Dagblaðið - 31.03.1978, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978.
13
List og
ómenning
myndi tákna hrun menningar okkar.
Bent er á hrun Rómaveldis. (Líka má
benda á Sódómu og Gómorru, sem
Biblían greinir frá). Talað er um, að
Danir drekki nú beiskan bikar af-
leiðinga klápibylgjunnar i siðferðis-
legri upplausn, og við ættum að gæta
þess að falla ekki í sömu gryfju.
Kjallarinn
IngjaldurTómasson
Mér er í fersku minni gömul mynd i
guðsorðabók, sem til var á heimili
foreldra minna. Hún var af hinum
vonda (djöflinum), þar sem hann er að
sá illgresi í akurinn á jarðlíkani. Sá
vondi er þarna hinn ferlegasti, allur
loðinn með horn, klaufir og langan
hala og kastaði illgresissáðinu úr sáð-
poka eins og sáðmenn notuðu áður
fyrr. Slæmt að þessi mynd er nú senni-
lkega hvergi til, gaman hefði verið að
birta hana með þessari grein, því að i
þeirri mynd hefðu niðurrifsöfl þjóðar-
innar svo sannarlega séð sjálf sig í
spegli. Myndin var óumdeilanlegt
listaverk.
í útvarpsmessu 26. febrúar sl. sagði
presturinn söguafkonuálndlandi sem
kom að eiturnöðru, sem búin var að
vefja sig utan um barn hennar. Hún
hefði getað bjargað barninu, en af því
að naðran var talin heilög, lét hún
hana óáreitta kremja barnið til bana.
Presturinn likti þessu við allan þann
skaðlega óhroða, sem fjölmiðlar, sér-
staklega sjónvarp, flyttu inn á heimili
með þeim hryllilegu afleiðingum sem
svo að segja daglega blasa við augum.
Biskup íslands komst svo hnyttilega
að orðið í stórmerkri nýársræðu um
þetta mikla þjóðarvandamál, að það
væri eins og flóðlýst svikaglæra, sem
erfitt væri að varast. Þetta skilja allir
sem alizt hafa upp i sveit á Islandi.
Ég vil þakka prestinum, sem kom
fram í sjónvarpsþætti um klám á
Kvikmyndahátíð, fyrir ágæta
frammistöðu. Hann sagði eitthvað á
þá leið, að rithöfundurinn og ríkis-
saksóknari væru jafnsekir, annar fyrir
klámmyndahátíð, en hinn ásamt kvik-
myndaeftirliti léti það óátalið, þótt
kvikmyndahús og sjónvarp sýndu
stöðugt hinar sóðalegustu klám-
myndir. Þá var engu líkara en Heródes
og Pílatus yrðu skyndilega vinir og
það var sannarlega ekki óeðlilegt, því
bæði forystumenn Kvikmyndahátðar
og yfirvöld standa beinlínis að því að
troða inn í þjóðina öllum þeim versta
hroða, sem ómannleg niðurrifsónátt-
úra getur upp hugsað.
Nokkrir æðstu menn þjóðarinnar
létu birta myndir af sér með pomp og
prakt við opnun Kvikmyndahátíðar.
Hver kostaði hátiðina og hvemig
stóðu reikningarnir að henni lokinni?
Fleygt er þrjátíu milljónum i kvik-
myndagerðarmenn. Það þykir nú
tæpast lengur umtalsvert, þótt ráða-
menn þjóðarinnar hlaupi með
milljónatugpfj'.rhæðir úr galtómum
sameignarsjéðl þjóðarinnar til ýmissa
vægast sagt vafasamra stofnana.
Ævintýrið Nýju fötin keisarans
greinir frá því, þegar allt fyrirfólkið
þorði ekki annað en dást að klæðun-
um, hvað þau væru vel sniðin og
mynstrin dásamlega fögur, og þegar
hæst stóð hátíðin og aðdáun fólksins,
kom þarna aö litið barn og hrópaði að
keisarinn væri í engu. Þá loksins þorði
fólkið að viðurkenna sannleikann, þvi
að allir vissu, að litið barn segir ekki
ósatt. Þessi saga er nú nákvæmlega að
gerast hér, hvað viðkemur alls konar
ómenningu, sem nú veður uppi, og
fáir viröast sjá eða þora að viðurkenna
þennan ömurlega sannleika, sem lýst
hefur verið að nokkru í þessari grein.
Samtök skólabama hafa unnið gegn
reykingum með ýmsum ráðum og
bent á skaðsemi þeirra. Allir kannast
við sönglagið og hina engilfögru barns-
rödd um reykingabölið. Allir
þjóðhollir menn þurfa að styðja sam-
tök ungs fólks, sem nú er farið að
skilja hið mikla hættuástand
þjóðarinnar. Ég trúi því,að unga fólkið
myndi aldamótakynslóð, sem reisi
þjóðina upp úr hinum djúpa ó-
menningaröldudal, sem hún er nú
stödd í, eins og svo glæsilega átti sér
stað um síðustu aldamót.
Ingjaldur Tómasson,
verkamaður.
Til sölu
SCOUT ÁRG. '74
8 cyl. beinskiptur.
Til sýnis hjá Bifreiðastillingunni,
Smiðjuvegi 38 Kópavogi
Sími 76400
Blaðburöarböm óskast:
TJARNARGA TA, SUÐURGA TA,
VESTURGATA, TÚNGATA,
RÁNARGATA, HRINGBRAUT.
Uppl.ís/ma27022.
MMBÍAÐW
Þinn bíll 15. apríl n.k.,
- sértq Hlnn heppni áskrifandi Dagblaðsins.
Verðmæti er 4.4 miljónir króna.
Gerstu áskrifandi að Dagblaðinu strax í dag.
Áskriftarsími 27022. Opiö til 10 í kvöld.
7i
BIABIÐ
Chevrolet Nova Custom'78
Styrkið og fegríð líkamann
Ný 4ra vikna námskeið hefjast 3. apríl.
Frúarleikfimi — mýkjandi og styrkjandi.
Megrunarleikfimi — vigtun — mæling —
hollráð.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15
kg. eða meira.
Innritun og upplýsingar alla virka daga kl.
13-22 ísíma 83295.
Sturtur — Ijós — gufuböð^— kaffi — nudd.
Júdódeild Armanns
Armúla 32
GERUM LEIÐ
ALMENNINGSVAGNA
GREIÐARI
Þann 1. apríl koma til framkvæmda reglur
um akstur almenningsvagna frá biðstöð.
Þá verður sett merki á afturrúðu vagna
sem aka í þéttbýli.
Merkið er áminning um aö hleypa
vagninum inn í umferðina aftur.
Sýnið tillitssemi, hægið á
eða stöðvið bifreiðina
á meðan vagninn yfirgefur
biðstöðina.
Það munar aðeins sekúndum.
Hleypið vagninum inná!
UMFERÐARRÁÐ
—