Dagblaðið - 22.01.1977, Page 24
Lögregluþjónn dæmdur fyrir kylf uárás:
Lögreglustjóri og ráðu-
neytið ákváðu að gefa
honum ,,séns”
Lögregluþjónn i Reykjavík
sem dæmdur var nýlega í 45
daga skilorðsbundið varðhald
fyrir að berja Bandaríkjamann
með kylfu í handlegg og höfuð
þegar hann neitaði að láta taka
af sér blóðprufu á Slysadeild
Borgarspítalans 20. október
1975, hefur verið ráðinn aftur
til starfa í lögregluna. Banda-
ríkjamaðurinn var grunaður
um ölvun við akstur og taldi sér
ekki skylt að gangast undir
blóðprufuna, enda ókunnur ís-
lenzkum reglum um slíkt.
í grein, sem Svala Thorlacius
hdl. skrifaði i Vísi í fyrradag,
hefur hún eftir Bjarka Elías-
syni yfirlögregluþjóni í Reykja-
vík, aó viðkomandi lögreglu-
maðurhefði veriðtekinn aftur í
lögregluna að fyrirmælum
dómsmálaráðuneytisins.
Baldur Möller, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu,
sagði í samtali við fréttamann
blaðsins í gærkvöld að i þessu
máli hefði verið farið eftir ósk-
um lögreglustjóraembættisins
og raunar fast eftir því gengið
að afstaða þess til endur-
ráðningar mannsins færi ekk-
ert á milli mála.
Lögregluþjónninn var „leyst-
ur frá störfum um stundarsak-
ir“ eftir að kylfuárásin átti sér
stað. Við réttarhöld i málinu —
og í bréfum og umsögnum
lögreglustjóraembættisins —
kom fram að lögreglumaðurinn
hafði reynzt vel í starfi sínu, að
sögn Baldurs Möllers, og vildu
yfirmenn hans gjarnan fá hann
aftur til starfa. „Það fór þó
aldrei á milli mála að bæði
ráðuneytið og lögreglustjóra-
embættið töldu um mjög alvar-
legt mál að ræða,“ sagði Baldur,
„enda virtist í umrætt skipti
ekki hafa skapazt slíkt ástand
að beiting kylfu hefði verið
nauðsynleg, eins og sagði i um-
beðinni umsögn ráðuneytisins
til ríkissaksóknara.“
Þegar dómur hafði verið
kveðinn upp fóru enn bréf á
milli dómsmálaráðuneytisins
óg embættis lögreglustjóra og
var síðasta orðið í því bréfi
ráðuneytisins, þar sem sagði
m.a. að með tillliti til þess að
um skilorðsbundinn dóm hefði
verið að ræða og með tilliti til
umsagna um starfshæfni lög-
regluþjónisns, teldi ráðuneytið
kylfuárásina „ekki skera úr um
að hann taki lausn að fullu og
skal hann því hefja störf að
nýju,“ eins og segir þar orðrétt.
Baldur Möller undirstrikaði
að sú ákvörðun hefði verið
tekin í fullu samráði við lög-
reglustjóraembættið, að „gefa
honum séns“.
-OV.
frjálst, úhád daghlað
LAUGARDAGUR 22, JAN. 1977.
Krafla:
Hættu-
ástandi
aflýst
Hættuástandi á Kröflusvæð-
inu hefur verið aflétt. Vinna
við framkvæmdirnar mun því
hefjast að nýju á mánudags-
morgun, segir í fréttatilkynn-
ingu frá iðnaðarráðuneytinu i
gærdag. Segir í tilkynningunni
að Orkustofnun telji núver-
andi aðstæður þannig, að
hættuástandi sé aflýst, og
leyfð verði gisting starfs-
manna í Kröflubúðum, svo og
að venjulegur starfsdagur
verði unninn, óstyttur.
-JBP-
Elliöaárnar eiga í
erfiðleikum:
Klakinn
sprengdur
Elliðaárnar eiga í vandræð-
um með að renna sinn veg til
sjávar þessa dagana. Frostin að
undanförnu hafa orðið til þess,
eins og fram hefur komið í
fréttum DB, að árfarvegurinn
hefur stíflazt. Grípa hefur
þurft til þess ráðs að setja
sprengiefni á svellbólstrana og
sprengja þá í loft upp. t gærdag
festi ljósmyndarinn eina slíka
sprengingu á filmu sína. (DB-
mynd Sveinn Þormóðsson).
Stjóm Flugleiða
hf. íkynnisferð:
Kynna sér
eignir
fyrir-
tækisins
ytra
Stjórn Flugleiða hf. er nú á
kynningar- og skoðunarferða-
lagi til Luxemburgar og
Bahama-eyja. Þar sem nokkrar
breytingar hafa orðið i stjórn
hinna sameinuðu flugfélaga,
Flugfélags tslands hf. og Loft-
leiða hf„ einkum vegna sam-
runans, þótti við hæfi að þeir
menn, sem ekki hafa af eigin
raun kynnzt rekstri félagsins á
framangreindum stöðum,
gerðu það nú, að sögn Sveins
Sæmundssonar blaðafulltrúa.
Þau fyrirtæki sem hér um
ræðir, eru Cargolux og Hótel
Aerogolf í Luxemburg, og Int-
ernational Air Bahama Inc. á
Bahama-eyjum.
BS.
..........---------------------------————a*fs»------
Hér er höfðingjasetrið i Kröflu. Þar gista framámenn sem að garðl
ber og vilja eiga nótt á óróasömu svæði. Þar hafa Kröflunefndar-
menn einnig fyrirtaks aðsetursstað. (DB-mynd JR).
Lítið sem ekkert hef ur
f undizt af loðnu út af
Vestf jörðum til þessa
— ís og óveður hamla leitinni
Hafrannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson hefur að undan-
förnu verið við loðnuleit út af
Vestfjörðum. Sú leit hefur
gengið fremur stirðlega, að
sögn leiðangursstjórans Hjálm-
ars Vilhjálmssonar, bæði vegna
íss og slæms veðurs.
„Við höfum nánast ekkert
fundið af loðnu vestur af Vest-
fjörðum,“ sagði Hjálmar í sam-
tali við Dagblaðið. „Hins vegar'
vitum við af loðnugöngu norður.
af Strandagrunni og 'Kögur-
grunni og hluti hennar er
hrygningarloðna."
Hjálmar taldi, að ástæðan
fyrir þvi, hversu lítið þeir
hefðu fundið af loðnu til þessá,
væri sú að hún héldi sig alveg
við ísbrúnina, eða jafnvel undir
isnum. Því væri ekkert fyrir þá
á Bjarna Sæmundssyni annað
að gera en að bíða og sjá til,
hvort veður skánaði ekki á
næstunni. -AT-
r
Sérstætt f ramlag Laugvetninga í
álumræðurnar:
r
„Al íhvert mál
„Al í hvert mál“ er kjörorð
192 manna á Laugarvatni sem
hafa undirritað „bænaskjal til
Alþingis tslendinga", þar sem
skopazt er að áhuganum á ál-
verksmiðjum.
„Viljum við auðmjúklega fara
þess á leit að reist verði hér (á
Laugarvatni) að minnsta kosti
eitt álver,“ segir í bænaskjal-
inu. „Ekki er að efa, að bændur
hér um slóðir muni glaðir hætta
búhokri sinu og hefja fagnandi
störf við álverið og jafnframt
gefa land það, sem til þarf að
reisa álver og önnur mannvirki.
Engin ástæða er til að leggja
kostnað í dýr hreinsitæki, því
að bændur munu hvort eð er
hætta búskap. Hvað varðar
þennan vesæla skóg (fúasprek
væri réttnefni), þá er hann svo
lítilfjörlegur. að enginn harm-
aði, þótt hann hyrfi....Skipa-
skurðir eftir ánum og höfn í
smábátalæginu í Laugarvatni
mundi valda byltingu í sam-
göngu- og atvinnumálum
staðarins."
Af þeim, sem undirrituðu,
eru 156 úr Menntaskólanum að
Laugarvatni, sem eru 86,7% af
nemendum staðarins.
-HH.
Menntasetrið á Laugarvatni er e.t.v. hentugur staður fyrir svo sem eina álverksmiðju, segja
Laugvetningar og senda þingmönnum „bænaskjal" í allt öðrum og léttari tón en vandi er. Hér sjáum
við hluta af Laugarvatnsbyggð. Vonandi að þar sjáist aidrei verksmiðjureykháfur (DB-mynd KP).