Dagblaðið - 02.09.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 02.09.1977, Blaðsíða 1
3. ARG. - FÖSTUDAGUR 2. SEPT. 1977 — 191. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMOLA 12. AUGLYSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — fVÐALSÍMI 27022,, KVARTAÐ YFIR „DRAUGA”- í KIRKJUGARÐINUM Lögreglan í óvenjulegu verkefni í gærkvöldi: Tveim mönnum er leiö áttu um Hólatorg, framhjá gamla kirkjugarðinum, í gærkvöldi brá óþyrmilega er þeir sáu undarlegar hreyfingar í garðin- um og síðan veru í mannslíki, náhvíta í framan. Tilkynntu þeir fyrirbrigðið á Miðborgar- GANGI stöð lögreglunnar. Lögreglan fór á vettvang og fljótlega komu lögreglumenn auga á tvo menn sem báðir voru hvítmálaðir i framan. Lögðu þessir „draugar" þegar á flótta er þeir sáu lögreglumenn nálgast sitt helga vígi. Hófst nú eltingaleikur sem lauk með því að annar „draug- anna“ náðist. Var hann færður á lögreglustöðina og látinn tjá sig. Kvaðst hann hafa borið zinkpasta í andlit sér aðeins í þvi skyni að verjast háfjallasól. Gat hann þess einnig að hann stundaði mikið fjallgöngur. Ekki þóttist „draugurinn" vita hvort í kirkjugarðinum hefðu verið tveir slíkir á ferð eða fleiri. „Draugnum", sem reyndist vera fæddur 1960 og því 17 ára, var veitt gisting í fangaklefa. 1 morgun áttu sérfræðingar í hegðunarmálum að ræða við „drauginn" þvi ekki var ljóst hvort undarleg hegðan hans stafaði af andlegum heilsu- bresti eða var gerð í þeim til- gangi að hræða vegfarendur. - ASt. Vandræðaástand íhótelmálum, þegar risaþota bilaði: Farþegar sváfu á bökkum laugar og í veitingasölum —fræg popphljómsveit meðal 340farþega íþotu Pan Am sem lét fyrirberast í Kef lavík í nótt Félagarnir Bobby LaKind og Tyrone Porter voru sæmiiega úthvíldir eftir nóttina á Loftleiðum. Þeir fengu loksins átta tima ótruílaðan svefn (innfelida myndin). Yfirfulit var á Hótei Loftleiðum í nótt vegna bilunarinnar í Boeing747 þotunni. Sumir urðu meira að segja að gera sér það að góðu að' sofa á sundlaugarbakkanum. „Þetta er eiginlega lán í óláni. Ég fékk að sofa ótrufluð í átta tíma í fyrsta skipti siðan við lögðum upp í hljómleika- ferðina, 29. júní,“ sagði Gail Turner, yfirrótari bandarísku hijómsveitarinnar . Doobie Brothers. Hún og tveir hljóm- sveitarmeðlimanna voru meðal farþega Boeing 747 þotunnar sem lenti á Keflavíkurflugvelli i gær vegna bilunar i hreyfli. Er Dagblaðið leit við á Hótel Loftleiðum í morgun voru bandarísku farþegarnir að risa úr rekkju. Og þær rekkjur voru svo sannarlega á undarlegum stöðum margar hverjar. Leifs- búð leit út eins og svefnskálií farfuglaheimili og nokkrir urðu að sofa á sundlaugar- bakka hótelsins. Þotan, sem er frá Pan Am flugfélaginu, var að koma frá London er bilunin varð. Þar héldu Doobie Brothers síðustu hljómleika sína eftir að hafa ferðazt vítt og breitt um Evrópu. 1 hljómsveitinni eru sjö menn. Fimm þeirra urðu eftir í London til að hvíla sig eftir langa og stranga ferð. Einnig þurftu þeir að huga nánar að nokkrum hljóðupptök- um sem voru gerðar á þremur siðustu tónleikum hijóm- sveitarinnar. Gaii Turner tjáði Dagblaðinu að óhappið með hreyfil Jumbo- þotunnar væri ekki það fyrsta sem henti Doobie Bros á ferða- lagi sínu. Fyrir viku tafðist hijómsveitin nokkrar klukku- stundir i Bordeaux f Frakk- landi vegna svipaðs atviks. „I Bandaríkjunum höfum við einkaþotu og síðan gamla DC 3 rellu undir hljóðfærin," sagði Gail. Hún hefur unnið fyrir hljómsveitir um nokkurt skeið, fyrst með Jefferson Airplane og síðar með Greatful Dead. Starf hennar er margþætt. Hún þarf að fylgjast með hversu margir miðar seljast á hverja hijómleika, sjá um allt baksviðs og skipuleggja ferðir á milli hljómleikahalla. Um tíuleytið í morgun yfir- gaf allur hópurinn Loftleiða- hótelið. Doobie Brothers- mennirnir Bobby LaKind og Tyrone Porter voru seinir niður en gáfu sér samt tíma til að segja nokkur orð. „Við gerðum góðan konsert í Rainbow (i London) ogyfirleitt var ferðalagið ágætt en alít of langt,“ sagði Bobby. Hann var DB-myndir: Bjarnleifur. ánægður með að hafa fengið að hvíla sig svolftið áður en hann kæmi heim og varð himinlif- andi þegar honum var sagt að ! aðeins þriggja til fjögurra tíma | flug væri eftir. Hann sýndi hokkurn áhuga á j Islandi og sagði að umboðs- maðurinn, sem einnig var með í ferðinni, hefði spurzt fyrir um landið. Hins vegar var hann ekki alveg viss um hvort hann væri nær vestur- eða austur- strönd Bandaríkjanna. Bobby var að lokum spurður að þvi hvað Doobie Bros tækju sér næst fyrir hendur. „Við hvílum okkur vel á eftir," svaraði hann, „og síðan höldum við áfram. Doobies are just allright, o yeah.“ -AT/-HP Svona líta amerískir millarút! Hverjum dytti i hug, að þetta væri margmilljónari? Fróðir menn um ameríska milljóna- mæringa segja, að þvf lát- iausari sem þeir séu í klæða- burði þeim mun rikari séu þeir. Alia vega virðast þeir ekki eyða miklum peningum í DB-myndir Bjarnleifur. Ef BSRBferí verkfall: Engin lögregla, ekkert útvarp eða sjónvarp, sjúkrahús í lamasessi — sjá bls. 5 Sauðfé allt að þriðjungi of margt — og gróðri hnignar nú í 13 sýslum landsins — sjá bls. 9 < t i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.