Dagblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 6
(i DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. MAl 1976. SUMARSKÓR Sérstaklega mjúkir leðurskór með fótlagi. Verð kr. 3.800.— Leðursandalar með hrógúmmísóla. Verð kr. 2.495— Leðursandalar með P.U. sóla Verð kr. 2.775.— Leðursandalar með leðursóla. Verð kr. 3.790.— Skór úr mjúku leðri með hrógúmmísóla. Verð kr. 3.385.— Skór úr mjúku leðri með hrógúmmísóla. Verð 3.385.— Laugavagi 68 »lmi188bO MiAbajarmarkafti — «lmi 19494. V-Þýzkaland: HtlGA BtRGtR HttUR JÁTAÐ! Að sögn Erwins Fisher, sak- sóknara V-Þýzkalands, hefur Helge Berger, 35 ára gömul og einkaritari í utanríkisráðu- neytinu, játað sumar þeirra ásakana, sem bornar hafa verið á hana fyrir njósnir. Er nú talið, að draga fari til tíðinda í þessu umfangsmikla niósnamáli, sem bæði stjórnar- völd og stjórnarandstaða munu bera kinnroða fyrir. M.a. er nú leitað ákaft að manni, sem Helge Berger er sögð hafa haft samband við og hann síðan við austantjalds- veidi. Frelsishreyfing V-Sahara hefur nú haft sig í frammi á ný: Vestur-Sahara: AUKIN UMSVIF POLISARIO íMÁRITANÍU OG NÁGRENNI Skæruliðar frá Vestur-Sahara hafa gert árásir á staði langt inni í Mauritaníu og hafa þar með aukið hernaðarumsvif sín verulega frá því sem áður var. Bæði Mauri- tanía og Marokkó gera tilkall til Vestur-Sahara, sem áður hét Spænska Sahara og var nýlenda Spánverja. Skæruliðarnir, sem nefnast Polisario, njóta stuðnings Alsírstjórnar, sem styður lýðveld- isstofnun landsins. Járnbrautarlínan milli námu- borgarinnar Zuoerate og hafnar- borgarinnar Nouadhibou hefur verið rofin nokkrum sinnum og eins hefur Polisario gert árásir á þorpið Odane, 30 km suður af norðurlandamærum Mauritaníu. Er búizt við auknum tíðindum af þessum slóðum á næstu dögum. SÉRSTÆD MÓTMÆLI Á NATO-FUNDINUM Ungur maður haltraði á hækjum með Henry Kissinger, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, er hann gekk að konungs- höllinni í Ósló til þess að þiggja matarboð Ólafs Noregskonungs. Ungi maðurinn vildi með þessu minna á stríðið í Vietnam og þátt Kissingers ogBandarlkjannaí þvi, og var hann handtekinn. Ekki virtist Kissinger láta at- burðinn á sig fá né heldur áköf mótmæli, sem verið hafa víða um bórgina. Hefur alls 21 maður verið handtekinn vegna þeirra. Að sögn lögreglunnar hafa þeir þó allir verið látnir lausir eftir yfirheyrslur. Fundur utanrikisráðherra Nato ríkjanna er haldinn á Hótel Scandinavia, sem er vandlega gætt þessa dagana, enda hafa mótmæli verið höfð í frammi vegna fundarins.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.