Dagblaðið - 31.08.1977, Side 15
Það er ákaflega fátítt að
hljómsveitir af Austfjörðum
sæki Reykvíkinga heim. Ein
slík er þó komin í bæinn og
skemmtir á danshúsum þar um
helgina. Jafnvel stendur til að
meðlimirnir verði kyrrir syðra
og starfi þar í vetur. — Dag-
blaðið ræddi við einn úr
Amon Ra, Sævar Sverrisson,
fyrir skömmu.
„Okkur langar mikið til að
halda hópinn 1 vetur og leika
þá á Suðurlandinu," sagði
Sævar. ,;Einn okkar, Gunnar
Kristinsson orgelleikari,
AMON RA —
úti undir vegg á
æfingastöðvum
sínum á Nes-
kaupstað.
Hljómsveitin er
nú komin á
suðlægari mið.
DB-mynd: Ragnar Th.
SigurAsson.
hættir þó og fer til náms í
Vínarborg. Við þurfum því að
útvega okkur nýjan orgel-
leikara í hans stað.“
Sævar vildi ekkert um það
segja, hvort einhver einn
orgelleikari kæmi öðrum
fremur til greina. Hann af-
þakkaði þó strax boð Dag-
blaðsins um að auglýsa eftir
manni, svo að eitthvað er
greinilega að gerast.
Amon Ra leikur í Klúbbnum
annað kvöld, fimmtudags-
kvöld. A laugardag skemmtir
hljómsveitin á dansleik
Rockvakningar og loks aftur í
Klúbbnum á sunnudagskvöld.
Þá verða mannaskipti og
æfingar hefjast að nýju.
Sævar Sverrisson starfaði
síðasta vetur með hljómsyeit-
inni Cirkus. Hann var að því
spurður, hvort Amon Ra flytti
svipaða tónlist og. sú
hljómsveit. Hann kvað nei við
því.
„Við höfum alveg sleppt
þessari diskótekmúsík og
einbeitt okkur að vandaðri
hlutum og öllu þyngri," sagði
hann. „Við erum með lög frá
Santana og þess háttar hljóm-
sveitum. Við ætlum jafnvel að
þyngja prógrammið enn frekar
I framtíðinni.“
Mikið hefur verið skrifað
um austfirzkar hljómsveitir I
Dagblaðinu og sýndist þar sitt
hverjum. Nú gefst
Sunnlendingum loksins kostur
á að heyra i einni slikri, en enn
um sinn verður allt á huldu
um getu Völundar, Heródesar,
Högna hrekkvísa og hvað þær
nú heita allar saman.
-at-
ASGEiR1
TÓMASSON
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. AGUST 1977,
LINDA McCARTNEY —
þau hjón eiga saman tvær
dætur fyrir.
Linda Mc-
Cartneyá
vonásér
Linda McCartney er
sannarlega útivinnandi hús-
móðir. Síðan hún giftist manni
sínum, Paul McCartney, hér á
árunum hefur hún hlotið fjór-
ar gullplötur fyrir góða
plötusölu. Ekki gerði hún
þetta ein, heldur með hljóm-
sveit þeirra hjóna, Wings.
Auk þess sendi Linda frá sér
metsölubókina Linda’s
Pictures (Myndir Lindu) fyrir
nokkru og loks ræktar hún
stærðar matjurtagarð á býli
þeirra hjóna í Skotlandi.
Þrátt fyrir allt þetta annriki
hefur Linda gefið sér tíma til
að eignast með Paul tvær
dætur — Mary og Stellu, — og
nú á hún von á þriðja barninu.
Meðan hún bíður eftir fæðing-
unni vinnur hún I fljótandi
hljóðveri, sem liggur við festar
í Jómfrúreyjum.
MaCartneyhjónin hafa enn
ekki tekið ákvörðun um hvort
barnið eigi að fæðast í Bret-
landi eða Bandaríkjunum, en.
Paul tjáði blaðamönnum fyrir
skemmstu að það yrði stúlka.
Linda kvað kynferðið ekki
skipta máli, bara ef barnið
fæddist heilbrigt.
„Ef það verður drengur, á
hann á að heita James, í
höfuðið á föður Pauls,“ sagði
hún. t.’r Newsweok.
—/
7.
Aríldog Co mættu
ekki i Jazzkjallarann
Viðar Alfreðsson skemmti ístaðinn m.a. með túbuleik
Félagsmenn Jazzvakningar
og aðrir, sem mættu í Jazz-
kjallarann að Fríkirkjuvegi 11
á mánudagskvöldið, urðu ekki
þeirrar ánægju aðnjótandi að
fá að heyra I Nordjazzkvartetti
Arild Andersen. Auglýst hafði
verið, að kvartettinn yrði gest-
ur kvöldsins. Þegar til kom
uppgötvaðist skyndilega, að
gleymzt hafði að tilkynna
meðlimum hans í tæka tíð að
þeir ættu að spila þá um
kvöldið.
Að sögn aðstandenda Jazz-
vakningar var það ekki
eingöngu formsins vegna, sem
hljóðfæraleikararnir neituðu
að leika, heldur voru tveir
þeirra að koma til landsins um
sjöleytið á mánudagskvöld og
voru þvi þreyttir. Þar að auki
höfðu vist hljóðfæri þeirra
orðið eftir í Noregi.
I staðinn fyrir Arild Ander-
sen og hljómsveit hans
skemmtu Viðar Alfreðsson og
félagar gestum Jazzkjallarans,
sem voru sérlega margir á
mánudagskvöldið. Viðar fór á
kostum og blés til skiptis- í
kornett, trompett, takka-
básúnu og, — merkilegt nokk
— I túbu.
Vernharður Linnet, einn
helzti jazzsérfræðingur
landsins, sagði nokkur orð
áður en Viðar hóf túbuleik
sinn. Þar kom meðal annars
fram að Vernharði var
kunnugt um, að aðeins einu
sinni áður í nútíma jazzi hafði
verið leikið á túbú. Þar var að
verki Ray nokkur Drapner,
sem lék á túbu inn á tvær
plötur með John Coltrane árið
1958.
Vernharður sagði einnig
stuttlega frá frægasta jazz-
túbuleikara allra tíma. Sá hét
John Kirby og lék jafnhliða á
túbu og bassa á „swing“-
tímabilinu. Þá tíðkaðist
nefnilega, að túbublástur
kæmi i stað bassaleiks.
Með Viðari Alfreðssyni léku
á mánudagskvöldið þeir Karl
Möller, Alfreð Alfreðsson og
Gunnar Hrafnsson bassa-
leikari. Áheyrendur fögnuðu
VIÐAR ALFREÐSSON
— fátítt er að heyra
túbuleik í nútima jazzi.
Aðeins er vitað um eitt
dæmi þess áður, — árið
1958.
þeim vel og tóku því með karl-
mennsku að hafa orðið af
kvartett Arild Andersen. Þeir
fá í sárabót tuttugu prósent
afslátt af aðgöngumiðaverði
tónleikanna i Glæsibæ i kvöld.
Nægir að framvisa félagsskír-
teini í Jazzvakningu til að fá
þann afslátt. -AT-
DB-myiHl: Ami NN.
Neskaupstaöar-
hljómsveitin
Amon Ra
er komin sudur