Dagblaðið - 02.03.1977, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. MARZ 1977.
íþróttir _______________íþróttir__________íþróttir________________íþróttir_______________íþróttir
NÚS
3JA
— eftirsigurge
f yrstu mörl
Frá Halli Halllssyni, Linz.
íslenzka landsliðið b.vrjaði með
geysilegum krafti í leiknum við
Spánverja hér í Linz í gærkvöld.
Það kom Spánverjum í opna
skjöldu — en íslenzku leik-
mennirnir yfirunnu alla tauga-
spennu með því að skora fjögur
fyrstu mörkin í ieiknum. Það var
rothögg á spánska liðið — og í
lokin skildu enn að fjögur mörk.
Ísland sigraði með 21-17 og nú er
mikill hugur í öllum í landsliðs-
hópnum að tryggja þriðja sætið í
B-keppninni. Það er innan
seilingar — og takmarkið að
komast í lokakeppni heims-
meistarakeppninnar í Danmörku
næsta ár að verða öruggt. Ekkert
nema stórslys getur komið í veg
fyrir það — íslenzka liðið þolir
sex marka tap í leik sinum við
Holland á fimmtudag, án þess að
HM-sætið í Danmörku sé í hættu.
Leikurinn gegn Spányerjum í
gær var auðveldari en reiknað
hafði verið með. Islenzka liðið réð
ferðinni allan tímann. Sýndi
mjög góðan leik — og gerði
spádóma austurrísku bláðanna að
engu. Öil höfðu þau spáð Spáni
sigri fyrirfram í leiknum.
Það var mikil og góð
stemmning eftir leikinn í
búningsherbergjunum. Astæðatil
að fagna góðum leik — og allir
hylltu Janusz Czerwinski. Hann
hefur unnið mikið afrek í þjálfun
Það er f r;
leika m<
— sagði GeirHallst
Frá Halli Hallssyni, Linz.
Nú stefnum við í A-keppnina í
Danmörku næsta ár — og við
verðum að fá Janusz Czerwinski
til að halda áfram með liðið. Við
lékum nú eins og hann hafði lagt
fyrir okkur — ákaflega taktískt
— og ég er ánægður með leikinn,
sagði Geir Hallsteinsson í gær-
kvöld.
— Það var frábært að leika með
þeim Axel og Ölafi H. Jónssyni í
gær — mjög ánægjulegt og þeir
komust mjög vel frá leiknum. Ég
var ákveðinn í að keyra mjög í
byrjun leiksins — og lagði mig
þar allan fram. Það heppnaðist.
Hins vegar varð ég þreyttur,
þegar líða tók á leikinn, enda
hafði ég ákaflega erfiðan mann í
spánska liðinu gegn mér, þegar
Spánverjar voru í sókninni. Hann
var stórhættulegur, hornamaður-
inn sá, sagði Geir ennfremur, eni
leikur íslenzka liðsins snerist um
hann og Geir sýndi oft snilldar-
takta. Var ákveðinn og stjórnaði
liðinu af mikilli festu.
— Við náðum hreint stórkost-
legum leikköflum og Öli Ben. var
frábær, sagði Axel Axelsson eftir
leikinn. Ég er ánægður með minn
hlut. Er kominn i réttan ham.
Var reyndar að komast i gott
form, þegar ég meiddist á fæti
heima i landsleik — en nú er
þetta alit komið aftur. Eg hef
„fundið mig‘‘ í æfingaleikjunum
og nú blómstraði allt, sagði Axel
ennfremur. Hann mátti líka vera
ánægður með leikinn. Hans hlut-
ur var snilldarlegur.
— Það er stórkostlegt að leika í
markinu, þegar svona vel gengur.
Eg komst fljótt í gott stuð og það
munar öllu, þegar varnarleikur-
inn er svona góður, sagði Ölafur
Benediktsson eftir leikinn. Hann
varði 11 skot i leiknum — þar af
níu skot af línu og var mjög
Slík markvarzla sést
ekki í A-Þýzkalandi!
— ísland má tapa fyrir Hollandi með sex marka mun
0^!ír%,
^GRUPPE
^1377 '*N
Staðaníriðlinum
Staðan í milliriðlinum í Linz er
nú þannig:
A-Þýzkaland 2
Spánn 2
ísland 2
Ilolland 2
Næstu leikir á
ísland — Holland.
— Spánn.
0 48-33 4
1 42-37 2
1 41-44 2
2 29-46 0
fimmtudag.
A-Þýzkaland
Geir Ilallsteinsson stjórnaði spili íslenzka iiðsins snilldarlega í gær.
Frá Halli Hallssyni, Linz.
tslenzka liðið lék mjög vel í
þessum leik við Spánverja og
markvarzla Ólafs Benediktssonar
var i bezta heimsklassa. Hún var
gæðaflokki betri, en við í Austur-
Þýzkalandi getum gert okkur
vonir um, að markverðir okkar
sýni, sagði eini blaðamaðurinn
frá Austur-Þýzkalandi, sem skrif-
ar um B-keppnina, Kohlenz, eftir
leik íslands og Spánar. Og hann
við. Auk Ólafs Ben. léku
þeir Ólafur H. Jónsson. Axel
Axelsson og Geir Hallsteinsson
snilldarlega.
Það fór ekki á milli mála. Betra
liðið sigraði. íslenzka liðið var
sterkara en okkar, sagði Jose
Perramon, markvörður og
leikreyndasti maður spánska
liðsins með 83 landsleiki eftir
leikinn. Okkar lið var í betra
formi fyrir þremur mánuðum —
en einhver þreyta komin í leik-
menn og við erum á niðurleið. En
íslenzka liðið kom okkur vissu-
lega á óvart með sínum góða leik.
Það lék betur en við reiknuðum
með og þeir Ölafur H„ Axel og
Víðar Símonarson voru beztu
menn liðsins, sagði mark-
vörðurinn ennfremur.
Eftir leikinn fór Ölafur H.
Jónsson í „dóptest" — það er
lyfjapróf ásamt einum leikmanni
Spánverja og ekkert athugavert
kom fram h.já þeim. Þar var allt í
lagi — og það þekkist áreiðanlega
ekki — eða svo er að minnsta
kosti talið — að leikmenn í hand-
knattleik noti örvandi lyf.
Keppnin í B-milliriðlinum heldur
áfram á fimmtudag hér í Linz. Þá
leika Austur-Þýzkaland og Spánn
— og ísland og Holland. Þess má
geta, að íslenzka liðið má tapa
leiknum við Holland með sex
marka mun án þess að úrslita-
sætið í HM í Danmörku næsta ár
sé í hættu. Hins vegar komast
Hollendingar í úrslitin í Dan-
mörku ef þeir vinna ísland með
sjö marka mun — möguleiki.sem
allir hér útiloka, jafnt Hol-
lendingar, íslendingar og aðrir.
Þar á meðal austurríska pressan.
Manch. City sigraði á
tveimur vítaspyrnum!
á eftir Liverpool í 1. deildinni ensku
ánægður. Einn leikmaður City
hafði hlaupið inn í vítateiginn —
og dómarinn lét taka vítaspyrnu í
3ja sinn. Enn sendi Tueart
knöttinn hægra megin við ind-
verska markvörðinn og í mark. Þá
var Fitzpatrick ánægður.
Þremur mín. síðar var aftur
dæmd vítaspyrna á Norwich.
Tueart tók spyrnuna og skoraði
— já, alveg rétt, sendi knöttinn
hægra megin við Keelan í mark.
Pressa Manc. City var þung loka-
kafla leiksins, en Keelan bjargaði
liði sínu frá miklu stærra tapi.
Úrslit i gær urðu þessi:
1. deild
Everton—Arsenal 2-1
Man. Cit.v—Norwich 2-0
Bob Latchford náði forustu
fyrir Everton snemma i leiknum
og á 62. mín. skoraði David Jones
annað mark Everton. Rétt í lokin
skoraði Malcolm MacDonald eina
mark Arsenal. 22. mark hans á
leiktímabilinu. Þrir leikmenn Ar-
senal voru bókaðir.
2. deild
Wolves—Blackpool 2-1
Ken Hibbitt skoraði sigurmark
Úlfanna fjórum mín,. fyrir leiks-
lók. Daley skoraði fyrsta mark
leiksins. Hatton jafnaði fyrir
Blackpool.
3. deild
Bury—Wrexham 0-2
Oxford—Shrewsbury 4-2
4. deild
Newport—Uoncaster 1-2
Rochdale—Southport 3-0
Swansea—Bradford 2-3
Skozka úrvalsdeildin
Dundee Utd.—Partick 0-0
Coventry keyti í gær Jim Hilton
frá Sunderland fyrir 40 þúsund
pund. Holton, sem lengi lék með
Manch., Utd. getur ekki leikið
strax með Coventry vegna
meiðsla.
— ogernústigi
Maneh. City sigraði Norwich
með mörkum úr tveimur vita-
spyrnum t 1. deildinni ensku í
gær og er nú aðeins einu stigi á
eftir Liverpool í deildinni. Hefur
leikið einum leik ntinna. Þá náðu
Úlfarnir öðru sæti í 2. deiid með
sigri á Blackpool — og eru nú
aðeins einu stigi á eftir Chelsea.
Hafa samt leikið tveimur leikjum
minna.
Leikurinn við Manchester var
óvenjulegur. Þegar 30 mín. voru
eftir af leiknum var brotið á
Dennis Tueart innan vitateigs
Norwich. Dómarinn Roger
Fitzpatrick dæmdi þegar víta-
spyrnu. Tueart tók hana sjálfur
og sendi knöttinn hægra megin
við Kevin Keelan í mark Norwich.
Dómarinn lét hann taka spyrnuna
aftur —og aftur sendi Tueart
kniittinn hægra megin við Keelan
í tnark. Ekki var dómarinn
Notaðir
bílar
til sölu
Wagoneer 8 cyl.
sjálfskiptur, ‘71, ‘73, ‘74.
Wagoneer 6 cyl '71, '72, '73
'74.'75.
Cherokee 8 cvl. sjálfskiptur
'74
Cherokee 6 c.vl. beinskiptur
'74.'75.
Jeepster commando, bíll í
sérflokki, '73
Jeep CJ5 með blæju '74, '75
Willy’s jeep '64, '65, '66, '67
Hornet '74, '75
Hornet Hatchback '74, '75
Matador coupé '74
Galant grand luxe '74
Galant dc luxe '84
Lancer 1200 2ja og 4ra dyra
'74. '75
Lancer 1400 4ra dyra '74
Sunbeam Alpina '70
Sunbeam Arrow '70
Hunter '70,'71,'72, '74
Minx '68
Sunbeam 1250 og 1500 '70,
'71, '72, '73
Broneo '66, '67, '73, '74
VW '71, '73
Austin Mini '73, '74
Morris Marina '74
Cortina '70, '71, '73, '74
Willy’s FC 150, fram-
b.vggður með húsi '65
Saab 96 '72
Benz 230 sjálfskiptur með
aflstýri og -bremsum '72
Lada '74, '75
Rambler American '67
Frambyggður Rússajeppi
(Camper) '72
Fiat 128 '75
Dodge Chalanger '74
NYIR BILAR:
Cherokee '77
Wagoneer ‘77
Sunbeam 1600 super ‘77
Lancer 1200 og 1400 ‘77
Galant Sigma '77
Jeep CJ5 ‘77
Getum bœtt við bílum
í sýningarsal okkar og
ó söluskrá.
Allt á sama stað
EGILL.
VILHJALMSSON
HE Laugavegi 118-Simi 15700