækur, aðallega ferðasög-
ur víðsvegar ur heiminum. Að þess-
ari siglingu hefur hann unnið í um
þrjú ár og rætt við kunnáttumenn í
siglingum og sögu Kelta víðsvegar
um heiminn. Hér á landi átti hann
meðal annars viðræður við forseta
íslands, dr. Kristján Eldjárn.
Ferð þessi hefur nú þegar vakið
mikla athygli um heim allan og má
búast við að þegar lagt verður upp
þann 16. maí í vor verði viðstaddur
aragrúi fréttamanna að fylgjast með
þessari sérstæðu siglingu. -BH.
Sigling á skinnbát vestur um Atlantshaf:
FARKOSTURINN
KLÆDDUR 25
UXAHÚÐUM
Ferðaútvarp
og segulband
3 bylgjur
Verð: 28.980.-
BUÐIRNAk
/
Skipholti 19, við Nóatún
sími 23-800
Klapparstig 26
simi 19-800
Sólheimum 35
sími 33-550
Sendum hvert á
land sem er
Verö: 38.950.-
Innbyggður, mjög næmur hljóónemi.
Sjálfvirkt stopp á segulbandi. Sjálf-
virkupptaka. Rafhlöðumælir. Lang-
Dylgja, miðbylgja og FM bylgja.
Crown stendur fyrir sínu.
Tækið er hægt að stilla þannig að
það taki upp eftir ákv. tíma. Crown
CRC 502 vekur yður með útvarpinu
eða segulbandinu. Þér getið sofnað
út frá tækinu, því það getur slökkt á
sér þegar þér óskið. Hægt er að taka
beint upp á segulbandið úr út-
varpinu án aukatenginga. Crown
CRC 502 er hægt að tengja við
plötuspilara og taka beint upp. Inn-
b/ggður spennubreytir f. 220 volt.
Gengur einnig f. rafhlöðum.
Innbyggður hljóðnemi.
MOMTOR
OM--^ |
9