Dagblaðið - 14.08.1976, Side 5
I.Al'tiAKDAÍiL'K 14. ACÚST 1976.
„Líkur til, að sparimerkjamólið verði svœft," segir Hannes Pólsson,
einn stjórnarmanna Húsnœðismólastof nunar
ÉTIÐ AF SKYLDUSPARNAÐI
25.600 UNGUNGA (
— vaxta- og vísitölulausir
biðreikningar í notkun
)
„Það hefur verið svo þögult
yfir þessu máli, að mér virðist
allar likur til, að það verði
svæft, svo framarlega að
þingmenn, fjölmi'ðlar eða fleiri
eða færri af þeim 25.600 ung-
lineum. sem hlut eiga að máli.
geri ekki harða hríð að ríkis-
stjðrninni að taka ákvörðun,“
sagði Hannes Pálssón frá
Undirfelli. einn stjórnarmanna
Húsnæðismálastofnunar, i
viðtali við blaðið um spari-
merkjamálið svonefnda.
„Ég tel, að útreikningur á
skyldusparnaði hafi verið
rangur frá upphafi og stórfé
haft af þessum unglingum.
Vextir eru aðeins 4%, en í
iögum er f.vrirheit um fullar
vísitöluuppbætur. Framkvæmd
þessara mála hefur verið
þannig frá upphafi, að vísitalan
hefur verið reiknuð Ut aðeins
einu sinni á ári i stað þess að
reikna hana fjórum sinnum,
eins og lögin sýna, að eigi að
gera. Vísitalan hefur alltaf
verið miðuð við nóvembervísi-
tölu árið áður en tekið er Ut úr
bókinni. Miða hefði átt við visi-
tölu þann dag, er lagt var inn,
og aftur við vísitölu þann dag.
er tekið var út. Auk þess hefur
vísitalan. sem inneign þessa
hefur skapað, verið færð á sér-
stakan biðreikning, og af hon-
um hefur hvorki verið reiknuð
vísitöluuppbót né vextir.
Sjö atkvœði gegn einu
„Lagt hefur verið fram
dæmi, sem sýnir, að útreikn-
ingurinn á vísitölunni einn
hefur valdið, að maður, sem
hefði átt að fa 51.659 krónur.
fékk aðeins 8.765. Annað dæmi
er um mann, sem hefði átt að fá
43.365 kr, en fekk 11.431 kr.
Þessi mismunur er eingöngu
af þvi, að visitalan hefur ekki
verið reiknuð lögum samkvæmt
segja hlutaðeigandi aðilar. En
til viðbótar þessunt mismun
hefði mátt bæta vísitölu á
biðreikning þeirra ásamt
vöxtum og vaxtavöxtum," sagði
Ilannes.
„Hinn 1. júní 1976 eru 25.600
unglingar. sem hafa lagt inn
skyldusparnaðarfé en
samkvæmt bókum Veðdeildar
er talið i útlánum af skyldu-
sparnaðarfé tæplega tveir
milljarðar. Telja má vísL að
haft hafi verið af
skyldusparendum með króka-
leiðum ekki minna en einn
milljarður.
Eg bar fram á fundi i
Húsnæðismálastjórn tillögu um
leiðréttingu. sem var felld með
7 atkvæðum gegn einu," sagði
Hannes. Þar var lagt til, að vísi-
tölubætur skvldu reiknaðar
fjóruin sinnum á ári og upp-
bótin ávallt reiknuð frá þeim
degi er upphæðin var lögð inn.
Erjnfremnr skyldu upphæðir á
biðreikningi njóta sömu vísi-
töluhækkunar og inneignin á
upphaflegri innlánsbók hlutað-
eigandi skyldusparnaðar-
eigenda. Þær upphæðir, sem
skyldusparendur eignuðust,
sk.vldu njóta sömu vaxta og
skyldusparendur fá af fé sínu á
innlánsbók.
Þessi tillaga Hannesar mun
hafa verið felld á þeim for-
sendum.að málið væri í
höndum ríkisstjórnar, en
Hannes telur, að Hús-
næðismálastjórn hefði átt að
taka af skarið.
Gjafsókn tvírœð
Hannes rakti síðan gang
mála síðustu mánuði, sem
kunnur er af fréttum i
Dagblaðinu. Málið er sem
stendur „í höndum ríkis-
stjórnarinnar."
Hannes sagði: „Eg hef heyrt
haft eftir félagsmálaráðherra.
að bezta lausnin á rnálinu væri
sú að láta það ganga til dóms.
sem hann mundi sjá um. að
gjafsókn fengist í. Út af fvrir
sig er það afgreiðsla á málinu,
en að mínum dómi eru lögin um
skyldusparnað og reglugerð
svo klaufalega orðuð, að orkað
getur tvímælis, hvernig dómur
félli. En það sér hver maður,
að ekki er rétt að lána fé
sparifjáreigenda Ut og taka vísi-
töluuppbót af 4/10 af láns-
upphæðinni á hverjum gjald-
daga, og nokkuð af því fé er
einmitt fé sem safnazt hefur á
biðreikninginn. Ryggingar-
sjóður heíur fengið lán hjá líf-
eyrissjóðum, vísitölutr.vggð
með fullri vísitölu, og lánað út á
sama hátt og fé það. sem
safnazt hefur á biðreikningi
skvldusparenda. Slikir sjóðir fá
bæði visitölu og vexti en
skvldusparendur ekkert.
Þetta verður að teljast því
verra sem það fólk, sem líklegt
er að eigi mest inni, er fólk sem
ekki fer I neitt farmhaldsnám
og lendir í lægstu launa-
flokkunt þjóðfélagsins, sem
fulltíða fólk," sagði Hannes
Pálsson að lokum.
-HH.
Sparimerkjabækur ungs fólks
geyma oft stórar fjárhæðir, nú
virðist sem ríkið standi ekki við
samninga sína við þetta unga
fólk.
Ungt fólk hetur svnt sparifjársöfnun skilning, enda kpma peningarnir oftast í góðar þarfir síðar meir,
þegar farið er að byggja þak vfir höfuðið.
Jónas Guð-
mundsson sýnir
í Listasaf ninu
ó Seifossi
Jónas Guðmundsson
stýrimaður. rithöfundur og list-
málari, heldur sýningu í Lista-
safni Árnessýslu á Selfossi um
þessar mundir. Guðmundur
Daníelsson rithöfundur ritarfor-
mála að vandaðri sýningarskrá
þar sem hann rekur I stórum
dráttum æviferil iistamannsins,
ætt hans og uppruna.
A sýningu Jónasar eru rúmlega
30 verk, bæði olíu- og vatnslita-
myndir. Margar þessara mynda
hafa ekki verið á sýningu áður, en
nokkrar þeirra voru nýlega á sýn-
ingu. setn haldin var i Niirnberg í
Vestur-Þýzkalandi. Nokkrar þess-
ara mynda eru til sölu, en sýning-
unni lýkur sunnudaginn22. ágúst.
Þangað til verður sýningin opin
á venjulegum safntíma Lista-
safnsins, þ.e. frá kl. 16—18, nema
á laugardögum og sunnudögum
kl. 14—20.
BS.
Nú eiga allar
unnar kjötvörvr
að vera merktar
Nú er gengin í gildi reglugerð
um að allar unnar kjötvörur sem
seklar eru i smásölu skuli vera
nákvæmlega merktar. Samkvæmt
þessari reglugerð á að merkja
allar unnar vörur með pökkunar-
degi og sídasta söludegi ef þess er
kostur.
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins
sem framleiöir margvíslegar
unnar matvörur hefur haft slíkar
merkingar á mörgum tegundum
framleiöslu sinnar.
Kjiitiðnaðarstöðin hefur nú fest
kaup á þeim tækjum sem til þarf
til þess að geta merkt allar fram-
leiðsluvörur sínar. Þessar merk-
ingar „Goða-varanna" eru bæði
greinilegar og smekklegar.
- A.Bj.
Auglýsing
um merkingu unninna kjötvara sem seldar eru í smásölu.
1. gr.
Skylt er að merkja allar unnar kjötvörur sem seldar eru í smásölu i neyteoda-
[umbúðum hér á landi. Auglýsing þessi tekur þó ekki til niðursoðinna kjötvara.
2. gr.
Á eða í umbúðum vörunnar skulu vera greinilegar upplýsingar á íslensku,
[sem lesa má án þess að rjúfa umbúðir, (vörumerkingarseðill), um eftirtalin atriði:
a) Heiti vörunnar og framleiðsluhátt.
b) Samsetningu vörunnar, ef um samsetta vöru er að ræða, svo og aukefni.
Æskilegt er að tilgreina næringargildi.
c) Geymsluaðferð og meðferð fyrir neyslu.
d) Nettóþyngd innihalds og eftir atvikum einingarfjölda.
e) Einingarverð og söluverð vörunnar.
f) Nafn og heimilisfang framleiðanda vörunnar og./eða þess aðila sem búið
hefur um vöruna.
g) Pökkunardag vörunnar. Tilgreina skal síðasta söludag sé þess i okkur kostur.1
Niður-
greiðslur
enn yfir
tvö pró-
sent af
þjóðar-
fram-
leiðslunni
Niðurgreiðslur eru enn
meira en tvö prósent af allri
þjóðarframleiðslunni, þótt það
hlutfall hafi minnkað nokkuð.
Áætlað er, að þær verði I ár
sem nemur tveimur komma
þremur af hundraði miðað við
þjóðarframleiðslu. Þær voru
tvö komma níu prósent í fyrra,
tvö kornma sjö prósent árið þar
áður og tvö koma þrjú árið
1973.
Mestar urðu þær þrjú
prósent af framleiðslunni árið
1971, en árin 1970 og 1969 voru
þær „aðeins" 1,3. og 1,4
prösent. —HH