Dagblaðið - 31.03.1978, Side 1
L
I
)
4. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978. - 66. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI27022.
Færeyska skipið sem
strandaði við Ólafsfjöið:
Erað
grafast í
sandinn
minnkandi líkurá björgun
Líkur eru nú taldar á að færeyska
skipið Hólmur, sem strandaði skammt
frá Ólafsfirði á miðvikudagskvöld með
fimm manna áhöfn, muni „bera bein
sin” í sendinni fjörunni þar sem það er
þegar farið að grafast niður á sömu
slóðum og brezkt skip grófst niður á
stríðsárunum.
Áhöfnin er enn um borð, en mun
nú orðin vonlítil um björgun skipsins.
Gerðar hafa verið nokkrar árangurs-
lausar tilraunir til að draga Hólm út,
en skipið er með 100 tonna saltfarm
um borð.
Þar sem skipið er nálægt fimmtugu
hefur reynzt erfitt að finna nægilega
sterka staði til að binda í og í fyrstu til-
raun sópuðust t.d. allir dekkpollar og
rekkverk af er átak kom á.
1 nótt reyndi varðskip enn að toga i
skipið en öflugar dráttartaugarnar létu
þá undan og er óljóst um áframhald
björgunaraðgerða.
Skipverjar eru ekki í neinni hættu
um borð og er skipið stöðugt vaktað úr
landi. Hafa skipverjar enn Ijós og yl
frá Ijósavél, en nú er orðið erfitt að
halda henni gangandi. . G.S.
Aldrei á sunnudögum, segja
verkakonur í Eyjum:
LOKS KOM AFLINN
„MEÐ SIGURBROS A VOR.
■ ■
EN ÞA MA
í sólskininu á miðvikudaginn voru að
minnsta kosti tveir lögreglumenn í því
starfi að leita uppi bíla sem taka átti úr
umferð í höfuðborginni. Á alllöngum
lista voru skráð númer bíla sem leitað
var að vegna þess aö ekki hafði verið
mætt með þá til skoðunar fyrir árið 1977
eða þeir höfðu ekki verið umskráðir
samkvæmt lögum. A Flókagötunni
fundu þeir einn óskoðaðan 1977. Voru
engin umsvif höfð en númer bílsins
skrúfuð eða klippt af. Jafnframt var til-
kynning um atburðinn sett undir fram-
rúðuþurrku. Hér er annar lögreglu-
mannanna, fulltrúi kerfisins, með sigur-
bros á vör. Einn trassi hefur verið fund-
inn og stöðvaður. Sjálfsagt hefur honum
brugðið er hann kom næst að bilnum —
nema hann sé svo forhertur að honum
bregði ekki við eitt eða neitt og gefi skít í
allar reglur og lög.
-ASt/DB-mynd Bjarnleifur
EKKIVINNA HANN naHfia/e/f í ~
Það sem af er vetri hefur verið um frá þessu þvi annars er hætta á að fiskur- M MV M ■ ■ Ví ■
undirbúningi
Það sem af er vetri hefur verið um
vandræðaástand að ræða í Eyjum vegna
aflabrests bátanna. Nú síðustu daga
hefur hins vegar brugðið til hins betra og
afli verið með ágætum, en þá hefur bara
skapazt nýr vandi með vinnslu á hinum
mikla afia af ýsu og þorski.sem borizt
hefur undanfarna daga. 1 haust var sam-
þykkt I verkakvennafélaginu Snót að
ekki skyldi unnið á sunnudögum. Er nú
verið að vinna að þvi að fá undanþágu
frá þessu því annars er hætta á að fiskur-
inn skemmist.
í morgun var bræla á miðum Eyja-
báta, en þeir voru að koma inn með afia
eftir nóttina. Þá bárust þær fréttir að
Fiskiðjan hygðist leysa sinn vanda með
því að skipa 60—70 tonnum af fiski út í
Heimaey, sem ætlar að sigla með fiskinn
á erlendan markað.
- A.BjJ-G.S.
— er hin „týnda” var í páskapartfí
Fjórði hver bíll í árekstri
í Reykjavík er utan af landi
— bls.4
Freeport og íslendingan
300 hafa farið —150
sneru frá flöskunni _ bls. 5
1 gær fannst fertug kona, sem „týnzt”
hafði í Hafnarfirði á 2. páskadag. Stóð
til í gær að auglýsa hvarf hennar, en þá
höfðu tilraunir fólks og lögreglu til að
grennslast um hana ekki borið árangur.
En rétt áður en leitað skyldi af alvöru
kom konan i leitirnar.
Hún hafði komið til Hafnarfjarðar
um páskana ásamt manni sínum og farið
á dansleik i Skiphól á 2. í páskum. Síðar
um nóttina fór hún frá dvalarstað sínum
og til hennar spurðist ekki. Gaf hún þá
skýringu í gær að hún hefði á göngu
sinni um nóttina hitt mann og þegið
heimboð hans. Partíið stóð frá mánudegi
til fimmtudags.
Ihaldssamir kommar
— Sjá föstudagskjallara Vilmundar
Gylfasonará bls. 10-11
BJÖRN FÆR
HÆGAN
BATA
Lítil von mun vera til þess að
Björn Jónsson, forseti Alþýðusam-
bands íslands, komist til þeirrar
heilsu á næstunni að hann geti
aftur tekið við störfum sínum hjá
ASÍ.
Björn fékk heilablóðfall skyndi-
lega 18. febrúar sl. og hefur verið á
sjúkrahúsi síðan. Hann hefur á
þessum tíma fengið nokkurn bata
en þó hvergi nægan til þess að
hann geti aftur hafið störf.
Snorri Jónsson, varaforseti Al-
þýðusambandsins, gegnir störfum
Björns Jónssonar í forföllum hans.
ÓV
A