Dagblaðið - 30.01.1978, Side 16
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 30. JANUAR 1978
PUNKTAMÓT f ALPAGREINUM
Laugardaginn 28. janúar fór
fyrsta punktamót vetrarins fram í
Skálafeili og var þá keppt í stór-
svigi. Hlekktist mörgum á bæði í
kvenna- og karlaflokki. Af 11 kon-
um luku aðeins 4 en í karlaflokki
9 af 31. Brautin var mjög óslétt og
færi svo slæmt að margir gamal-
reyndir keppnismenn sögðust
ekki muna annað eins.
Á sunnudag fór svo svigkeppni
fram. Snjótroðari hafði verið
fenginn til að laga brekkur og var
mikil bót að því enda hlekktist'
mun færri á en í stórsviginu. Af:
Óbreytt
stoða í Belgíu
Efstu liðin í Belgíu, FC Brugge
og Standard Liege, sigruðu bæði í
leikjum sínum í gær, svo staðan
á toppnum breyttist ekki. Brugge
hefur 34 stig, Standard 31 stig,
Lierse og Beerschot 28 stig,
Beveren og Anderlecht 27 stig.
(Jrslit
Beerschot-Waregem 4-0
La Louviere-Boom 3-1
Lokeren-Antwerpen 2-0
Courtrai-Winterslag 3-0
Lierse-Beveren 2-1
Standard-Charleroi 2-1
Molenbeek-CS Brugge 1-0
FC Brugge-Anderlecht 2-0
Beringen-FC Liege 2-1
11 keppendum í kvennaflokki
luku 9 keppni en af 31 í karla-
flokki luku 14 keppni. Punkta-
mótið í sviginu var einnig Stefáns
mót þeirra KR-inga og fengu
sigurvegarar þar Asdís Al-
freðsdóttir (hún er enn í ung-
lingaflokki en hefur rétt til
keppni í kvennaflokki) og Árni:
Öðinsson veglega bikara til varð-
veizlu. Mótsstjóri var Steingrímur
Gröndal. Allar brautir í stórsvig-1
inu lagði Viggó Benediktsson og
var hann ekki öfundsverður af
því verki. Einnig lagði hann svig-,
braut kvenna. Fyrri braut í svigi
karla lagði Svíinn Gudmundj
Södrin sem er íslenzkur í móður-|
ætt. Kom hann til landsins sl.
föstudag og ætlar hann að þjálfa
Armenninga í vetur. Seinni braut
lagði Hinrik Hermannsson.
- Þorri
Urslit í stórsvigi
Kvennaflokkur: i
1. Halldóra Björnsd. R. 137,17 sek.
2. Guörún Leifsdóttir A. 141,33 sek.
3. Nína Helgadóttir R. 154,74 sek.
Karlaflokkur:
1. Einar Valur Kristjánss. í.
2. Benedikt Jónasson H.
3. Siguröur Gesson A.
151,92 sek.
156,25 sek.
164,08 • sek.
Úrslit í svigi.
Kvennaflokkur:
1. Ásdís Alfreðsd., R. 50,76, 49,56 100,32
2. Sigriður Einarsd. í. 50,43,49,91 100,34
3. Margrét Baldvinsd. A. 49,87, 50,94 100,81
4. Kristín Ulfsd. Í. 52,96,52,10 105,06
Karlaflokkur:
1. Ámi Óðinsson Á.
2. Einar V. Kristjánss. í
3. Bjami Sigurðss. H.
4. Bjöm Olgeirsson H.
5. Tómas Leifsson A.
50,74 48.08 99,82
50,56 49.36 99,92
50,84 49,30 100.14
51,33 49,35 100,68
51,66 49,53 101,19
Alpatvíkeppni:
Kvennaflokkur.
1. Halldóra Bjömsd. R. 61.59 stig
2. Jónína Jóhannsd. A. 218.36 stig
Karlaflokkur:
1. Einar V. Kristjónss. í. 0.53 stig
2. Benedikt Jónasson H. 44.64 stig
3. Siguröur Gestson A. 80.53 stig
4. Jóhann Vilbergsson R. 160.56 stig
5. Bjami Þóröarson R. 166.78 stig
Köln heldur
sínu striki
Úrslit í vestur-þýzku 1.
deildinni í knattspyrnu á laugar-
dag urðu þessi:
Kaisersl.-Gladbach 0-3
St. Pauli-Hamburger SV 2-3
Munchen 1860-Duisburg 4-0
Bochum-Bavern Múnchen 2-1
Köln-Saarbrucken 3-1
Bremen-Brunswick 2-1
Frankfurt-Hertha 0-5
Stuttgart-Dortmund 4-1
Dusseldord-Schalke 1-1
Staða efstu Iiða.
Köln 23 15 2 6 59-30 32
Gladbach 23 11 6 6 49-35 28
Hertha 23 11 6 6 41-34 28
Stuttgart 23 12 3 8 41-27 27
Dússeldorf 23 10 6 7 32-24 26
T,
Þróttur sigraði stúdenta í 1.
deild karla í blaki í gær með
þremur hrinum gegn tveimur.
Þar með hefur Þróttur örugga
forustu á íslandsmótinu.
Næringarcfni í lOOg
af smurosti
Prótín 16 g
Fita 18 g
Kolvetni 1 g
Steinefni alls 4 g
(þar af Kalsíum 500 ing)
Hitaeiningar 230
i(l"‘
Michael Berg var tslendingum ákaflega erfiður í HM-Ieiknum í Randers,
Skoraði fimm mörk Dana — og á mynd Ib Hansen hefur hann sloppið framhjá
Einari og Björgvin.
ísland úr leik ó
HM í Danmörku
— eftir tapleik gegn Spánverjum íThisted. Nú þarf
að stokka upp spilin í íslenzkum handknattleik.
Frá Halli Hallssyni, blaðamanni DB'
á HM.
Spánn sökkti íslandi í Thisted á Jót-
landi í gær í HM hér í Danmörku. Neru
salti í sár íslands eftir hina slæmu
útreið gegn Dönum. Spánn sigraði 25-
22 og Island hefur því tapað öllum
leikjum sínum á HM. Er úr ieik og
leikmennirnir halda heim til Íslands í
dag. Já, tap fyrir Spáni þrátt fyrir
dyggilegan stuðning hinna fjölmörgu
íslenzku áhorfenda hér í Danmörku —
og það gegn síður en svo sterku
spænsku liði, sem leikur því um 9.-12.
sæti á HM. Vonbrigði íslendinga eru
gífurleg — jafnt leikmanna sem áhorf-
enda. Það voru miklar vonir bundnar
við góðan árangur, svo mikil vinna lögð
í undirbúning íslenzka liðsins.
En íslenzka liðið hefur alveg
brugðizt vonum manna hér á HM.
Leikur íslands gegn Spáni í Thisted er
einn lakasti leikur íslenzks landsliðs
lengi. Islenzka liðið var alls ekki í
toppformi hér í Danmörku, ef undan er
skilinn síðari hálfleikurinn gegn Sovét-
mönnum. Leikmenn hafa virkað dauf-
ir, enginn baráttuvilji — beinlínis
þreyttir. ísland heldur því heim en
Spánverjar berjast áfram.
Leikur tslands í gær var allt annað
en sannfærandi. Varnarleikur í mol-
um. Ráðleysi í sóknarleiknum langtím-
um saman — og ráðleysi á bekknum.
Stjórn liðsins brást hrapallega.
Spánverjar byrjuðu á því að skora
fyrsta mark leiksins en tvær frábærar
línusendingar Axels á Björgvin, sem
skilaði knettinum í mark Spánar,
glöddu áhorfendur. Vöktu vonir um
góðan leik, en það var aðeins fölsk von.
Næstu 10 mín. skoraði ísland ekki
mark og ótrúlegt en satt. Fékk á sig sjö
mörk. Staðan breyttist úr 2-1 í 2-8.
Ráðleysi á öllum sviðum. Reyndir leik-
menn gerðu sig seka um hreinar byrj-
endavillur. Glötuðu knettinum klaufa-
lega og Spánverjar brunuðu upp hvað
eftir annað og skoruðu. Varnarleikur
Islands f molum — leikmenn komu illa
út á móti Spánverjum og Gunnar
Einarsson var ekki öfundsverður í
markinu þar sem Spánverjar fengu-
bókstaflega að skjóta að vild.
Staðan eftir 13 mín. var því 2-8 en
Axel, með tveimur mörkum og Geir og
Gunnar með góðum mörkum, vöktu
aftur vonir og staðan breyttist í 6-9 —
síðan 9-12. En varnarleikurinn brást og
staðan í hálfleik var 10-15 fyrir Spán-
verja.
Byrjunin í síðari hálfleik lofaði síður
en svo góðu. Sama liðhjá okkur og hafði
gengið svo illa í fyrri hálfleiknum.
Spánverjar komust í 17-11, síðan 21-14
og 23-16. Þá loksins varð breyting á leik
íslands. íslenzku leikmennirnir fóru að
koma betur út á móti í vörninni og
hættulegasti skotmaður Spánverja,
Behovide, var tekinn úr umferð. Nú
var komið að Spánverjum að gera vilur
— og Island skoraði sjö mörk í röð.
Breytti stöðunni í 22-23. Ahorfendur
hvöttu íslenzka liðið mjög — spánska
liðið var að brotna. Rétt einu sinni enn
misstu Spánverjar knöttinn. Aðeins
þrjár mínútur til leiksloka og jafntefli
hefði nægt Islandi til að komast í
keppnina um 9.-12. sætið. Viggó
Sigurðsson brunaði upp — komst inn
fyrir punk'talínu en skaut framhjá
Gullið tækifæri til að jafna rann út
sandinn. Spánverjar skoruðu sitt 24
mark í næsta úpphlaupi — og úrslitin í
rauninni ráðin. Það skipti ekki máli þó
Spánverjar skoruðu eitt mark til við-
bótar, 22-25, skaðinn var skeður. Von-
brigði Islands gífurleg — Island úr
leik.
Já, ísland úr Ieik — en í hverju lágu
mistökin? I tveimur síðustu leikjum
íslands hafa leikmenn virkað kraft-
lausir og lykilmenn skort þann neista
sem með þarf. Það er greinilegt að
íslenzka liðið kom ekki eins vel undir-
búið til HM og hinar þrjár þjóðirnar í
riðlinum — þrátt fyrir hinn mikla
undirbúning. Ef til vill hafa leikmenn
ekki fengið næga hvild fyrir HM.
Varnarleikurinn gegn Dönum og Spán-
verjum var slæmur — og innáskipting-
ar hafa verið ákaflega veikur punktur.
Janusz Czerwinski stjórnaði þeim hér
og þær voru ráðleysislegar. Mikið um
stöðubreytingar og allt of mikið keyrt
á leikmönnum, sem beinlínis hafa ekki
verið í formi. Það er athyglisvert, að
Þorbergur Aðalsteinsson — bezti leik-
maður Islands gegn Dönum — var
aðeins með fyrstu mínúturnar. Var
skipt út af í stöðunni 2-2 og kom ekki
meira inn á, þrátt fyrir að hann hafði
verið sá leikmaður sem mestur kraftur
var í — bæði i vörn og sókn. Gífurlega
sterkur varnarmaður — en var ekki
nýttur. Gunnar Einarsson stóð lengst
af í markinu — en Kristján Sigmunds
son kom inn á í síðari hálfleik. Báðir
stóðu sig alveg þokkalega en voru ekki
öfundsverðir vegna þeirrar varnar,
sem þeir höfðu fyrir framan sig.
Þátttöku tslands á HM er lokið eftir
tapi gegn Spáni, sem hefur engan
vegin'n sterku liði á að skipa. Þar var
allt Jagt á eitt í undirbúningnum.
Góðtrr árangur ytra átti að rétta við
íslenzkan handknattleik heima á Is-
landf — drífa hann upp úr þeirri lægð
sem hann vissulega hefur verið í.
Handknattleikur á Islandi hefur verið
rekinn með tilliti til landsliðsins. Allt
miðað við að gera hlut þess sem beztan.
I sjálfu sér ekki röng stefna — ef
okkur hefði tekizt að komast i áttaliða
úrslit. Afleiðingin hefur orðið sú að
félagslicj á Islandi hafa ekki tekið eðli-
legum framförum og áhorfendum á
leiki Islandsmótsins hefur fækkað
mjög. Góður árangur hér í Danmörku
hefði vissulega orðið lyftistöng —
slæm útreið að sama skaþi áfall. Við
lögum allt á eitt — og töpuðum. Nú
verður að stokka upp spilin. Endur-
skipuleggja handknattleik á tslandi.
Lærdóminn frá HM í Danmörku verður
að nýta.
Mörk íslands gegn Spáni skoruðu
Axel 7 — tvö viti — Björgvin 6, Gunnar
Einarsson 4, Geir 2, Viggó 2 og Arni
Indriðason eitt.