Dagblaðið - 21.05.1976, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. MAI 1976.
/ ' ........................
Eimskipofélag Islands hf.:
HAGNAÐUR AF
REKSTRI EIGIN
SKIPA RÚMLEGA
EINN MILLJARÐUR
ÁRIÐ 1975
Hagnaður af rekstri skipa
Eimskipafélags íslands hf., 20
að tölu, varð rúmlega einn
milljarður á árinu 1975, eða kr.
1.141.496.594,00. Arið 1975 varð
tap á rekstri félagsins sem
nemur kr. 17.009.574,00 þegar
eignir hafa verið afskrifaðar
um kr. 601.126.632,00.
Á aðalfundi Eimskipafélags-
ins, sem haldinn var í gær kom
þetta fram í ársskýrslu og
reikningum. Samkvæmt efna-
hagsreikningi námu eignir
félagsins í árslok 1975 kr.
4.725.183.475,00, en skuldir
að meðtöldu hlutafé kr.
4.496.318.241,00. Bókfærðar
eignir umfram skuldir námu
þannig í árslok 1975 kr.
228.865.234,00.
Skip félagsins, 20 að tölu, eru
í árslok- 1975 bókfærð á kr.
2.072.439,855,00 og fasteignir
bókfærðar á rúmlega 680
milljónir króna. Hlutafé Eim-
skipaféiagsins var í árslok ’75
kr. 202.813.750,00. Þar af á Eim-
skipafélagið kr. 17.817.000,00
Lárus Jóhannesson fv. hæsta-
réttardómari var fundarstjóri
aðalfundarins, ér haldinn var
að venju í fundarsal Eimskipa-
félagsins. Fundarritari var til-
nefndur Barði Friðriksson hrl.
Stjórn félagsins skipa nú:
Halldór H. Jónsson formaður,
Birgir Kjaran varaform., Thor
R. Thors ritari, Pétur Sigurðs-
son gjaldkeri, Ingvar
Viihjálmsson, Axel Einarsson
og Hallgrímur Sigurðsson.
Samkvæmt hluthafaskrá
voru um 12 þúsund hluthafar I
Eimskipafélagi íslands hf. i
árslok 1975.
Á aðalfundi félagsins 1972
var samþykkt að neyta heim-
ildar skattalaga um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa, þannig að
'hlutafé yrði þrefaldað. Einnig
var samþykkt að veita félags-
stjórn heimild til sölu
aukningarhluta. Eins og fram
kemur i ársskýrslu Eimskipa-
félagsins er það stefna þes^ að
gefa sem flestum landsmönn-
um kost á því að eignast hlut i
félaginu. Félagsstjórn og for-
stjóri lögðu því fram tillögu,
sem samþykkt var á aðalfundi
1975, þess efnis að teknar
skyldu frá 10 milljónir króna af
óseldu hlutafé í þeim tilgangi
að fjölga hluthöfum í félaginu.
Hin fráteknu hlutabréf eru
seld í fallegum gjafamöppum
og lætur nærri að helmingur
þeirra hafi verið seldur hinn 1.
apríl 1976, en hluthöfum hefur
fjölgað um 1100 frá því sú sala
hófst.
Meðal nýjunga I starfsemi
félagsins má geta þess, að I
haust tekur til starfa nýtízku
ryðvarnarstöð fyrir bíla í vöru-
geymslunum við Borgartún.
BS.
Lárus Jóhannesson fyrrum hæstaréttardómari stjórnaði aðalfundi Eimskipafélagsins i gær. Honum á
hægri hönd situr Barði Friðriksson hrl. fundarritari, en til vinstri frá Lárusi sitja Pétur Sigurðsson
forstjóri, Haildór H. Jónsson forstjóri', sem er stjórnarformaður, og Öttarr Möller forstjóri félagsins.
Ljósm. Ragnar Th.
nýtt í hverri Viku
(otlandi — Grein um húsbúnað — Skýrð nokkur lœknisfrœðiheiti — Viðtal við
- Formúla 1 kappakstursbfll í bflaþœtti, og margt fleira.
BIADIB ÞAÐ UFI!
ítalskir
karlmannasandalar
úr leðri, stœrðir 40—45.
Verð kr. 1.750.-
Vinnuklossar
úr leðri, stœrðir 41—45.
Verð kr. 2.600.-
Tréklossar
stœrðir 36—45.
Verð kr. 2.900.-
Póstsendum
SKÓBÚÐIN SNORRABRAUT 38,
sími 14190.
Sg?*0*
h&Msókn
ISKn?ma
s!s6LAN