Dagblaðið - 31.03.1978, Qupperneq 25
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978.
29
MEÐHJÓLUNDIRIL
Nú dansa bandarískir unglingar
með svo sem fjörutíu kílómetra hraða
á klukkustund á diskótekunum. Þetta
hljómar einkennilega en svo er það nú
samt. Nýjasta æðið er sem sagt aö
mæta í diskódansinn á hjólaskautum.
Hvort diskótekið okkar, Hollywood
eóa Óðal, skyldi nú verða á undan að
koma upp skautagólfi fyrir gesti sína?
— Myndirnar eru úr skautadiskótek-
um í Chicago og Brooklyn.
Almenningsskautahallir viðs vegar
um Bandaríkin eru búnar að koma sér
upp hljómflutningstækjum og fleiru
sem ómissandi þykir í diskótekum. Og
svo rembast allir við að halda takti i
nýjustu diskólögunum, — á skautum
að sjálfsögðu. Þeir sem reynt hafa
eru stórhrifnir og margir hafa náð
mikilli leikni í skautadiskói.
Að sjálfsögðu eru fæstir jafnleiknir
og keppendur á ólympíuleikum og
sumir satt að segja harla stirðbusa-
legir. Þess vegna reyndist nauðsyn að
ráða sérstaka gólfverði til að bjarga
þeim sem verður fótaskortur.
Einn gólfvörðurinn, sem starfar í
Disco Wheels hjólaskautadiskótekinu
í Chicago, segist hafa bjargað fjölda
manns, - aðallega stúlkum ..Það er
nú ekki mikið um beinbrot á dans-
gólfinu,” segir hann, „en rófubeinið er
anzi aumt á mörgum þegar þeir fara
heim.”
ÚrNEWSWEEK
BillyCarterívanda:
Sakaðurumóeðli-
legan gróða af
bensfnstöð sinni
Billy bróðir Jimmy Carters Banda-
ríkjaforseta vekur stöðugt athygli fyrir
óvenjulegar fjáraflaaðgerðir. Þykir
sumum hann færa sér helzt til mikið i
nyt forsetatign bróður síns.
Bræðurnir Billy og Jimmy Carter
Bandarikjaforseti ræðast við á hnetu-
býlinu sem lengi hefur verið i eigu fjöl-
skyldunnar en er nú verið að selja.
Nýjustu fregnir af honum eru þær
að nú sé hann önnum kafinn við að
hrinda þeim ásökunum að hann hafi á
sínum tíma fengið bensín með óeðli-
lega hagstæðum kjörum til að selja á
bensínstöð sinni í Georgíu.
Á þetta að hafa gerzt árin 1973 og
1974 þegar orkukreppan stóð yfir og
Jimmy bróðir hans — núverandi for-
seti — var ríkisstjóri í Georgíu.
Tveir öldungadeildarþingmenn í
ríkinu hafa farið fram á það viö
Griffin Bell, dómsmálaráðherra þess,
að hann skipi sérstaka rannsóknar-
dómara til að kanna málið.
Billy Carter sagði sjálfur i viðtali við
dagblað vestra að hann hefði fengið
svo mikið bensín á hagstæðum kjörum
einfaldlega vegna þess að ekki hefði
verið um að ræða aðra bensinstöð
nærri og hann því orðið að sjá
nágrönnunum og viðskiptavinum sín-
um fyrir nægu eldsneyti á bifreiðar
þeirra.
Forsetabróðirinn var spurður hvort
samkeppnisaðilarnir hefðu einnig get-
að notið hinna góðu kjara við sin
bensínkaup.
Honum varð ekki svarafátt fremur
en fyrri daginn og benti á að í Plains i
Georgiu hefðu ekki verið neinir keppi-
nautar á þessu sviði.
t. n' ....
Söluhörn vantarí eftir-
talin hverfi í Reykjavík:
Hverfi 30 a.
Hverfi 30
V
Kleppsvegur
Hverfi 1.
Seltjarnarnes
Lindarbraut
Vallarbraut
Miðbraut
Melabraut að Bakkav.
Skólabraut að Bakkav.
Unnarbraut
Bakkavör
ásamt bæjum í kring.
Laugarás
Laugalandið
Múlavegur
Engjavegur
Holtavegur
Dyngjuvegur
Sunnuvegur
Hverfi 31
Kleppsspítalinn
Holtav. frá
Langholtsvegi
Vikan
Efstasund að Holtav.
Skipasund að Holtav.
Sæviðarsund að Holtav.
Hverfi 32.
Álfheimar
Hverfi 2.
Látraströnd
Fornaströnd
Selrtrönd
Skólabraut rest
Melabraut rest
Suðurbraut ásamt
bæjum í kring.
Uppl. í síma 36720.
ÍM.AND
1 Þórskaffi sunnudaginn 2.apríl kl. 19-1.00.
Matur
Kvikmynd
Ásadans
Randver
Danssýning
Bingó
Uppákoma
Þeir matargestir sem koma fyrir kl. 20.00 uerða sjálfkrafa
þátttakendur í ferðahappdrœtti og fá ókeypis lystauka.
Borðapantanir í síma 2 33 33 kl. 16-19 daglega.
Pantið snemma því siðast varhúsfyllir!
AUSTURSTRÆTI 12 SÍMI 27077
AW
%
LANDSÝN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16
SÍMI 28899
iSamvinnu-
feróir _