Dagblaðið - 19.02.1977, Qupperneq 24
f "• -.... "" ■ ... - ■ . ....... u\
Bjórinn féll á einu atkvæði 1969
Aleirf fækkun í liði and-
stæðinga en stuöningsmanna
Hvernig fer atkvæða-
greiðslan á Alþingi um bjórtil-
lögu Jðns G. Sólness? Menn
bíða spenntir því að stundum
hefur munað mjóu að bjórinn
hefði það. Breytingar á þing-
liðinu, síðan síðast var slegizt
um bjór, virðast bjórnum í vil, í
fljótu bragði séð.
Bjórtillaga Péturs
Sigurðssonar (S) og fleiri var
felld í neðri deild með aðeins
eins atkvæðis mun 17. apríl
1969. 18 sögðu nei og 17 já, 1
greiddi ekki atkvæði, og 4 voru
fjarverandi.
Af já-mönnunum 17 eru 10
enn á þingi, en af nei-
mönnunum 18 eru aðeins 8 enn
á þingi. Þessi hlutföll eru því
bjórnum í vil.
Þeir, sem sögðu já við
bjórnum og enn eru á þingi:
Gylfi Þ. Gíslason (A), Ingvar
Gíslason (F), Jóhann Hafstein
(S), Jón Skaftason (F),
Matthias Bjarnason (S), Pálmi
Jónsson (S), Pétur Sigurðsson
(S), Eyjólfur Konráð Jónsson
(S), Benedikt Gröndal (A),
Guðlaugur Gíslason (S).
Af nei-mönnunum eru þessir
enn á þingi: Jónas Arnason
(AB), Lúðvík Jósepsson (AB),
Magnús Kjartansson (AB),
Matthias Á. Mathiesen (S),
Stefán Valgeirsson (F), Vil-
hjálmur Hjálmarsson (F),
Þórarinn Þórarinsson (F), Geir
Gunnarsson (AB).
Halldór E. Sigurðsson (F),
greiddi ekki atkvæði um málið
1969. Af þeim fjórum.sem þá
voru fjarverandi, eru þrír enn á
þingi: Ingólfur Jónsson (S),
Eðvarð Sigurðsson (AB) og
Friðjón Þórðarson (S).
Stundum endranær hefur
litlu munað að bjórinn færi í
gegn. Til dæmis má rifja upp að
á þinginu 1966 var bjórtillaga
felld með 19 atkvæðum gegn
15.
En svo eru náttúrlega allir
nýju þingmennirnir sem flestir
eru óskrifuð blöð um bjórmálið
þar sem það hefur svo lengi
iegið óhreyft.
frjálst, úháð daghlað
LAUGARDAGUR 19. FEBR. 1977.
Skrifstofustjóri
Sölunefndarinnar
áförum:
Verður
sýslu-
En sú blessuð tíð —
rm
úti á landi
Eftirleikur Geirfkinsmálsins—varðhald saklausra
Samningar um bætur
fjarska ósennilegir
—telur Baldur Möller ráðuneytisst jóri
Hverfandi litlar líkur eru á
því að samið verði um greiðslu
skaðabóta fyrir gæzluvarðhald
að ósekju í Geirfinnsmálinu.
,,Þ'að er augljóst að ekki kem-
ur til mála að afneita þeirri
hugmynd fyrirfram ef
kröfuhafar verða mjög
hófsamir í knöfum síríum og
fara til dæmis aðeins fram á
táknrænar bætur,“ sagði
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri
i dómsmálaráðuneytinu, í sam-
tali við DB i gær. ,,Mér þ.vkir
því fjarskalega ósennilegt að
samningar verði gerðir um
þessar bætur."
Fjórir menn, Einar BoIIason,
Magnús Leópoldsson, Sigur-
björn Eiríksson og Valdimar
Olsen, hafa — eða réttargæzlu-
menn þeirra fyrir þeirra hönd
— gert sér hugmyndir um að ef
til vill verði hægt að komast hjá
málaferlum vegna gæzluvarð-
haldsins sem þeir sættu vegna
framburðar sakborninga í Geir-
finnsmálinu.
Einar Bollason hefur sagt í
viðtali við Dagblaðið að hann
teldi það siðferðilega skyldu
ríkisvaldsins að koma í veg
fyrir slík málaferli sem valda
myndu öllum sárindum, ekki
sízt aðstandendum sem búnir
séu að fá nóg.
Stefna fjármálaráðuneytisins
í þessu máli er að semja ekki
um meiriháttar bætur heldur
sé betra að láta dómstóla skera
úr um þær, að sögn Baldurs
Möllers.
í skaðabótamáli sem annar
maður stendur nú I gegn ríkis-
valdinu vegna gæzluvarðhalds-
að ósekju 1973, neitaði lög-
maður rikisins í gær að ræða
sættir i málinu „nema krafan
væri 60-80 þúsund krónur,“
eins og hann sagði.
-ÓV
oghvaðboðar
svo góan?
Manna meðal er þessa dagana
helzt rætt um skransölu varnar-:
liðsins, stórgóðan loðnuafla, ölið
sem Sólnes ætlar að færa lands-
mönnum og svo þetta eilífa vor
sem legið hefur í loftinu í allan
vetur. Hvarvetna má sjá mynda-
efni, sem ekki er vanalegt á
þorra, heldur ekki góu. Hér eru
nokkrir menn að skipta um gler í
glugga. Ugglaust hafa þeir hugsað
um þá blessuðu tið sem yfir okkur
hefur „dunið“. — DB-mynd
Hörður Vilhjálmsson.
Skrifstofustjóri Sölunefndar
varnarliðseigna, Sigúrðut
Skarphéðinsson, er nú á förum
frá fyrirtækinu og verður
fulltrúi við sýslumannsemb-
ætti úti á landi. Eins og
blaðið sagði frá um daginn var
hann í hópi umsækjenda um
forstjórastöðuna, en fékk ekki.
1 fréttinni þá mátti misskilja
að hann væri bæði lög-
fræðingur fyrirtækisins og
skrifstofustjóri en hann er
skrifstofustjóri að starfi en
lögfræðingur að mennt.
-G.S.
Ráðherra lét sig að nokkru
leyti:
Birtir nöfn
28 umsækj-
enda af 34
—hverjir eru huldumenn-
irnir sex?
Einn frægasti nafnalisti
siðustu ára hér á landi, listinn
yfir umsækjendur um stöðu
forstöðumanns Sölunefndar
varnarliðseigna, var í gær
sendur öllum fjölmiðlum til
birtingar. En án undanbragða
er listinn þó ekki opinberaður.
A hann vantar enn nöfn að
minnsta kosti sex manna, því
upplýst var að umsækjendurnir
hefðu verið 34 auk þeirra um-
sókna sem til ráðherra bárust
beint, en meðal þeirra var um-
sókn þess er „hnossið" hreppti.
Af þeim 28 nöfnum sem utan-
ríkisráðherra fæst til að birta,
verður helzt getum að því leitt
að hin langvinna barátta, sem
háð var milli loka umsóknar-
frests og veitingar stöðunnar,
hafi staðið milli „huldumann-
anna“ sex og sjöunda „huldu-
mannsins", er síðan hlaut stöð-
una og varð til þess að blaðran
sprakk á Alþingi og í fjölmiðl-
um. Tilkynning utanríkisráð-
herra fer hér á eftir:
Enda þótt ég telji að
skilningur minn á skyldu til
birtingar á nöfnum þeirra
manna, sem sóttu um starf for-
stöðumanns Sölu varnarliðs-
eigna sé réttur, sé ég enga
ástæðu til annars en að birta
nöfn þeirra er sóttu og ekki
höfðu dregið umsókn sína til
baka áður en sett var í stöðuna.
Að því er ég best veit munu
vera nokkur dæmi um það að
nöfn umsækjenda hafi ekki
verið birt fyrr en um leið og
embættum hefur verið
ráðstafað.
Auk Alfreðs Þorsteinssonar sóttu
eftirtaldir menn:
Aðalsteinn P. Maack, forstöðumaður
byggingaeftirlits ríkisins. Agnar R.
Hallvarðsson, vélstjórí. AJvar Óskarsson,
skrifstofustjóri. Bjöm Stefánsson, fulltrúi
S.Í.S. Fríðrík Stefánsson, fulltr. rannsóknar-
deildar ríkisskattstjóra. Franklín Friðleifs-
son, aðalfulltr. bifreiöaeftiriits ríkisins. Guð-
mundur Karisson, blaðamaöur. Guðmundur
Marteinsson, sjómaður. Gunnlaugur M. Sig-
mundsson, fulltr. i fjármálaráðuneytinu.
Hrafn Einarsson, verzlunarmaður. Ingi B.
Ársœlsson, fulltrúi í ríkisendurskoðun. Ingi-
bergur Þorkelsson, sjálfstæður atvinnu-
rekstur. James A. Wilde, framkvnmdastjórí.
Júlíus M. Magnús. sjálfstnöur atvinnu-
rekstur. Kári Guðmundsson, heilbrigöis-
ráðunautur. Krístinn Gunnarsson, deildar-
stjórí í samgönguráöuneytinu. Ólafur
Karvolsson, deildarstjórí í innflutnings-
verzlun. Páll Andreason, kaupfélagsstjórí
m.m. Páll Vídalín Valdemarsson, deilðarstjórí
Sindra Stál. Ragnar Pátursson, sölustjórí-
S.Í.$. Sigurður Jónsson, iðnrekandi. Sig-
urður öm Ingólfsson, tnknimaður. Siguijón
Guðbjömsson, fulltrúi i Fríhöfninni, Kefla-
víkurflugvelli. Sigurjón Magnússon, sjálf-
stnður atvinnurekstur. Sigvaldi Fríðgeirs-
son, skrífstofustjórí tollstjóra. Skúli ólafs,
sjalfstnður atvinnurekstur. Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson, stórkaupmaður. Þröstur Sig-
tryggsson, skipherra.
Reykjavík 18. febrúer 1977.
Einar Agústsson.