Dagblaðið - 02.03.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977.
9
Búast verkalýðsleiðtogar við verkfölium?
„ Verði verkföll, verða
þau hörð”
Verkalýðsleiðtogar vænta
þess að atvinnurekendur muni
ekki standa hart gegn kröfunni
um 100 þúsund króna lág-
markslaun á mánuði. Þó sýni
reynslan að allt eins megi búast
við verkföllum. ..Verði verkföll.
þá verða þau hörð. Svo mikil
ólga er meðal láglauna-
fólksins," sagði Aðalheiður
B.jarnfreðsdóttir, formaður
Starfsstúlknafélagsins Sóknar.
í viðtali við DB. Magnús L.
Sveinsson, formaður Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur,
sagði að allir ættu að geta verið
sammála um, að lágmarkslaun
yrðu ekki lægri en verkalýðs-
félögin krefjast.
Benedikt Davíðsson. for-
maður Sambands byggingar-
manna, sagði að auðvitað væri
alltaf erfitt að spá um hvað
gerðist. Honum sýndist að ýms-
ar forsendur væru nú til þess
að unnt yrði að gera bre.vtingar
á kjörum verkafólks í þá veru
sem krafizt væri. Hann kvaðst
ekki telja ástæðu til að búast
við langvarandi verkföllum.
Kröfurnar um hækkun á lægsta
kaupinu væru ekki mörgum
prósentum umfram það sem
verkafólk hefði i re.vndinni
haft árið 1974. Svo niikið hefði
kaupmáttur minnkað á þessum
tíma. Hann b.vggist hins vegar
við einhverjum átökum. Aldrei
væri að vita hvernig þeir sem
væru ,,á hinum kantinum"
brygðust við, atvinnurekendur
og stjórnvöld. Kannski vildu
þessir aðilar ekki að þessi
breyting gerðist nema þeir
væru ..píndir til þess." ..Verði
atvinnurekendur og stjórnvöld
ákaflega stöð, þá verða verk-
föll. Verkafólk verður að
knýja fram í meginatriðum
þær kröfur sem kröfugerðin
hljóðar upp á." sagði Benedikt.
Eru menn sammála
um 100 þúsundin?
,,Ég held að allir séu nú sam-
mála um. að bæta verði hag
þeirra verst settu," sagði Aðal-
heiður. ..Ætli nokkrum geti
fundizt of mikið. að fólk hafi
100 þúsund til að lifa af á
mánuði?" Hún sagði að mikið
mundi velta á heilindum innan
verkalýðshreyfingarinnar
sjálfrar. „Vilja þeir sem betur
eru settir berjast fyrir hina, eða
ætla þeir að fleyta rjómann,
eins og þeir hafa gert?“ spurði
hún. Hún sagði að- það væri
árátta atvinnurekenda að geta
ekki samið án verkfalla. Verk-
föll væru nauðvörn verkafólks.
Verkafólk tapaði mest á þeim.
Magnús sagði að forgangs-
krafan væri að lægstu laun
yrðu ekki undir 100 þúsundum
miðað við desember síðast-
liðinn. Allir ættu að geta verið
sammála um það, einnig at-
vinnuveitendur, að ekki þurfi
að vera mikil átök um þetta
kaup, sem væri verulega fyrir
neðan það sem meðalfjölskylda
þyrfti til að geta framfleytt sér.
Af fyrri reynslu væri hann þó
ekki sérstaklega bjartsýnn á að
samningar tækjust án veru-
legra átaka, nú frekar en áður.
-HH
AUGLÝST EFTIR NÝJUM
VARARÍKISSAKSÓKNARA
Hallvarður fylgir Geirfinns- og Guðmundarmálunum i dom
Embætti vararíkissaksókn-
ara hefur verið auglýst
laust til umsóknar. Umsóknar-
frestur rennur út 21. mars.
Hallvarður Einvarðsson. fráfar-
andi vararikissak'sóknari. er
settur enn um stundarsakir —
eða þar til umsóknarfrestur
rennur út — en hann tók í gær
við hinu nýja emhætti rann-
sóknarlögreglustjóra ríkisins.
Hallvarður mun m.a. sem
vararíkissaksóknari fylgja eftir
og ljúka við samningu ákæru i
Geirfinns- og Guðmundar-
málunum. Baldur Möller, ráðu-
ne.vtisstjóri í dómsmálaráðu-
nevtinu. sagði í samtali við DB í
gær. að skvnsamlegast hefði
þótt að Hallvarður hefði það
mál áfrarn á sinni könnu. enda
væri hann því nákunnugur
eftir að hafa f.vlgzt með gangi
þess allt frá upphafi.
Ekki er líklegt. að mjög
margir verði til að sækja um
embætti vararíkissaksóknara. ÓV
Nýtt eftirlit með matvælaf ramleiðslu:
Ekki gervief ni eftir geðþötta
„Þetta er f.vrst og fremst
ætlað til þess að hafa eftirlit
með neyzluvörum heilbrigðis-
lega séð. Til þessa hafa aðeins
einstaka reglur gilt um auka-
efni i matvælum og menn hafa
getað blandað í þau gerviefnum
að eigin geðþótta. þótt skömm
sé frá að seg.ja." sagði Ingimar
Sigurðsson hjá Heilbrigðisráðu-
neytinu. en í gær tók gildi
reglugerð um tilbúning og
dreifingu matvæla og annarra
neyzluvara.
Nú skal telja fram aukaefna-
bliindu á umbúðum í lækkandi
röð eftir magni hverju sinni. Ef
hámarksákvæði gilda um
einstök efni blöndunnar sam-
kvæmt aukaefnislistum skal
það auðkennt í hundraðshlut-
um af heildarþyngd blöndunn-
'ar.
í-á skulu framleiðendur eða
aðrir sem annast pökkun eða
dreifingu vara skrá nafn sitt á
umbúðir.
Ingimar sagði að fram-
leiðendur hefðu haft aðlögun-
artíma til þess að koma þessum
bre.vtingum i framkvæmd Við
því væri búizt að þeim yrði
veittur skammtíma frestur til
þess koma málum sínum í lag.
ef þeir teldu þann tíma ekki
hafa verið nægjanlegan.
Þá sagði hann einnig að nú
vrði að merkja inn á umbúðir
síðasta söludag. Um það hvort
við mættum eiga von á útsölu á
vörum. sem væru á síðasta
söludegi gat henn engu spáð, en
sagði að til dæmis í Danmörku
og Svíþjóð væri boðinn 20-50%
afsláttur af vörum á næstsíð-
asta og síðasta degi.
-EVI.
Monica Zetterlund
og Pétur Östlund
skemmta f Reykjavík
Trontmuleikarinn Pétur
Östlund er meðal hljóðfæra-
leikara i hljómsveit sænsku leik-
og söngkonunnar Monieu Zetter-
lund. sem kemur til hljómleika-
halds hér á landi 23. marz næst-
komandi.
Monica er meðal eftirsóttustu
og vinsælustu listamanna í heirna-
landi sínu. fjölhæf listakona. Með
i hljómsveit hennar eru einnig
eiginmaður hennar. Sture Áker-
berg. bassaleikari. og píanóleik-
arinn Lars Bagge, báðir í fremsta
flokki sænskra hljómlistarmanna
á sama hátt og Pétur östlund —
sem Svíarnir kalla reyndar „Is-
land“ Östlund.
Monica kemur frani með hljóm-
sveit sinni á tveimur hljómleikum
i Norræna húsinu að kvöldi 25.
marz. Síðan verða tónleikar á veg
um Jazzvakningar í veitingahús-
Monica Zetterlund ásamt manni
sinum Sture Akerberg.
inu Sigtúni að kvöldi 28. marz, en
auk þess kemur listafólkið fram á
lokuðum tónleikum i Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og loks á
skemmtun Klúbbs 32 á Hótel
Loftleiðum. Það er Klúbbur 32
sem stendur að hingaðkomu þess-
ara góðu gesta.
Monica mun að líkindum einnig
koma fram í sjónvarpi ásamt
hljómsveit sinni. Hún verður hér
í viku ásamt þeim Bagge og Aker-
berg. en Pétur h.vggst staldra við
um tíma og m.a. notfæra sér
hljóðritunarmöguleika Hljóðrita
h.f. í Hafnarfirði.
-ÓV.
Ný Vika á moréun
_
Allt um litasjónvörp
Viðtal við „ Tona á stöðinni
Grein um dóttur Freuds
Smásaga eftir Grete Lund
á
<
i
i