Dagblaðið - 31.08.1977, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. AGUST 1977.
Laus staða
Einn kennara vantar að Gagnfræða-
skóla Húsavíkur. Uppl. gefur skóla-
stjóri, Sigurjón Jóhannesson, í síma
96-41166 eða 96-41344.
Skólanefnd.
Fjölbrautaskólinn
á Akranesi
Hjúkrunarfrœðingur óskast til kennslustarfa
við fjölbrautaskólann. Nónari uppl. í síma
93-1672.
Skólanefnd.
Skóli Emils
KENNSLUGREINAR:
Harmoníka,
munnharpa,
gítar, píanó,
melódíka og
rafmagnsorgel.
Hóptimar og einkatímar.
Innritun daglega.
Sími 16239.
Emil Adólfsson,
Nýlendugötu 41.
Blaðburðarbörn óskast
strax i eftirtalin hverfi:
Skjólin
Þórsgötu
Suðurlandsbraut
Sogaveg fró 50 — út
Bergþórugötu
Hótún, Miðtún
Bergstaðastrœti
Laufósveg
Hringbraut
Tjarnargötu, Suðurgötu
Austurstrœti, Hafnarstrœti
Norðurbrún, Austurbrún
Barðavog, Eikjuvog
KÓPAVOGUR austurbœr:
Hamraborg og Traðir
GARDABÆR:
Flatir
Uppl. í síma 27022
HMEBUUUB
Óeirðirnar á írlandi:
Fjárhagsstuðningur
ef írar semja frið
— segir Carter forsetí, eftir fund með írsk-
ættuðum þingmönnum.
— Edward Kennedy lýsir sig ánægðan með
þessa ákvörðun stjömarinnar
Carter forseti Bandaríkjanna
lýsti því yfir i gær að stjórn
hans myndi veita Irum fjár-
hagsstuðning ef þeir settu
niður deilur. Hann sagði að,
Bandaríkjamenn tækju enga
afstöðu til deiluaðila, mótmæl-
enda og kaþólikka, en stjórnin
myndi veita fjármunum I at-
vinnuvegina.
Forsetinn lagði mikla
áherzlu á að sættir tækjust og
þá með hjálp Breta og Irska
lýðveldisins. Carter sagðist
vera sammála þeim sem mót-
mæltu óeirðum á Norður-
trlandi.
Talið er að yfirlýsingin hafi
komið til vegna nýlegs fundar
Carters með þingmönnum sem
eru af frsku bergi brotnir.
Þeirra á meðal var þingmaður-'
inn Edward Kennedy, sem er af
írskum ættum sem kunnugt er.
A fundi þingmannanna með
forsetanum hvöttu þeir hann til
Pils skal það vera, segja tízkukóngarnir þegar þeir ákveða i
hverju kvenfólkið á að vera í vetur. Þeir taka ekkert tillit til hvar á
hjara veraldar konan er, hún á bara að vera i pilsi í vetur. Það á að
vera köflótt og fellt. Hún getur bara lokað sig innandyra ef hún
getur ekki eignazt eitt slík*. Stúikan hór á myndinni er fvrirmyndin
og nú er bara að horfa vel á myndina og marsora svo í búðirnar, það
hlýtur að fást svona pils einhvers staðar.
að gera eitthvað sem gæti orðið
til aó setja niður deilur mót-
mælenda og kaþólskra.
Kennedy hefur lýst ánægju
sinni með þessa yfirlýsingu for-
setans og það hafa einnig fleiri'
þingménn gert.
Um leið og Carter forseti til-
kynnti um fjárhagsstuðning við
Ira ef þeir settu niður deilur
sinar bað hann um að stuðningi
við hvorn málstaðinn sem væri
yrði hætt og aðilum ekki látin i
té tæki eða vopn.
Haavik
lézt úr
hjarta-
slagi
— segir ískýrslu
sem gerðvar
vegna dauða
hennar
Gunvor Galtung Haavik
dó eðlilegum dauðdaga,
segir í skýrslu sem gerð var
eftir rannsókn á dauða
hennar í fangelsi i Noregi.
Gunvor hafði játað á sig
njósnir fyrir Sovétríkin i
fjölda ára. Hafði hún játað
sekt sína rétt áður en hún
lézt.
I skýrslunni um dauða
hennar segir að hún hafi lát-
izt af hjartaslagi. I krufn-
ingu var leitað eftir eitri i
lfkama hennar en það fannst
ekki.
Sprengju-
maðurinn
fundinn?
— lögreglan í
Gladsaxe hefur
fengið ótal
ábendingarfrá
fólki
Lögreglan í Gladsaxe,
einni útborg Kaupmanna-
hafnar, telur sig nú hafa
fengið nokkuð öruggar vis-
bendingar um hver maður
sá er sem hefur sett
sprengjur í símaklefa í bæn-
um að undanförnu.
Maðurinn hefur sézt við
símaklefa í bænum og ná-
kvæmar lýsingar eru til af
honum, að sögn lögreglunn-
ar. Hún segir að líklegt sé að
hér sé kominn maðurinn
sem kallar sig Hinn ósýni-
lega X.
Hingað til hafa aðeins
tvær sprengjur sprungið i
simaklefum, sú sfðasta var
uppgötvuð nógu snemma til
að ekki hlytust slys af.
Lögreglan í Gladsaxe
hefur fengið ótal ábend-
ingar um hver maðurinn sé
og einnig hefur fólk verið
ófeimið við að tilkynna
sprengjur í tíma og ótíma.
Maðurinn sem lögreglan
leitar nú að er 35 til 40 ára,
hár og grannur með dökkt
hár.