Dagblaðið - 06.03.1976, Side 22

Dagblaðið - 06.03.1976, Side 22
22 (t Dagblaðið. Laugardagur 6. marz 1976. Utvarp Sjónvarp D Það cru heldur betur fínar kvik- myndirnar hjá sjónvarpinu nú laugardag eftir laugardag. Síðasta laugardag var ,,Ruggles of Red Gap,” fjögurra stjörnu mynd frá árinu 1935 á dagskrá og í kvöld er aftur fjögurra stjörnu mynd á dag- skránni, „briðji maðurinn” (The third man). Þetta er brezk bíómynd frá árinu 1949. Handritið er eftir Graham Grecne, lcikstjóri er Carol Reed. Sjónvarp kl. 21.30: MEISTARAVERK A SKJÁNUM í KVÖLD Það eru engir smákarlar sem fara með aðalhlutvcrkin en það eru Orson Weljes, Joseph Cotten, Valli og Trevor Hovvard. bessi mynd er talin einhver bezta sakamálamvnd sem gerð var á árun- um eftir heimsstyjöldina. í kvik- myndahandbókinni okkar er hún kölluð meistaraverk, hvorki meira né minna. Tónlistin í myndinni hefur einnig verið mjög rómuð og er ekki að efa að aðallag myndarinnar á eftir að hljóma víða í næstu viku! Bandarískur rithöfundur kemur til Vínarborgar rétt eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Hann ætlar að hitta æskuvin sinn, Harrv Lime, en fréttir að hann hafi farizt í bílslysi daginn áður. Hann kemst á snoðir um að vinur hans muni vera á lífi og jafnframt að hann sé höfuðpaurinn í miklum svartamarkaðshring. Hann ákveður að kynna sér málið gaumgæfilega. Sýningartími er ein klst. og fjöru- tíu mínútur. Þýðandi er Jón Thor Haraldsson. —A.Bj. Orson Welles leikur hlutverk Harny Lime. Sendandi | Krossgatan cr á dagsKra sjonvaipsins í kvöld kl. 20.35. Umsjónarmaður er Andrés Indriðasoh og kvnnir cr Ldda Þórarinsdóttir. Sjónvarpið í kvöld kl. 18.30: Pollyanna Leitin oð heimiíi fyrir Jimmy Bean heldur ófram Það er árciðanlega hægt að segja að myndin Pollyanna sé fyrir alla fjölskylduna. Ætli það komi ekki fvrir okkur öll að finna ekkert til að gleðjast yfir, en Pollyanna er snilling- ur við að sjá björtu hliðarnar. í síðasta þætti hittir hún ungan munaðarlausan dreng Jimmy Been, sem er á munaðarleysingjahæli . Honum fellur ckki vistin og er að leita sér að alvöruheimili, en hann leggur áherzlu á, þótt hann sé aðeins tíu ára gamall, að hann muni vinna fvrir fæði og húsnæði. Pollvanna fer með vin sinn til Pölly frænku sinnar, sem er alveg nóg boðið þeg'ar Pollyanna lýsir því yfir að hún sé svo góð. Nú sé hún nýbúin að taka að sér hcimilislausan kettling fyrir utan hvað húri sé góð sér og auðvitað taki hún Jimmy líka í fóstur. Þegar frænkan neitar þessari bón leitar Pollyanna á náðir kvenfélags- ins, en hún hefur tröllatrú á kven- félögum þar sem eitt slíkt hjálpaði pabba hcnnar við að ala hana upp. Eins og hún cr óspör á að segja frá. En kvenfélagið hennar Polly frænku hennar bregzt. Það vill heldur hjálpa munaðarleysingjum í Indlandi. Þá er félagsins þeirra líka getið í skýrslu. Enginn hefur rúir fyrir lítinn dreng í næsta nágrenni. Pollyanna er samt ákveðin í aé finna samanstað fyrir vin sinn. Það sem við sjáum síðast til hcnnar er að hún finnur hinn einræna mann, John Pendelton, fótbrotinn úti í skógi. Hann scndir hana heim í stóra húsið sitt til þess að hún geti þar hringt í lækni. Síðan bíður hún hjá honum þangað til læknirinn kemur. Kannski verður það John Pendelton sem býður upp á nýtt heimili fyrir munaðalevsingjann Jimmy Bean. EVI Að vísu eru þetta ekki leikararnir í sjónvarpsmyndinni Pollyanna. Hún er gerð af Bretum, en Bandaríkjamenn halda líka upp á Pollyönnu og hér er Hayley Mills í titilhlutverkinu að ræða við hinn skapstirða John Pendelton (Adolphc Menjou), sem getur ekki annað en hrifizt af hinni hreinskilnu Pollvönnu. KROSSGÁTA SJÓNVARPSINS mrnrnm LAUGARDAGUR 6. marz 7.00 Morgunútvarp. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Tilkynningar kl. 9.30. Létt log milli atriða. Öskalög sjúklinga kl. 10.25: Kristín Sveinbjörnsddóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. 13.30 íþróttir. Umsjón: Bjarni' Felixson. 14.00 Tónskáldakynning Atla Heimis Sveinssonar. 15.00 Vikan framundan. Björn Baldursson kynnir dagskrá út- varps og sjónvarps. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. íslenzkt mál. Gunnlaugur Ingólfsson cand. mag. flytur þáttinn. 16.40 Popp á laugardegi. 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaaúki. Tilkynn- ingar. 19.35 Gatan mín. Sólveig Eyjólfs- dóttir gengur um Jófríðarstaða- veg í Hafnarfirði með Jökli Jakobssyni; — fyrri þáttur. 20.00 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 20.45 Svo kom öldin tuttugasta. Síðari þáttur um minnisverð tíð- indi árið 1901. Umsjón: Jónas Jónasson. 21.30 Otvarpshljómsveitin í Moskvu leikur tilbrigði eftir Nor- chenko og Tokareff um stef eftir Gershwin, Kalman, Kosma, Jo- hann Strauss o.fl. Stjórnandi: Júrí Sílantíeff. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíu sálma (17). 22.25 Danslög. 23.55 Fréttir Dagskrárlok. SUNNUDAGUR 7. marz 8.00 Morgunandakt. Séra Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög 9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustu- greinum dagblaðanna. 11.00 Guðsþjónusta í Hailgrims- kirkju í upphafi æskulýðs- og fórnarviku kirkjunnar. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson predikar og séra Karl Sigurbjörnsson þjónar fyrir altari. Organleikari: Páll Halldórsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.15 Erindaflokkur um uppeldis- og sálarfræði Sigurjón Björnsson próf. flytur fimmta erindið: Þróun siðgæðiskenndar. 14.00 Dagskrárstjóri í eina klukku- stund. Sveinn Einarsson þjóðleik- hússtjóri ræður dagskránni. 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00 Forkeppm ólympíuleikanna í handknattleik: ísland — Júgóslavía Jón Ásgeirsson lýsir frá Novo Mesto í Júgóslavíu. 16.30 Veðurfregnir. Fréttir. 16.40 Framhaldsleikritið: „Upp á kant við kerfið” Olle Lánsberg bjó til ílutnings eftir sögu Leifs Panduros. 17.15 Létt-klassísk tónlist 17.40 Útvarpssaga barnanna: Spjall um Indíána. Bryndís Víg- lundsdóttir heldur álram frásögn sinni (2). 18.00 Stundarkorn með Daniel Adni píanóleikara frá ísrael. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynn- ingar. 19.25 „Hjónakornin Steini og Stína,” gamanleikþáttur eftir Svavar Gests. Persónur og leik- endur í fjórða þætti: Steini-Bessi Bjarnason. Stína-Þóra Friðriks- dóttir. Maddý, dóttir þeirra- Valgerður Dan. Tengdamamma- Guðrún Stephensen. 19.45 Frá tónlistarhátíðinni í Kárn- ten í Austurríki s 1. sumar. Ung- verska ríkishljómsveitin leikur Sinfóníu nr. 9 í C-dúr eftir Franz Schubert; Janos Ferenczik stjórnar. 20.30 Víxill á síðasta degi. Dagskrá í samantekt Péturs Péturssonar. 21.20 íslenzk tónlist. Sinfóníu- hljómsveit íslands leikur „Endur- minningar smaladrengs,” hljóm- sveitarsvítu eftir Karl O. Run- ólfsson; Páll P. Pálsson stjórnar. 21.40 „Hvað heimurinn veit margt” Nína Björk Árnadóttir les þýðingar sínar á dönskum ljóðum eftir Poul Borum og Kirsten Thorup. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregriir. Danslög. Heið- ar Ástvaldsson danskennari velur lögin og kynnir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.