Dagblaðið - 13.05.1977, Blaðsíða 9
I)A(;I5I,A»H). K(ÍSTUI)A(IUH 13. MAÍ 1977.
9-
Vestf jarðatogarar ásakaðir um smáf iskadráp á
Vestfjarðamiðum:
Allir togarar
okkar veiða þar
Danir borða
íslenzkt skyr sér
til heilsubötar:
Nær
helm-
ingi
dýrara
en okkar
Það er kannski dálítið til
að vega upp á móti frétnun
okkar um hagstæðan inn-
flutning á landbúnaðar-
afurðum frá Danmörku, að
skýra frá verðlagi á íslenzku
skyri í Danmörku.
Þar í landi er skyr búið til
á íslenzkan hátt í mjólkur-
búinu í Vigen. Fimm kílóa
pakkningar þar kosta 52,25
danskar krðnur, eða sam-
svarandi 343 krónum á kíló.
Hér á landi kostar kíló af
skyri 176 krónur í smásölu.
Það borgar sig greinilega
ekki að kaupa íslenzkt skyr
frá Dönum.
Skyrgerð í Vigen hófst
upphaflega með því að
Sveinn Björnsson bað Carl,
Jörgensen mjólkurbússtjóra
að framleiða skyr fyrir sig
og fjölskyldu sína. Jörgen-
sen, sem nú er 76 ára gamall,
hafði lært kúnstina þegar
hann starfaði hjá Mjólkur-
búi Flóamanna, en þangað
kom hann 1929. Eftir að til
Vigen kom var framleiðslan
aðeins örfá kíló á viku.
1 hittifyrra var ársfram-
leiðslan orðin 148 tonn. Skyr
þetta er ósúrt og er uppfinn-
ing Jörgensens, súra skyrið
átti ekki alls kostar við
bragðlauka Dana. Sæta
skyrið kallar hann Salma. Er
framleiðslan mikið notuð,
meðal annars 1 alls konar
salöt.
Skyr Jörgensens er eink-
um selt í búðum sem sér-
hæfa sig í sölu á heilsubótar-
vörum. JBP
— þeir vestf irzku aðeins 9 á móti 50
Yfirskrift
bænadagsins íár:
Helgi lands
oglífs
Biskup Islands hefur
minnt sóknarpresta landsins
á bænadaginn, sem er að
þessu sinni 15. maí, á sunnu-
daginn kemur. I fyrra var
beðið fyrir „giftu og
góðum lyktum í landhelgis-
málinu“. Munu flestir sam -
mála um að svo varð.
Að þessu sinni verður
yfirskrift bænadagsins
„Helgi lands og lífs,“ niður-
lagsorð ályktunar kirkju-
þings varðandi góðar lyktir
landhelgismálsins.
„Mættum vér læra að um-
gangast landið, auðlindir
láós og lagar, og þau gæði
einnig, sem verða ekki
metin til fjár, í ábyrgri
vitund um helgi þeirrar
náttúru, sem Guð skapar,
nærir og prýðir", segir
biskup í bréfi sínu til presta.
JBP
„Það hefur alveg gleymzt í um-
fjöllun fjölmiðla að undanförnu
þess efnis að Vestfjarðatogar-
arnir séu að drepa allan fisk á
Vestfjarðamiðum, aó vestfirzku
togararnir eru aðeins níu, en
aðrir íslenzkir togarar 50, sem
allir veiða þar líka,“ sagði Jón
Trausti, fréttaritari DB á Flateyri
í viðtali við DB.
Hann sagði að vestfirzku tog-
ararnir bæru af hvaða aflabrögð
snerti, en eftirlit væri með afla-
samsetningu þeirra á vegum úti-
bús Rannsóknastofnunar fiskiðn-
aðarins. Hafi athuganir hennar
ekki leitt í ljós óleyfilegt hlutfall
smáfisks í aflanum.
Vestfirzku togararnir eru Bessi
frá Súðavík, ísafjarðartogararnir
Guðbjörg, Guðbjartur, Júlíus
Geirmundsson og Páll Pálsson,
Dagrún frá Bolungarvík, Gyllir
frá Flateyri, Trausti frá
Suðureyri og Framnes frá
Þingeyri.
Að sögn Jóns hefur Gyllir aflað
mjög vel siðan hann kom til Flat-
eyrar fyrir um ári og hefur at-
vinnuástand gjörbreytzt síðan til
batnaðar. Oft hefur nótt verið
lögð við dag við vinnslu afla
skipsins og er unnið í frost, ^alt,
skreið og harðfisk. Tveir línu-
bátar hafa að undanförnu verið
gerðir út frá staðnum og gengið
vel.
G.S.
rr
Þorskur ísaf jarðartogaranna er af öllum stærðum, eins og þessi mynd
ber með sér. Myndina tók Sigurður Grímsson nýlega um borð i
Guðbjarti ÍS og birtist hún i Vestfirzka fréttablaðinu.
NÝ BÍLASALA - NÝ BILASALA - NY BÍLASALA - NY BILASALA
OPNUM A MORGUN A
VITATORGI
SÍMAR 29330 -29331
BÍLASALAN '
SPYRNAN
ALLT NYTT NEMA STAÐURINN
NY BÍLASALA - NÝ BILASALA - NY BILASALA - NY BILASALA -
F rotte velur solfatnaður í úrvali
Hagstætt verð — Póstsendum um land allt “ía*g**£“dag
II I{ #11 Tl{ TÍZKUYliRZLlJN
J w mW w J JBL W Hamraborg 1 — Sírni43711 — Kópavogi
NY BÍLASALA - NÝ BÍLASALA