Dagblaðið - 21.05.1976, Page 7

Dagblaðið - 21.05.1976, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1976. Edward Kennedy vill fara í framboð til forsetakjörs öldungadeildarþingmaður- inn Edward Kennedy, sem margsinnis hefur lýst því yfir, að hann ætli sér ekki í framboð til forsetakosninga, er nú sagður mundu þiggja út- nefningu Demókrataflokksins. Samkvæmt frásögn dagblaðs- ins, The New York Daily News, á þingmaðurinn að hafa sagt, að hann myndi verða við tilmæl- um flokksins, ef hann yrði út- nefndur forsetaframbjóðandi á flokksþinginu i júlí. Hefur þetta gefið frjálslyndum and- stæðingum Jimmy Carters byr undir báða vængi. Talsmaður Kennedys hefur neitað því, að frétt þessi sé sannleikanum samkvæm. En ritstjóri blaðsins segist ákveðið halda sér við þessar fullyrð- ingar, eftir að einn blaðamanna átti leynilegan fund með Edward í gærkvöldi. Þar á Kennedy að hafa sagt, að hann myndi því aðeins þekkjast boðið, að Hubert Humphrey yrði beðinn um að taka að sér forsetaembættið og hann sjálfur þá varaforsetaem- bættið. Humphrey hefur sjálfur sagt, að hann sé til reiðu, ef flokksþingið biður hann um að fara i framboð, en hann vilji ekki berjast í kosn- ingabaráttu einu sinni enn. Þar með hefur Kennedy úti- lokað þann möguleika, að hann fari í framboð með Carter, en það kemur í sjálfu sér ekki á óvart, þar eð Carter er af mörg- um talinn mun íhaldssamari en Kennedy og að þeir myndu því ekki geta orðið sammála um marga hluti. Fréttir þessar berast á mjög óheppilegum tíma fyrir Carter, sem beið sinn stærsta ósigur í forkosningunum til þessa á mánudaginn var. Édmund Brown fór örugglega með sigur af hólmi í Maryland og Carter sigraði- Udall naumlega í kosningunum í Michigan. Sjálfur hafði Kennedy lýst þvi yfir fyrir tveim árum og nokkrum sinnum síðar, að hann kæmi ekki til greina sem fram- bjóðandi við kosningarnar í ár. Á þeim tíma hvíldu að vísu á honum fjölskylduvandamál, efasemdir almennings um slysið við Chappaquiddick, og örlög bræðra hans, Johns og Roberts eru víst flestum kunn. Edward Kennedy hefur áður lýst því yfir, að hann hyggi alls ekki á framboð, — vilji heldur sinna stórri fjölskyldu sinni, sem hann hefur alið önn fyrir síðan bræður hans voru myrtir. Hfii Ijúfa Volga Jafnvel Rómverjar hefðu roðnað ef þeir hefðu verið viðstaddir svallveizlurnar. Konurnar voru ægifagrar og þjónarnir undirgefnir. Barinn var troðfullur af vinföngum og daglega kom nýr fiskur úr ánni. Marmaraböðunum var haldið heitum dag og nótt, ef ske kynni að eigandanum dytti í hug að koma og hvíla sig. Er þetta, — eins og nú hefur komið í ljós — leyfist ekki og samræmist ekki kenningum kommúnismans. Því þetta gerðist allt í Rússlandi og féð, sem til þessa var varið, fékkst með fjármálaspillingu. Þrettán yfirmenn stórs byggingarfyrirtækis létu byggja sér þetta hvíldar- hreiður á bakka Volgu fyrir meira en 132 milljónir króna. Um tveggja ára skeið létu yfirmenn Dráttarvélasjóðsins sig hafa það að „éta drekka og skemmta sér við ástarleiki." segir ívikuritinu Literaturnaya Gazeta. „Síðan hvíldu þeir sig vel. Eftir hvíldina var haldið í baðhúsin og síðan út á sand- ströndina við ána“. Stórir handunnir kerta- stjakar héngu yfir teppalögðum gólfunum og böðin voru sérstaklega skreytt mosaikmyndum og öðru út- flúri. Yfirmaður Dráttarvéla- sjóðsins, sem aðeins er nefndur Yermoli, krafðist „þeirra fegurstu kvenna er völ væri á og réð aðeins í vinnu til sín þjóna, sem allt vildu fyrir húsbónda sinn gera“. I staðinn fengu þeir góð laun, og yfirmaður baðhússins var settur á launaskrá ríkisins sem verkfræðingur. Einhver sagði að lokum frá öllu saman, — og þá gerðist það merkilega. Yfirmennirnir fengu sex ár, — en þjónarnir allt að 15 árum fyrir þjófnað og nauðgun. NÚ Á AÐ GERA KVIKMYND UNIÆVICLARK OLOFSSON Hvernig meðhöndlar Svíþjóð afbrotamenn? Clark Olofsson, bankaræning- inn sænski, sem heimsþekktur var fyrir afskipti sín af banka- ráninu á Norrmalsstorgi í Stokk- hólmi og árslangan flótta undan lögreglu um alla Evrópu, hefur gefið leyfi til þes’s, að gerð verði kvikmynd um ævi hans. Leikstjórinn danski, Paul Martinssen, hefur fengið fjár- hagslega aðstoð frá kvikmynda- sjóðnum danska, sem þó var háð því skilyrði, að Olofsson gæfi leyfi fyrir því að kvikmyndin yrði gerð. í sambandi við undirbúninginn hefur Martinsen heimsótti fjölda manns, sem þekkt hafa Olofsson, en bíður eftir samtali við heitmey hans, Mariu Wallin, sein nú dvelst I Kuwait. Hugmynd Martinssen gengur út á það að lýsa lífi Olofsson og hvernig hann hefur afbrotaferil sinn, án þess að geta við því spornað. Eins vill hann gera afstöðu sænskra dómstóla skil, en sem kunnugt er hefur Clark margsinnis beðið um það að fá að læra, enda er hann með greindar- vísitölu 136 og hefur margoft varið sig sjálfur fyrir rétti. Banka- og mannræningi, - Clark Olofsson. Erlendar fréttir REUTER HAFNARSTRÆTI 18 LAUGAVEGI 84 LAUGAVEGI 178 Lamy penni Stúdentagjöf fyrir skóla lífsins IAMY meira úrval en þér haldið

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.