Dagblaðið - 15.10.1977, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. OKTOBER 1977
Sovézkir kvikmyndadagar:
Rússneskur
suðri
LAUGARÁSBlÓ
Siflaunamir hvarfa út I bléinn (Tabor uhodit
v nabo)
Framlaiflandi: Moafilm Studio, Moskvu.
LaikatjóH: Emil Lotyanu
Aflalhlutvark:
Svatlana Toma
GHgory GHgoHu
lon Shkurya.
Sýningartimi: 100 mínútur.
Aðstandendum kvikmynd-
arinnar Sigaunarnir hverfa út í
bláinn hefur tekizt prýðisvel að
koma til skila þeim angurværa
blæ, sem einkennir svo mjög
sovézkar bókmenntir. Handrit
myndarinnar er byggt á nokkr-
um æskuverkum rithöfund-
arins Maxims Gorkí. Leikstjðr-
inn, Emil Lotyanu, sem semur
sjálfur handritið, er einnig ljóð-
skáld og leikritahöfundur.
Þessa gætir nokkuð I myndinni
sem er mjög ljóðræn á köflum.
Líf sígauna eða tatara, eins
og þeir nefnast víst á íslenzku,
hefur alltaf haft vissan spenn-
andi blæ yfir sér. Rétt eins og
vestrænir kúrekar eru sam-
heldnir og sér á parti fara sR
gaunar einförum frá venjulegu
fðlki, og sem meira er, eru út-
skúfaðir. Á yfirborðinu eru
þeir skrautlegir og glaðværir,
en undir þeim hjúpi er allt aðra
sjón að sjá. Þar eru þeir von-
lausir og þurfa að berjast
Kvik
myndir
harðri baráttu fyrir tilveru
sinni.
A þetta misræmi leggur
Lotyanu leikstjóri aðaláherzlu.
Sígaunarnir hverfa út í
bláinn segir frá hestaþjófinum
Zobar, sem er að eigin sögn
mesti hestaþjófur í heimi.
Hann gengur vasklega fram við
vinnu sína og svifst einskis. Af
þeim sökum langar yfirvöld
mjög að hafa hendur i hári
hans. Eitt sinn sleppur hann
naumlega með skotsár á
öxlinni. Þá hittir hann sigauna-
stúlkuna Rödu, sem græðir
hann með tunglryki. Zobar
hrífst mjög af Rödu og lif hans
snýst eftir það um það eitt að fá
hana fyrir konu.
Rada læknar Zobar með
mánaryki. Sjálfur hafði hann
áður drukkið mánadögg ásamt
systur sinni og hún átti að koma
í veg fyrir að þau dæju af skot-
(Jr „September".
Zobar og Rada hittast í fyrsta skipii. Kynni þeirra verða siðar örlagarík.
sárum. Mörg fleiri fróðleg at-
riði koma fram úr hjátrú
sígauna. Sömuleiðis eru söngv-
ar þeirra kynntir, — söngvar
sem mikl'u fremur eru af
suðrænum uppruna en rúss-
neskum.
Sígaunarnir hverfa út í blá-
inn hlaut I fyrrasumar
verðlaunin Stóru gullskelina á
alþjóðlegri kvikmyndahátíð i
San Sebastian á Spáni. Hún er
vel að þeim verðlaunum komin.
Myndataka er mjög skemmtileg
svo og klippingar. Enskt tal
hefur verið sett á myndina og
er hvergi til stórra lýta. En sér I
lagi á myndin hrós skilið fyrir
þann sérstaka rússneska angur-
væra blæ, sem náðst hefur.
Tvennt er það, sem finna má
að. Hljóðsetning söngvanna er
fremur léleg og einnig er það
eintak myndarinnar, sem barst
hingað, allslitið.
Sígaunarnir hverfa út 1
bláinn er sýnd hér á Sovézkum
kvikmyndadögum f tilefni nýrr-
ar stjórnarskrár 1 Sovétrlkjun-
um og 60 ára byltingarafmælis
landsins. Tvær aðrar myndir
verða einnig sýndar i Laugarás-
biói. Þær eru September og
Prinsessan á bauninni.
-ÁT/Arni Páll-
23
\
Tryggvi sýnir í Súm
Tryggvi Ólafsson opnar í dag
fimmtu einkasýningu sína hér-
lendis, í Gallerí SUM við Vatns-
stíg. Hinar fjórar hafa allar verið
á sama stað.
Tryggvi hefur verið búsettur í
Danmörku um árabil og þar í
landi og viðar um lönd hefur
hann haldið einkasýningar og tek-
ið þátt í samsýningum.
Tryggvi er fæddur i Neskaup-
stað 1940. Stundaði hann fyrst
nám í Myndlista- og handiðaskóla
tsland en fékk siðan inngöngu i
Listaháskólann I Kaupmannahöfn
árið 1961 og dvaldist þar við nám
næstu 6 ár eða til ársins 1966.
Tryggvi tók þátt í haustsýningu
listamanna í Kaupmannahöfn ár-
ið 1963.
Fyrsta einkasýning Tryggva
var í Gallerie Jensen í Kaup-
mannahöfn árið 1966.
Sem meðlimur SUM hefir
Tryggvi tekið þátt í samsýningum
þess félagsskapar frá 1969, þ.e.
SÚM III, Reykjavik 1969, SÚM
IV, Amsterdam 1970, SÚM á
Listahátíð í Reykjavík 1972, einn-
ig farandsýningu SÚM, „H2Ó“, til
Norðurlanda 1974, „SÚM ’76“,
Reykjavík 1976.
Tryggvi gerði utanhússkreyt-
ingu ásamt Þorbjörgu Höskulds-
dóttur og Sigurjóni Jóhannssyni I
bænum Brande á Jótlandi sumar-
ið 1970. Hann hefir einnig gert
tvær skreytingar í fjórðungs-
sjúkrahúsið i Neskaupstað með
aðstoð Danans Jörgens Bruun
Hansens, 1976 og 1977.
Tryggvi hefir tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum erlendis,
þ.á m. Norrænu sýningunni,
Charlottenborg, Kaupmannahöfn
1970, 1972, 1974 og 1975, sýning-
unni íslenzkir nútímamálarar,
Stokkhólmi 1971, Eystrasaltsbien-
alnum, Rostock 1971. Hann tók
síðast þátt i norrænni farandsýn-
ingu, Augliti til auglitis I höfuð-
borgum Norðurlanda, 1976-77.
Tryggvi hefur ásamt kvik-
myndagerðarmanninum H.H.
Jörgensen gert heimildarkvik-
mynd um danska svartlistar-
manninn S. Hjorth Nielsen, 1976.
Tryggvi hlaut fjögurra mánaða
starfslaun listamanna á þessu ári.
Að þessu sinni sýnir Tryggvi
samtals 30 málverk, flest unnin
með acryl-litum a léreft, en auk
þeirra eru nokkrar klippimyndir
á sýningunni.
Sýning Tryggva i Gallerí SUM
verður opin daglega frá kl. 4 til 10
til mánaðamóta.
rl.
Fyrir svartasta skammdegið:
Lionsmenn selja
Ijósaperur í Garðabæ og
Bessastaðahreppi
Núna þegar svartasta
skammdegið er ekki fjarri er
það kærkomið að fá sölumenn
með ljósaperur I heimsókn.
Lionsmenn í Garðabæ og Bessa-
staðahreppi ætla að ýta á dyra-
bjölluhnappa húsanna í um-
dæmi sínu nú um helgina og
bjóða til sölu poka af ljósaper-
um.
Og ekki ætti að saka að geta
þess að ágóði af sölunni fer
allur til mannúðarmála og
njálparstarfsemi. Lionsklúbb-
urinn hefur einkum stutt starf-
semi vistheimilisins á Vifils-
stöðum en þar er unnið gott
starf við meðhöndlun þeirra
sem við drykkjusýki eiga að
striða. Þá hafa skólunum verið
gefin tæki til að auðvelda heil-
brigðiseftirlit, skólabókasafn
Bjarnastaðaskóla eflt og ein-
staklingum og fjölskyldum sem
átt hafa um sárt að binda hefur
verið veitt aðstoð.
STOFNÞING LANDS-
SAMTAKANNA
ÞROSKAHJÁLPAR
—- Samtök sem vinna að hagsmunum
þroskaheftra
Stofnþing Landssamtakanna
Þroskahjálpar verður haldið I
Kristalssal Hótel Loftleiða laugar-
daginn 15. okt. Samtök þessi sam-
anstanda af 17 félögum sem vinna
að hagsmunum þroskaheftra og
eru meðlimir þessara félaga tæp-
lega sex þúsund talsins. Meðal
þessara félaga eru Styrktarfélag
vangefinna f öllum landshlutum.
Dagskráin á laugardaginn hefst
kl. 10 með þingsetningu og ávörp-
um gesta en m.a. verður borgar-
stjóra og þingmönnum boðið en
öllum er heimill aðgangur. Síðan
hefst íyrirlestrahald kl. 13 og
verða flutt 4 framsöguerindi.
Bjarni Kristjánsson flytur erindi
um löggjöf fyrir þroskahefta. Tor
Brandt frá Osló fjallar um for-
eldranámskeið I Noregi, Margrét
Margeirsdóttir fjallar um tengsl
foreldra og stofnana og Magnús
Magnússon um reglugerð um sér-
kennslu.
Að loknum fyrirlestrum verða
umræður og fyrirspurnum svar-
að. -JH.
ÚRVRL/ KJÖTVÖRUR
OG ÞJÓnU/Tfl
//allteitthvaó
gott í matinn
STIGAHLIÐ 45-47 SIMI 39645