Dagblaðið - 24.03.1977, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977.
13
íþróttir
Stórsigur
Evrópumeist
araTékka!
Staðaní
l.deild
Úrslit leikja í gærkvöld:
FH—Fram 26-22
Haukar—Valur 19-20
Staðan í 1. deild er nú:
Valur 10 7 0 2 201-167 14
Víkingur 9 7 0 2 220-192 14
Haukar 10 5 2 3 199-197 12
FH 9 5 1 3 210-188 11
ÍR 9 4 2 3 180-188 10
Fram 9 3 1 5 182-191 7
Þróttur 8 0 3 5 146-174 3
Grótta 9 0 18 171-212 1
Markhæstu leikmenn nú eru:
Hörður Sigmars., Haukum 75/22
Þorbjörn Guðm.son., Val 57/10
Jón Karlsson, Val 56/20
Viðar Símonarson FH 56/22
Geir Ilallsteinsson FH 53/10
Ólafur Einarsson, Vík., 51/9
Konráð Jónsson, Þrótti 41/6
Pálmi Pálmason, Fram 42/20
Björgvin Björgvinsson, Vík.40/2
Þorb. Aðalsteinsson Vík. 38/—
jón Pétur Jónsson, Val 38/-
Þór Ottescn, Gróttu 37/-
Vilhj. Sigurgeirsson, ÍB 26/21
Brynjólfur Markússon, ÍR 35/-
Viggó Sigurðsson, Víking 34/8
Árni Indriðason, Gróttu 33/21
Þorbjörn Guðmundsson var tvímælalaust maður leiksins í gærkvöld — skoraði 10 mörk á f jölbreytilegan hátt. Hér sKorar þesst sterki leik-
maður af línu í gærkvöld. Gunnar Einarsson kemur engum vörnum við og Svavar Geirsson og Elís Jónasson fylgjast með. DB-mynd —
Sveinn Þormóðsson.
STEFNIR í UPPGJÖR
VÍKINGS 0G VALS!
—eftir sigur Vals gegn Haukum 20-19 í 1. deild Islandsmótsins ígærkvöld.
Valur náði Víking þar með að stigum — bæði með 14 stig
Valur vann ákaflega þýðingar-
mikinn sigur á Haukum í 1. deild
Íslandsmótsins í handknattleik í
gærkvöld suður í Hafnarfirði —
en sigur Vals var naumur 20-19 —
sigur engu að síður og 2 þýðingar-
mikil stig í Hlíðarenda. Þessi
sigur Vals styrkir þá skoðun að
baráttan um íslandsmeistara-
titilinn verði í ár milli Vals og
Víkings.
Já, tvö stig fóru í Hlíðarenda en
ætli Valur að eiga möguleika á
meistaratitli í vetur verður liðið
að sýna betri handknattleik en í
gærkvöld. Sannleikurinn er sá að
sá handknattleikur sem félögin
sýndu í gærkvöld var ákaflega
slakur — mikið um mistök á báða
bóga og Valur sigraði einfaldlega
vegna þess að Haukar gerðu fleiri
mistök.
Leikurinn í gærkvöld var
leikur mistakanna eins og sjá má
ef litið er á eftirfarandi. Haukar
voru ákaflega slakir í fyrri hálf-
leik og Valur hafði yfir 13-9 í
leikhléi. Hvað eftir annað misstu
leikmenn knöttinn klaufalega,
sendu hann einatt beint í
hendurnar á Valsmönnum. 1
byrjun síðari hálfleiks brá svo við
að það voru Valsmenn sem gerðu
mistökin — já, hreint ótrúieg mis-
tök. Haukar skoruðu þá 6 mörk
gegn 1 marki Valsmanna og
breyttu stöðunni í 15-14 sér í vil.
Þá hljóp hins vegar allt í baklás
hjá Haukum og næstu 5 mörk
voru Vals — þeir breyttu þá
stöðunni í 19-15 sér. í vil —
Haukar gerðu sig seka um hrein
byrjendamistök. En hvað gerðist
næst — jú, það var komið að
Valsmönnum að gera mistökin og
Haukar skoruðu 4 síðustu mörkin
gegn 1 marki Valsmanna. Haukar
voru með knöttinn þegar leik-
urinn var flautaður af en tókst
ekki að nýta sér það. Slíkur var
leikurinn í gærkvöld — sannar-
lega leikur mistakanna en Vals-
menn náðu því sem þeir ætluðu
sér — tveimur stigum og baráttan
miiii Víkings og Vals þvi í al-
gleymingi. Haukar eygja nú hins
vegar sáralitla möguleika á
meistaratitili — til þess gerðu
þeir sig seka um of mörg mistök
— byrjendamistök í gærkvöld.
Ef við snúum okkur að leiknum
í gærkvöld þá mættu Valsmenn
mjög ákveðnir til leiks og skoruðu
tvö fyrstu mörk leiksins en
Haukar náðu að jafna 2-2 á 4.
mínútu. Valsmenn höfðu undir-
tökin í fyrri hálfleik — voru yfir-
leitt 2-3 mörk yfir og mest 4 mörk
í leikhléi, 13-9. Síðan kom að
síðari hálfleik — um hann þarf
ekki að hafa mörg orð. Valur stóð
uppi sem sigurvegari 20-19.
Valsmenn sóttu tvö
stig suður í Hafnarfjörð í
gærkvöld, sannarlega dýrmæt
stig. En það hlýtur að vera Vals-
mönnum íhugunarefni að enn
mæðir markaskorun allt of mikið
á fáum mönnum — nokkuð sem
varð liðinu að falli gegn Víkingi á
mánudag. Þorbjörn Guðmunds-
son átti sannarlega stórleik í gær-
kvöld — sterkur í vörn og
þættulegur í sókn og hann skoraði
10 mörk í leiknum — á
fjölbreytilegan hátt, sum af línu,
önnur með gegnumbrotum og enn
önnur með þrumuskotum. Já,
Þorbjörn er sannarlega vaxandi
maður. Þeir Jón Pétur og Jón
Karlsson skoruðu 4 mörk hvor —
en Jón Karlsson var tekinn úr
umferð lengst af I síðari hálfleik.
Þar eru komin 18 af 20 mörkum
Vals — en á mánudag skoruðu
þeir þrír 19 af 20 mörkum Vals.
Stefán Gunnarsson skoraði siðan
2 mörk Vals.
Haukar voru ákaflega ólíkir
sjálfum sér, ef mið er tekið af því
að þeir léku suður í Hafnarfirði.
Leikmenn gerðu sig seka um
slæm mistök og virtist sem mikil
taugaspenna væri I liðinu. Það
var afdrifaríkt fyrir Hauka að
Hörður Sigmarsson var aðeins
skugginn af sjálfum sér en hins
vegar dreifist markaskorun á
fjölda leikmanna. Ólafur Ólafss.
skoraði flest mörk Hauka, 4 — öll
úr vítaköstum. Hörður Sigmars-
son, Ingimar Haraldsson og Guð-
mundur Haraldsson skoruðu 3
mörk hver. Sigurgeir Marteinsson
og Elías Jónasson skoruðu 2 mörk
hvor og þeir Jón Hauksson og
Þorgeir Haraldsson 1 mark hvor.
Leikinn dæmdu þeir Hannes Þ.
Sigurðsson og Karl Jóhannsson og
höfðu þeir góð tök á leiknum þó
ef til vill megi deila á einstök
atriði í dómgæzlu þeirra:
Evrópumeistarar Tékkó-
slóvakíu sigruðu Grikki 4-0 í vin-
áttulandsleik þjóðanna sem fram
fór í Prag í gærkvöld. Tékkar áttu
ekki í erfiðleikum með Grikkina
en leikurinn var liður í undirbún-
ingi Tékka fyrir landsleik gegn
Wales sem fram fer í Wrexham á
miðvikudag en sá leikur er ein-
mitt iiður i undankeppni HM.
Skotar eru í riðlinum ásamt
Wales og Tékkum.
Evrópumeistararnir tóku leik-
inn létt — og léku 15 leikmenn —
það er f jórir varamenn komu inn.
Þegar á 9. minútu skoruðu
Tékkar — Panenka skoraði beint
úr aukaspyrnu og á 18. mínútu
skoraði Nehoda með skalla eftir
sendingu Masny.
Aðeins mínútu síðar kom
þriðja markið og það skoraði
Gogh — þrumuskot hans af 25
metra færi hafnaði efst í hægra
markhorninu og þannig var
staðan í leikhléi.
Þá settu Tékkar inn varamenn
sína — fjóra — og yfirburðir
þeirra voru þrátt fyrir það miklir.
En aðeins eitt mark kom í síðari
hálfleik. Það kom á 56. mínútu —
Dobias skaut þá þrumuskoti sem
markvörður Grikkja varði mjög
vel í horn. En það reyndist
skammgóður vermir — Masny
skoraði með skalla úr hornspyrn-
unni og stórsigur Tékka varð stað-
reynd. Stórsigur sem enn eykur
sigurlíkur þeirra í HM-riðiinum
en þar hafa Tékkar þegar sigrað
Skota 2-0.
FH sigraði
Víking
FH sigraði Víking í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik
kvenna í gærkvöld — 16-9 voru
lokatölur leiksins en Víkingur
byrjaði leikinn vel — komst í 2-0
en jafnt var í leikhléi. i síðari
hálfleik komu hins vegar yfir-
burðir FH í Ijós — hvað eftir
annað skoruðu FH-stúlkurnar úr
hraðaupphlaupum — nokkuð sem
Víkingar hafa átt ákaflega erfitt
með að verjast í vetur og kostað.
ófá stig.
Víkingur er enn stigi á undan
Breiðabliki — hefur hlotið 4 stig,
Blikarnir 3 stig og er baráttan á
botninum hörð. FH siglir hins
vcgar á milli skers og báru —
getur hvorki fallið né á mögu-
leika í íslandsmeistaratitli.
-h. halls.
Á leiðinni til borgarinnar
,Hvað er að Nítu.
Rikki'.'Ekki neit,
vona ég.
Hún varð mjög
veik, þegar þú
fórst til Evrópu
en iæknirinn
naði henni á
strik.
[Hún vill sennilega
lekki tala við mig
Staðreyndin er,
að hún ætlar að