Dagblaðið - 24.03.1977, Page 14

Dagblaðið - 24.03.1977, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977, „Er sko ekkert hræddur —held mér ekki einu sinni ífaxið” „Ég er búin að vera knapi I 14 ár eða síðan ég var 10 ára,‘ sagði hinn hressi kennari í reið skóla Fáks, Guðrún Fjeldsted frá Ferjubakka í Borgarfirði Hún var um það bil að fara a(. ríða út með 8 nemendum á mis munandi aldri. Sumum sem höfðu verið áður í námskeiðum og öðrum sem voru byrjendur Guðmundur, sem er 9 ára, vai einn af nýgræðingunum. „nei. nei, ég er sko ekkert hræddur og er búinn að hleypa einu sinni. Ég hélt mér ekki einu sinni í faxið,“ sagði hann kot- roskinn og klappaði Stjarna. Flestir voru á hestum sem Fákur átti en einn var á eigin hesti. „Hann heitir Narfi, ja eiginlega á pabbi hann en hann er alltaf að vinna og má aldrei vera að því að fara á hestbak,*' sagði Jóhann 12 ára gamall. „Þetta er í þriðja sinn sem ég fer á námskeið hjá Fáki. Jú, það er voða gaman.“ I sama streng tók ung 13 ára meyja, Gná kvaðst hún heita og hestur- inn Þytur. Hún fékk bakterí- una í sveitinni. Hún var á Hliðarenda í Breiðdal á Aust- fjörðum. „Jú, kannski verð ég bóndakona. Ha, bóndi sjálf. Hví ekki það? Hver veit?“ Fákur er nýbyrjaður með reiðskóla og kostar það 3.500 kr. fyrir 5 skipti, 2 tíma í senn. Innifalinn er bæklingur um nesta. Þrjp námskeið eru á dag 9.30—11.30, annað 1.30—3.30 og það siðasta 4—6. „Það hefur aldrei verið önnur eins aðsókn og nú. Það er sennilega góða veðrið,“ fræddi Guðrún okkur á. Hún verður að kenna fram á vorið. „Jú, ég ætla >að verða bóndi,“ sagði hún. Er búin að kaupa mér jörð meira að segja og er bæði með kindur og vitan- lega hesta. Hver sér um búið?„Það er kærastinn auðvitað. Jú, jú, ég fer auðvitað heim um helgar. Það dugar ekki að hann fari einn á sveitabölin." Þeir sem eitthvað hafa fylgzt með hestamennsku vita að Guðrún er frægur knapi. Hún tók öll gullin til dæmis á nýjum skeiðvelli sem vígður var á Kaldárbakkamelum á Snæfells- nesinu um verzlunarmanna- helgina í fyrra. Hún er einnig göður laxveiðimaður og er leið- sögumaður hjá föður sínum við Grimsá á sumrin. Það er þegar útlendingar eru að veiða þar. í ágúst á sumrin rekur hún svo reiðskóla að Ferjubakka. „Krakkarnir í reiðskólanum hérna byrja á því að læra að beizla, kemba og leggja á,“ fræddi Guðrún okkur á. Nú voru allir komnir á bak og óróleika gætti í fari hinna ungu nema. Við kvöddum við svo búið og þeir þeystu úr hlaði. EVI Það er hressilegur hópur sem er á reiðnámskeiði hjá Fáki. Guðrún Fjeldsted kennari stendur til vinstri en Margrét Ósk Harðardóttir og Haukur Svavarsson bæði 15 ára úr Gagnfræðaskóla Hveragerðis eru þarna lika með. Þau voru heila viku i starfskynningu hjá Dagblaðinu. Vitaniega tóku þau viðtal við krakkana líka. Margrét tekur hlutverk sitt aivarlega þegar hún ræðir við hana Sveinbjörgu. DB-myndir Sv. Þorm. Ungir hesta- áhuga- menn „Ég ætlá kannski að kaupa mér hest í sumar," sagði Sveinbjörg Guðna- dóttir 12 ára nemandi í reið- skóla Fáks i viðtali við DB er blaðamenn komu þar við. Það var annar tíminn hennar í reiðskólanum í sumar og svo hafði hún veirð þar í fyrra. „Ég verð í Geitaskarði í Langadal, A- Hún. í sumar hjá hreppstjór- anum og ætla að biðja hann að útvega mér hest til að kaupa. Mig langaði til að reyna þetta, ég hef áhuga á hestum og svo var frændi minn i þessu.“ Hún sagðist ekki vita hve lengi hún myndi halda áfram að vera í reiðskóla. móh *>*>*(#* petta er i fyrsta sinn sem hann Guðmundur fer i reiðskóla og hann er sko ekkert hræddur á hestbaki. Hann pabbi hans Jóhanns má aldrei vera að því að fara á bak og Jóhann nýtur góðs af þvi að þá getur hann haft Narfa á meðan.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.