Dagblaðið - 05.04.1978, Síða 10
10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978.
frýálst, úháð dagblað
Útgefandi Dagblaðið hf.
Framkvœmdastjórí: Sveinn R. Eyjótfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson.
Fróttastjórí: Jón Birgir Pétursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí ritstjómar
Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Símonarson. Aðstoðarfréttastjóri: Atii Steinarsson. Handrit:
Ásgrímur Pélsson.
Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stofánsdóttir, Gissur Sigurðs-
son, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ómar
Valdimarsson, Ragnar Lár.
Ljósmyndir Ámi Páll Jóhannsson, Bjarnlotfur Bjamlotfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs-
son, Svoinn Þormóðsson.
Skrrfstofustjóri: Ólafur Eyjótfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorieifsson. Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórs-
son.
Ritstjórn Síðumúla 12. Afgreiðsla ÞverhoKi 2. Áskríftir, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aöal-
sími blaðsins 27022 (10 línur). Áskríft 1700 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 90 kr. eintakið.
Setning og umbrot Dagblaðið hf. Síðumúla 12.
Mynda- og plötugerð: Hilmir hf. Sfðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skotfunni 19.
Nýkróna
Vatnsfleytiskrónan nýtur eðlilega lítill-
ar virðingar. Fáir beygja sig til að hirða
þá mynt, þótt hún liggi fyrir fótum
þeirra. Verðlag hefur, samkvæmt vísi-
tölu framfærslukostnaðar, nálægt fertug-
faldazt síðan 1950, og vísitala byggingar-.
kostnaðar sextugfaldazt. Því væri rökrétt að hundrað-
falda nú verðgildi krónunnar með því að „stytta hana
um tvö núll”, þannig að hundrað krónur verði að einni.
Ríkisstjórnin hefur tök á að leggja grundvöll að þess-
ari breytingu, þótt skammt sé eftir kjörtímabils hennar.
Þingsályktunartillögu í þessa átt-frá Lárusi Jónssyni (S)
var í fyrra vísað til stjórnarinnar með jákvæðri umsögn
þingsins. Fjárhags- og viðskiptanefnd Neðri deildar
mælti með samþykki þingmanna úr fjórum flokkum með
því, að könnun á þessari aukningu verðgildis færi fram
sem þáttur í umfangsmeira verki, sem miðaði að því að
auka virðingu fyrir gjaldmiðlinum og styrkja hann á all-
an hátt.
í ályktun nýafstaðins flokksþings framsóknarmanna
um efnahagsmál segir meðal annars: „Samhliða breyttri
efnahagsstefnu verði gildi krónunnar breytt, þannig að
ein króna svari til hundrað króna í dag. Slík breyting
mun stuðla að hugarfarsbreytingu á sviði peningamála
og auka virðingu manna fyrir gjaldmiðlinum.”
Slík verðgildisaukning ríður ekki baggamuninn ein
sér. En hún er rökrétt afleiðing af stefnu ríkisstjórna
undanfarinna ára. Undir þeirra stjórn hefur verðgildi
krónunnar hrapað svo mjög og virðist enn munu hríð-
falla á næstkomandi árum. Svokölluð stytting krónunn-
ar er því bókhaldsatriði, sem auðveldar notkun íslenzks
gjaldmiðils.
En hún getur eimrig haft þau hagstæðu áhrif að draga
úr verðbólgu með því að betur verði farið með gjaldmið-
ilinn. Hún gæti haft þau sálrænu áhrif, að draga mundi
úr eyðslu. Auk þess gerði hún myntsláttu og seðlaútgáfu
auðveldari.
Miklu meiri aðgerða er þörf til að þjóðin komist úr
ógöngunum, en þessi aðgerð væri í sjálfu sér tiltölulega
einföld og kostnaðarlítil. Svonefnd Nýkróna gæti komið
í stað hundrað króna nú, þannig að gjaldmiðilsbreytingin
yrði gerð smám saman og ný mynt og seðlar yrðu um
nokkurn tíma í umferð samtímis eldri myntinni. Slík
breyting var á sínum tíma gerð í Frakklandi með góðum
árangri, svo að dæmi sé nefnt.
Breyting af þessu tagi hefur lengi verið á dagskrá.
Nefnd kannaði málið fyrir sextán árum á vegum þáver-
andi fjármálaráðherra, Gunnars Thoroddsen, og gerði
tillögur um, að verðmæti gjaldmiðilsins yrði tífaldað.
Árið 1972 var samþykkt þingsályktunartillaga frá Birni
Pálssyni (F) þess efnis, að ríkisstjórn yrði falið að láta at-
huga, hvort tímabært þætti og hagkvæmt að auka verð-
gildi krónunnar þannig að.'tíu krónur yrðu að einni.
Rétt er að hafa í huga, að árið 1972 hafði verðlag,
samkvæmt vísitölu framfærslukostnaðar, tæplega sjö-
faldazt síðan 1950. Svo grátt hafa stjórnvöld leikið krón-
una síðan, að ámóta rökrétt er að ræða nú um hundrað-
földun og var að ræða um tíföldun fyrir svo sem tíu ár-
um. •
Annað er ekki rökrétt en að viðurkenna hið fyrsta,
hversu komið er fyrir íslenzkri krónu, með því að hundr-
aðfalda verðgildi hennar.
JÓNAS
HARALDSSON
Átökin um Naritaf lugvöll í Japan:
Barátta
vinstri manna ________________
gegn stjóm og stjóm-
arfyrirkomulagi
flzinZðn — Reynt að opna flugvöllinn
ummiðjanmaí
Hópur öfgasinnaðra vinstri manna
hefur enn á ný borið harri hlut í við-
skiptum sínum við japanska rikið og
hindrað með ofbeldi opnun hins nýja
Naritaflugvallar í nánd við Tókýó.
Ákvörðun stjórnvalda um að fresta
opnun flugvallarins kom eftir tveggja
daga átök milli öfgamanna og lögregl-
unnar. Átökin á flugvellinum, sem er
60 km norðaustur af höfuðborginni.
yoru á stundum eins og fullkomin
hernaðarátök, þar sem barizt var með
.kylfum og öðrum handhægum vopn-
um, bensínsprengjum og slöngviskot-
um úr stáli.
Meðan á bardögum stóð slapp 10
manna hópur öfgamanna, sem falizt
hafði í undirgöngum undir flugvellin-
um, upp i flugturninn, þar sem
eyðilögð voru flest mikilvægustu
stjórntæki turnsins.
Gegn stjórn og
stjórnar-
fyrirkomulagi
Takeo Fukuda forsætisráðherra
Japans varð að fresta opnunarathöfn-
inni, þar til búið verður að endurnýja
tækin og ákveðið hefur verið að opna
völlinn um miðjan maí ef það þá tekst.
Enda þótt þúsundir andstæðinga
hins nýja flugvallar hafi verið á flug-
vellinum var það aðeins litill hluti
þeirra sem tók þátt í bardögum, e.t.v.
eitt þúsund manns.
Þessi hópur er táknrænn fyrir mestu
andstæðinga stjórnarinnar og stjórn-
arfyrirkomulagsins I Japan, en í Japan
eru nú 112 milljónir íbúa. Þessir öfga-
hópar sækja síðan siðferðis- og stund-
um fjárhagslegan styrk til þúsunda
annarra vinstri manna, sem eru ekki
eins róttækir.
Róttæklingar hafa sameinazt í
heldur furðulegu bandalagi með
ihaldssömum bændum, sem áttu
landið sem tekið var undir flugvöllinn,
en gerð hans lauk árið 1973. Opnun
flugvallarins hefur orðið að fresta ekki
sjaldnaren lOsinnum vegna andstöðu
öfgahópanna.
Vinstri menn
notuðu tækifærið
Bændur vilja land sitt aftur á meðan
vinstri menn nota flugvöllinn til þess
að varpa Ijósi á andstöðu sína gegn
stjórninni, auðvaldsfyrirkomulaginu,
þ.e. núverandi ástandi í Japan, sem
fylgir vestrænni fyrirmynd. Með því
að ganga í lið með bændum öðlast
öfgamenn stuðning ýmissa hópa
meðal almennings.
Margir Japanir eru einnig óánægðir
með stjórnina vegna efnahagsstjórnar
hennar, sem þeir telja ranga. Þeir
styðja því hópa, sem lýsa yfir aðgerð-
um gegn stjórninni, þótt ekki séu allir
meðmæltir beitingu ofbeldis til þess að
ná sínu fram.
Mótmælendur varpa bensínsprengjum
I átökunum á Naritaflugvelli. Bensínið
hefur hér hellzt yfir einn mótmælend-
anna og föt hans veróa þegar alelda.
Hinir harðskeyttu mótmælendur
búa i tugum byrgja sem reist hafa
verið á landi i einkaeign i námunda við
flugvöllinn. Það byrgi, sem mesta
eftirtekt vakti, var þriggja hæða stein-
steypt virki, sem lögregla réðst á fyrir
rúmri viku, þ.e. á mánudag í síðustu
viku. Innan virkisins höfðu mótmæl-
endur reist 18 m háan turn en reglur
banna svo háar byggingar umhverfis
flugvelli.
Mótmælendurnir hafa tekið upp að-
ferðir skæruliða þar sem lítill hópur
gerir árás á flugvöllinn, en hans gæta
þúsundir lögreglumanna. Eftir árásina
forða skæruliðarnir sér síðan. Þessi
nýja aðferð hefur verið árangursrik.
Þegar tíu manna hópi tókst að eyði-
leggja tæki í flugturninum voru yfir 13
þúsund lögreglumenn á verði. Þegar
yfir þúsund manna lögreglulið réðst á
virkið og turninn á mánudag sluppu
flestir skæruliðarnir i gegnum jarð-
göng út í aðliggjandi skóg. Næsta dag
kveiktu 12 öfgamenn í hinum nýja
flugvallarhóteli áður en þeir hurfu út í
myrkrið.
Verður skotvopnum
beitt?
Lögreglan, sem et ekki allt of hreyk-
in af árangri sinum gegn öfgamönnun-
um fram að þessu, hefur komið af stað
athugun á þvi á hvern hátt helzt megi
auka öryggi flugvallarins. Sú athugun
á að leiða í Ijós hvort lögreglunni
leyfist framvegis að nota skotvopn i
baráttu sinni við öfgamenn, en hingað
til hefur einungis verið beitt táragasi.
vatnssprautum og kylfum.
Athugun þessi hófst eftir að lögregl-
an fann rafknúna skutla í fórum öfga-
mannanna, sem hefðu getað drepið
menn. Ef slikir skutlar lenda i málm-
skjöldum lögreglumanna fá þeir í sig
5000 volta rafstraum.
Viðskipta- og fjármálamenn í
Tókyó, sem flestir eru mótfallnir hinni
nýju staðsetningu flugvallarins, hafa
fengið nokkurra vikna frest til viðbót-
ar. Það sem þeir hafa helzt á móti flug-
vellinum er fjarlægðin frá höfuð-
borginni, en vegna hinnar miklu um-
ferðar tekur það um þrjár klukku-
stundir að komast frá miðborginni í
Tókyó til flugvallarins.
Nú er Haneda flugvöllur viðTókyó-
flóann notaður og þrátt fyrir betri að-
stöðu við Narita kjósa þeir heldur að
nota Haneda flugvöll en að þurfa að
ferðast til Narita í þrjá tíma.