Dagblaðið - 27.04.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1978.
3
Venðlag veitinga á Söngleikjum 78:
GOSGLASIÐ HÆKKAÐI
UM MEIR EN HELMING
Á EINNIKVÖLDSTUND
7873-3624 skrifar:
Ég var einn þeirra fjölmörgu, sem
fékk að njóta þeirrar ánægju að taka
þátt í stórglæsilegri og velskipulagðri
sönghátið Landssambands blandaðra
kóra, „Söngleikar 78”. sem haldin var
í Háskólabíói og Laugardalshöll dag-
ana 14. og 15. apríl sl.
Hátíðahaldið fór frábærlega vel
fram, var vel heppnað að öllu leyti og
stjórnendum til mikils sóma. Hámarki
var náð með flutningi þjóðsöngsins. er
allir kórarnir sungu saman. og var það
ógleymanlegt.
Um kvöldið var haldin hátiðar-
samkoma í Laugardalshöll. og var hún
með glæsibrag og þar framreiddar
gómsætar kræsingar.
Eitt var þó með þeim hætti. að ég á
erfitt með að skilja, hvernig á því getur
staðið. Þegar ég kom á samkomuna,
keypti ég eitt glas af Coca Cola og
kostaði það kr. 200.00. Siðar um nótt-
ina varð ég aftur þyrstur og fór þá að
bar innst inni i danssalnum og bað þar
einnig um eitl glas af sama drykk. Þar
kostaði það kr. 350.00. Hvernig
stendur á svona verðlagningu? Hver
er munurinn á verði þessa drykks i
anddyri og danssal? Þjónustan var
með nákvæmlega sama hætti; látið
var renna i glas úr þartilgerðum krana.
en glasið siðan rétt fram á barborðið.
Er hér um að ræða duttlunga af-
greiðslufólksins eða er verið að reyna
að notfæra sér. að fólk er orðið meira
við skál. er liða tekur á nóttina, og þvi
ef til vill örlátara á fé? Bágl á ég með
að trúa þvi. að verðlagsyfirvöld sam-
þykki slika hentistefnu i verðlagningu.
Gaman væri að fá skýringu frá við-
komandi aðilum.
Svar:
Á skrifstofu verðlagsstjóra fékk
blaðið þær upplýsingar að áður en
verðstöðvun gekk i gildi hafi þessi
álagning verið frjáls. Við verðstöðvun-
ina hættu húsin að hækka án leyfis og
hafa fengið fasta prósentuhækkun
siðan. Það þýðir að þeir sem seldu dýr-
ast fyrir verðstöðvun, selja enn dýrar. ■
hlutfallslega, nú en þeir sem seldu
ódýrar þá.
Varðandi þessa hækkun á einu
kvöldi. taldi embætlismaðurinn að sá
er hafði veitingaleyfið hefði hækkað
gosverðið eftir að vinveitingar hófust
til samræmis við gosverð á sinum veit-
ingastað. Hins vegar væri mjög erfitl
að fylgjast með verðlagi á samkomum
sem þessum. sem aðeins væru eitt
kvöld.
Eölur
blaka
ekki
vængj-
um
Eðluvinur hringdi:
Ég vil taka undir kvikmyndagagn-
rýnina sem birtist i DB á þriðjudag um
myndina Fólkið sem gleymdist. Hún
var illa leikin og tæknilega illa gerð.
sérstaklega fomaldardýrin.
Hins vegar er ég ekki sammála
gagnrýnandanum er hann finnur að
eina atriðinu, sem var vel og rétt gert.
Finnur hann að því þegar forneðlurn-
ar réðust á flugvélina að þær hafi ekki
blakað vængjunum.
Vil ég hér með upplýsa hann um að
skv. áreiðanlegum heimildum blökuðu
þessar ijðlur ekki vængjunum, heldur
flugu nánast eins og svifflugur.
Raddir
lesenda
STÓRA NAFNIÐ í GERÐ SJÓNVARPSLEIKTÆKJA
ÁRMÚLA 38 (Selmúla megin) 105 REYK.IAVÍK
SÍMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF1366
»»- V»
A ‘A 'I ^
[\daio
Hvað er
sumar?
(Spurt á barnahéimilinu Steinahlið).
Logi Þór Laxdal, 3ja ára: Mér finnst
gaman i sumrinu. Þegar mamma min er
búin að fá marga peninga ætlar hún að
kaupa stórt hjól handa mér.
Kristinn Freyr, 4ra ára: Þá kemur sól og
gotl veður.
Dagur Eiríksson, 5 ára: Sumar? Þá
kemur hiti og sól og þá fer maður lika i
fótbolta.
Hjalti íslcifsson, 4ra ára: Veit ekki hvað
það er. Ég fcr bara að renna mér i renni
braulinni og klifra lika.
Guðjón, kallaður Gauji, 3ja ára: Einu
sinni * sumrinu þá sá ég kaninu þegar ég
fór með mömmu minni að tina ber.
Axel Ársælsson, 5 ára: Sumarið cr bara
sumar. Þá er maður að leika sér úti — og
stundum kemur sól og gott veður i
sumrinu.