Dagblaðið - 31.03.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978.
Yfirlýsingítölsku stjórnarinnar.
EKKISAMIÐ VIÐ MANNRÆNINGJA
Mannræningjar Aldo Moros voru
varaðir við í dag, að ekki væri hægt að
semja um fórnarlamb þeirra. Aðeins
einum sólarhring eftir að bréf barst frá
Moro, þar sem leiddar voru líkur að
því að mannræningjarnir vildu semja
og skipta á honum og félögum Rauðu
herdeildanna, útilokaði Kristilegi
demókrataflokkurinn þá leið.
í stuttri yfirlýsingu, sem birtist sem
leiðari i flokksblaði Kristilega
demókrataflokksins, II Popoli, sagði
að ekki væri mögulegt að ganga að
kúgunarkröfum Rauðu herdeildanna.
Litið er svo á að þessi yfirlýsing sé
stefna ítölsku stjórnarinnar.
Þegar yfirlýsingin var kunngerð,
hjöðnuðu umræður um að skipt yrði á
Moro og hryðjuverkamönnunum.
Þessi afstaða stjórnarinnar er studd af
hinum valdamikla ítalska komm-
únistaflokki, en sem kunnugt er
styður-kommúnistaflokkurinn minni-
hlutastjórn Kristilegra demókrata.
í blaði kommúnistaflokksins, La
Unita sagði m.a. i leiðara i gær:
„Lýðræðið getur ekki gefizt upp fyrir
starfsemi hryðjuverkamanna.”
Enn sem komið er hafa Rauðu her-
deildirnar ekki gert neinar kröfur um
lausnargjald. í bréfi Moros var farið
fram á aðstoð Vatikansins og
Vatikanið lýsti því yfir í gær að það
myndi reyna að aðstoða. Moro er per-
sónulegur vinur Páls páfa.
Talið er að Moro hafi verið
þvingaður til þess að skrifa bréfið,
annað hvort vegna sálrænna þvingana
eða lyfja. Still bréfsins bendir og til að
hann hafi verið pyntaður.
9
\
Olíuslysið við Frakkland:
Sprengingum lokið
Frönsk flotayflrvöld munu kanna I dag flak risaoliuskipsins Amoco Cadiz til þess
að ganga úr skugga um hvort eitthvað er eftir af oUu í geymum skipsins.
Þyrlur vörpuðu í gær djúpsprengjum á miðhluta flaksins og hafa því
sprengjuaðgerðir flotans staðið í tvo daga. Allir hlutar flaksins hafa nú verið
sprengdir til að olian sem eftir var renni i sjóinn.
Strandlengjan frá strandstaðnum er oUumenguð á 200 km löngum kafla eftir
versta oUumengunarslys sögunnar. Úr lestum skipsins runnu 220 þúsund lestir af
hráolíu í sjóinn.
Slysið hefur drepið fugla og sjávarUf á staðnum og ógnar ferðamannaiðnaði á þess-
um slóðum, en þarna eru strendurnar vinsæll áningarstaður ferðamanna.
Vegna slyssins hefur franska stjórnin sett nýja reglugerð um ferðir oliuskipa. Ekki
er lengur talin veruleg hætta á mengun í Ermarsundi.
— bútasala — útsala —- butasala — útsala — bútasala — útsala — bútasala — útsala — bútasala
Mljóggott
VERÐ
UTSALA
Ull, acryl, nælon
teppabútar,
BUTASALA
stórir og smáir.
Einnig nokkrar rúllur á niðursettu verði
TEPPAVERZLUNIN
FRIÐRIK BERTELSEN
LAGMULA 7 — SÍMI86266
butasala — utsala — bútasala
Carter
íNígeríu
—fyrsta
heimsókn
Bandaríkja-
forseta
Carter Bandarikjaforseti kemur til
Lagos í Nigeríu í dag og er það fyrsta
heimsókn bandarísks forseta til svörtu
Afríku. Heimsóknin er táknræn fyrir
aukinn áhuga Bandaríkjastjórnar á
málefnum þróunarlandanna og þriðja
heiminum. Nigeria er valdamesta ríki
hinna svörtu Afríkuríkja, en í Nígeríu
eru um 80 milljónir ibúa.
Bæði Nixon og Humphrey komu til
ríkja svörtu Afríku, en sem varaforsetar.
Gert er ráð fyrir því að Olusegun
Obasanjo herforingi, þjóðarleiðtogi
Nígeríu, muni tjá Carter forseta
óánægju sina vegna viðbragða hans við
hinni nýju stjórnarmyndun í Rhódesíu.
Þar myndaði Ian Smith sem kunnugt er
bráðabirgðastjórn með hófsamari
leiðtogum blökkumanna. Þá munu þeir
einnig ræða orkumál, en Nígería er
annar stærsti oliuútflytjandinn til
Bandarikjanna. Framtíð dollarans mun
einnigberaá góma.
SNYRTISTOFA - SNYRTIVÖRUVERZLUN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG17
ANDLITS-, FÓT-, HANDSNYRTING
OPIÐ KL 9-5 DAGLEGA - LAUGARDAGA KL 9-4
TÍMAPANTANIR í SÍMA10266