Dagblaðið - 02.09.1977, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1977.
Við sem vinnum eldhússtörfin:
Drottningar verða
líka að þvo upp
Að baki lítils fjallakofa í
Badjelanta þjóðgarðinum i
Norrbottens-léni er ung kona að
þvo upp eftir hádegismatinn.
Eins og sjá má, er þetta Sylvía
Svíadrottning og það er öruggt að
þið hafið ekki séð svona mynd af
henni áður. Þegar kóngafólk er á
ferð er venjulega teknar af því
myndir við önnur tækifæri.
Og hér kemur skýringin:
Kóngurinn í litlu alvarlegu þjóð-
félagi eins og Sviþjóð gelur ekki
skemmt sér fyrir opnum tjöldum
og eins oft og hann vill. Áður en
Sylvía kom til sögunnar var hins
vegar auðvelt að skemmta sér
hvar sem var i allri Evrópu, án
þess að það vekti neina tiltakan-
lega eftirtekt.
Dag einn vildi kóngur svo fara
á skíði með drottningu sinni.
Enga blaðamenn, enga míkra-
fóna og engar ræður. Hann lét
panta fyrir sig fjallakofann í
Norrbotten, flugherinn varlátinn
vera við æfingar í nágrenni
staðarins og nokkrir hermenn,
læknir og matráðskona biðu við-
búin. Kóngurinn og fylgdarlið
hans lenti svo í nágrenni staðar-
ins og síðan fengu þau að vera í
friði í nokkra daga.
Rétt áður en þau héldu til
Stokkhólms á ný buðu þau
nokkrum fyrirmönnum til her-
legrar veizlu í fjallakofanum.
Kóngur hafði sjálfur veitt í mat
inn og auðvitað, eins eftir matar-
veizlu, varð einhver að þvo upp.
Þið sjáið á hverjum það lenti og
einhvers staðar hefur ljósmynd-
ari legið I leyni.
Carl Gustaf að bora holu i ísinn
tll að kæla fiskinn.
Að sjálfsögðu kleddi Silvfa sig
uppá fyrir veizluna.
KOSSAFLENSIÐ AÐ AUKAST
Á BRETLANDI
Ýmsir siðir í sambandi við
kossakveðjur
Kossaflens á almannafæri
hefur færzt í auka á Bretlandi
undanfarið. Er þetta þó ekki
nýtilkominn siður, því kossaflens
var mikið á Bretlandseyjum í eld-
gamla daga.
í bréfum frá árunum í kringum
1500 er getið um „þann ágætis sið
að allir á Bretlandi bæði heilsast
og kveðjast með kossi.“
Sumir voru mótfallnir þessari
almennu kossakveðju og vildu
einungis kyssa fallegar stúlkur —
eða fallega pilta. í Frakklandi og
á Ítalíu sleppur enginn við kossa-
kveðjuna hvort sem hann er
ungur eða gamall, fallegur eða
ljótur. Allir fá sinn koss.
Það getur vafizt fyrir óvönum í
hvora áttina þeir eiga að snúa sér
undan kossunum. í versta falli
getur tekizt svo til að árekstur
verði og nefin lendi saman.
I hinum ýmsu löndum gilda
mismunandi reglur um kossa-
kveðjurnar. Bretar slengja yfir-
leitt ekki nema einum kossi á
kinn þess sem þeir eru að heilsa
eða kveðja. Frakkar eru örlátari,
því þeir hafa kossana yfirleitt tvo.
Rússar slá þó bæði Breta og
Frakka út því þeir umfaðma við-
komandi með báðum handleggj-
unum og kyssa þrisvar sinnum.
Til er Hindúa þjóðflokkur sem
kyssir einnig þrisvar sinnum á
kinnarnar en að auki á báðar
hendur.
í Bandaríkjunum kyssast menn
í tíma og ótíma, en ekki á sama
hátt og aðrar þjóðir. TildurróL
urnar þar í landi kyssa nánast rétt
aðeins við andlit þess sem kysstur
er, til þess að stríðsmálningin
ruglist ekki.
Það geta þó leynzt ýmsar
Kiss, kiss
hættur i sambandi við kossa-
kveðjur. Eitt sinn hittu hjón
nokkur hjákonu mannsins í
matarboði, ásamt öðru fólki.
Allt fór vel og settlega fram þar
til kveðjustundin rann upp.
Hjákonan rétti fram kinnina til
þess að eiginkonan gæti kysst
hana, — en eiginkonan gerði sér
lítið fyrir og beit í kinn hjákon-
unnar!
Þýtt A.Bj.
Svlvía við uppþvottinn.
SÍMI í MÍMI ER 10004
Fjölbreytt og skemmtilegt
tungumálanám.
Alltaf mó
fó annað skip —
Bandaríska leikkonan Liza
Minelli, úr myndinni Lucky
Lady, sem sýnd hefur verið
undanfarið í Nýja BIói, er að
skilja við manninn sinn, Jack
Haley, sem hún er með á mynd-
inni.
Ekki ætlar Liza að sitja ein
heima. Hún hefur þegar fengið
sér nýjan elskhuga, fram-
leiðandann og leikstjórann,
Martin Scorsesse.
c
Verzlun
Verzlun
Verzlun
j
GlæsileglTOLSK smáborð
Eigum glæsilegl úr-
val af póltTuðum
smáborðum m/-
blómaútflúri í borð-
plulu. Kinnig
rokóko-borð m/úl-
skurði og/eða Onix
horðplötu.
Sendum um alll
land.
Siminn er 16541.
gMýja ,
©olsturpGrði i
WlaUGAVEGI 134w REVKJA' <
Skrifstofu
SKRIFBORD
Vönduó sterk
skrifstofu skrif-
boró i þrem
stæróum.
A.GUÐMUNDSS0N
Húsgagnaverksmiöja,
Auóbfekku 57, Kópavogi, Simi 43144
w ■■
LICENTIA-VEGGHUSGOGN
□□ 0
RlM
STRANDGÖTU 4 SlMI 51818 — HAFNARFIRÐI.
Heyrðumanni!
BikmmeKhTbiður
Biiasalan
SPYRNANstov29330ogfSSSÍ
MÚRHÚÐUN í UTUM:
Prýðið hús yðar utan sem innan með COLORCRETE
múrhúðun i f jölmörgum litum að elgin vall.
Varanlegt efnl, mjög vatnsverjandl en andar þð.
Simar 84780 k daginn en 32792 á kvöldin.
Steinhúðun hf Ármúla 36, Rvík.
Katta- og hundaeigendur.
Dýramaturinn frá Pedigree Petfood
er vítamín- og steinefnabætt alhliða
næring. Fæst í helztu mat-
vöruverzlunum.
Ingvar Herbertsson heildv.
^ 4 A|Óamýrl 35. Simi 38934.
w i
EINN G0ÐUR
UTSKURÐUR A ORMUM.
LAUSIR PUÐAR I BAKI
OG SETU
ÞRIAR BAKSTILLINGAR.
SNUNINGUR OG RUGGA.
IHliM AO l AIK'.AV 1
Rfll I VRIR OfAN
HltMM
OC. SIMINN f R 16S4I
FAANLEGUR
MEÐ OG AN SKEMILS.
qsjýja
©ólsturpGfðin
Wi A. I.Í4* HhKAV h