Dagblaðið - 19.02.1977, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUH 19. FEBRÚAR 1977.
15
Sjönvarp a' morgun kl. 16.00: Hiísbændur og hjd
Ekki að f urða þótt Eliza-
beth sé óhamingjusöm
Húsbændur og hjú eru á
sínum staö í dagskrá
sjónvarpsins á morgun kl.
16.00. Er þetta 3. þáttur í öðrum
flokki og nefnist Astir hjóna.
Þýöandi er Kristmann Eiösson.
í þessum þætti segir aöallega .
frá Elizabethu og Lawrence
Kirbridge. Sýnt er þegar þau
hjónin deila í rúminu einn
morguninn þegar þau vakna og
kemur í ljós í rifrildinu að þau
hafa aldrei átt saman kynmök.
Lawrence gefur þá ástæðu aö
ást hans sé af platónskum toga
spunnin og honum finnist að ef
hann ætti við hana líkamleg
mök myndi það spilla henni.
Þau skilja ósátt og Lawrence
fer á fund útgefanda síns, þvi
nú á að fara að gefa út fyrstu
ljóðabókina hans. Útgefandan-
um finnst að í ljóðum hans
komi fram lífssamband þeirra
hjóna og hversu ófullkomið það
sé. Útgefandinn fær Lawrence
til þess að opna sig og hann
segir útgefandanum allt af létta
um vandamál þeirra hjóna og
verður úr að útgefandinn
hjálpar þeim báðum.
Útgefandanum, gagnrýnend-
um og fleiri er boðið til
heimboðs í nýja húsið í tilefni
af bókarútkomunni.
Elízabeth fær nýjan bíl til
þess að leika sér i og er það
aðallega fyrir tilstilli þjónsins
Thomasar, að hún fær bílinn og
er hann einkaþílstjóri hennar.
Þátturinn er sendur út í lit.
-A.Bj.
John Alderton fer með hlut-
verk þjónsins Thomasar. Hann
kemur því til leiðar að Eliza-
beth eignast bíl og verður hann
einkabílstjóri hennar.
r
Lesendur
auiugiu
Sjónvarps-og
útvarpsdagskrár
eru á bls. 22 og 23
Sjönvarp annað kvöld kl. 21.40:
Eru ævisögur kvenna
aðeins fyrir konur?
— Áhorfendur ekki sammála um ágæti myndanna um Jennie
sjónvarpið sýnir marga ,pífu og
blúndu" þætti, eins og kallað
er. Einnig hefur því verið
haldið fram að framhalds-
myndaflokkurinn um ævi
Jennie Churchill sé ,,bara“
fyrir konur — karlar hafi ekki
vitund gaman áf slíkum þátt-
um.
Það væri gaman að fá að
heyra hvers konar þætti fólk
tekur fram yfir ,,pífu og
Þarna er setið við veizluborð í
Blenheimhöll. Það er mjög
fróðlegt að kynnast því hvernig
aðalsfólk í Bretlandi lifði á
öldinni sem leið. Það hlýtur að
hafa verið leiðinlegt líf að hafa
ekki meira fyrir stafni en
heimilisfólkið í Blenheim. Það
var engu líkara en beðið væri
eftir þvi að klukkan slægi níu,
þá fóru allir í háttinn og kysstu
hertogahjónin á kinnina eins
og hlýðin börn.
blúnduþætti" — kannski
myndir á borð við dönsku
myndina Faðir minn, sem sýnd
var fyrir skömmu. Slíkar
myndir eru með því al-
hundleiðinlegasta sem
sjónvarpið hefur sýnt að mínu
áliti (ef undanskildir
eru þýzku þættirnir um bíla-
leiguna og sögurnar frá
Munchen). Síðari athuga-
semdin um, að karlar hafi ekki
gaman af þættinum, er einnig
út í hött að mínu áliti. Þetta er
ævisaga konu. Eiga þá aðeins
konur aó hafa ánægju af slíkum
sögum?
Körlum finnst kannski ekki
karlmannlegt að hafa gaman af
ævisögum kvenna — það væri
gaman að heyra álit fróðra
manna um þetta atriði.
Annað kvöld er þriðji
þátturinn um Jennie á dag-
skránni kl. 21.40. Nefnist hann
Afturbati.
Þýðandi er Jón O. Edwald.
-A.Bj.
Heyrzt hafa raddir frá ýms-
um sem gagnrýna harðlega hve
Hef ur dansað sig í
gegnum heila öld!
..Vertu i góðu líkamlegu
formi, trimniaðu og gefðu þér
tíma til þess að hlusta á tónlist
og dansa." Þessi orð hefur
Jennie gamla Mack haft að ein-
kunnarorðum sínum, en hún
átti hundrað ára afmæli fyrir
skömmu. Haldið var upp á
aldarafmæli hennar i skemmti-
stað í heimabæ hennar, Balti-
more, en staðurinn er kenndur
við ..beztu árin“.
„Hreyfing og tónlist hafa
haldið mér hraustri i öll þessi
ár,“ segir sú gamla. Hún dans-
aði af mikilli hjartans lyst í
afmælisboðinu. alveg eins og
hún gerir á hverjum miðviku-
degi.
,,Ég syng líka heilmikið og þá
oftast garnla slagara, sem voru
vinsælir þegar ég var ung. Þá
fæ ég fiðring í lappirnar og
dansa um húsið."
Þegar hún var aðeins
firnmtán ára gömul lagði hún
land undir fót, hélt til New
York og ætlaði að freista gæf-
unnar á Broadway. Hún fékk að
sýna listir sínar fyrir frægum
söngleikhússtjóra og hann réði
hana á stundinni. Hún var með
í vinsælum söngleik á sjálfum
Broadway. Þetta kom flatt upp
á alla ættina. en Jennie varð
ekkert undrandi.
„Þegar maður er fimmtán
ára býst maður við því að leggja
veröldina að fótum sér,“ segir
hún.
Hún var á leiksviðinu þangað
til hún varð sextíú ára. árið
1937, en þá hætti hún að dansa
á leikviðinu. „Mér fannst ekki
vera nógu góð hiutverk fyrir
konu á mínum aldri á sviðinu,"
segir hún. Ekki yfirgaf hún þó
leikhúsið, heldur flutti sig í
leikbúningadeildina og * að-
stoðaði dansstúlkurnar.
„Eg hætti samt ekki að
dansa.“ segir Jennie. ,,Ég dans-
aði bara ekki lengur á sviðinu."
Jennie dró sig í hlé fyrir
nokkrum árum. Hún býr nú ein
síns liðs og sér um öll innkaup
og eldamennsku sjálf.
„Ég sit ekki auðum höndum,
hef nóg að gera,“ segir Jennie.
Hún spilar á spil, fer á bingó
með vinum sínum og dansar á
miðvikudögum Stundum tekur
hún sig til og fer í strætisvagna-
ferðir um borgina og þá
auðvitað á mesta annatíma.
„Ég elska að vera þar sem
hlutirnir eru að gerast." segir
hún.
Jennie hefur verið einstak-
lega heilsuhraust allt sitt líí þar
til í fyrrasumar. að hún fékk
sólsting eftir að haia horft á
skrúðgöngu á pjóðhátíðardag-
ínn. Hún þurfti að liggja á
sjúkrahúsi i fáeina daga en var
þá aftur komin á kreik eins og
ekkert hefði í skorizt.
Jennie Mack er alveg ein-
staklega létt á fæti og enginn
sem sér hana gæti látið sér
detta í hug að hún væri orðin
hundrað ára.
Þýtt A.Bj.
Jennie Mack dansaði galvösk á
hundrað ára afmælinu sínu.
Trésmiðir
Vantar 2 trésmiði strax við
innivinnu að Borgartúni 6.
Uppl. á staðnum og
ísíma 73376.
Rafmagnsveitur ríkisins
auglýsa laust til umsóknar starf vél-
tæknifræðings eða vélaverkfræðings
til starfa við Framkvæmdadeild. Laun
eru skv. kjarasamningum ríkisstarfs-
manna.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 116
REYKJAVÍK
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105