Dagblaðið - 27.04.1978, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1978.
16
r
Innlend myndsjá
UMEINAUTLA
LEYNILÖGGU..
„Ég ætla að verða leynilöRga,”
sagði einn af ungu mönnunum á mynd-
inni þegar blm. spurði hvað þcir
ætluöu að verða þegar þeir yrðu störir.
Þá gall í öðrum: „Ég ætla að verða
lögga,” og einn bætti við „og lika kaf-
ari.”
Þá vitum við það. Lögreglustarfið er
enn meðal þeirra starfa sem litlir
strákar vilja helzt kjósa sér. — Þessir
strákar voru að grafa með forkunnar
finum „gröfum” i sandkassanum hjá
ídu í Steinahlið einn góðviðrisdaginn
fyrir skömmu. DB-mynd Bjarnleifur.
Leika fótbolta án þess
Aflaskipið
færnýttafl
Hörmungasaga aflaskipsins Sigurðar
er flestum kunn. Togarinn var úr leik
þessa vertíðina vegna skemmda á vél
hans. Þessa dagana er Sigurður í
Trollháttan i Sviþjóð f vélaskiptum hjá
Bofors. Að sögn eftirlitsmanns út-
gerðarinnar við vélaskiptin hjá Bofors,
Jóhanns Jóelssonar, er reiknað með
að skipið geti látið úr höfn um næstu
mánaðamót og haldi það þá til veiða
við Færeyjar. Myndin sýnir þegar
Nohab-vélinni, 12 strokka 2400 hest-
afla, var lyft með krönum um borð i
skipið á dögunum.
Láta ekki
að sér hæða....
Grundfirðingar kunna vel að meta
nýju sundlaugina. Á dögunum kyngdi
niður snjó — engu að síður var laugin
full af ungu sundfólki. Harðir menn,
Snæfellingar!
— DB-mynd Bæring.
V
að nota fæturna
Allri tækni hefur fleygt fram á undan-
förnum árum og ekki er hægt að segja
að alls konar lciktæki hafi orðið þar
útundan. Það má bezt sjá á þvf að nú
er hægt að keppa í fótbolta án þess að
nota fæturna. Nú eru nefnilcga komin
fram á sjónarsviðið svokölluö sjón-
knattleikstæki sem hafa skerm eins og
sjónvörp og nokkra takka til að
stjórna leiknum. Undanfarnar tvær
vikur hefur staðið yfir í Óðali Reykja-
vfkurmót i sjónknattleik. Leiknar voru
9 umferðir og komust 4 efstu menn í
úrslitakeppnina sem fram fór laugar-
daginn 15. apríl. Veitingahúsið Óðal
gaf glæsilcgan bikar til keppninnar og
í mótslok afhenti Þorsteinn Gunnars-
son fyrir hönd Óðals sigurvegaranum
Jóhanni Stefánssyni bikarinn.
ESKJ
Gluggarnir
þóttu
hneykslan-
lega stórir
Hvar eru höklarnir?
Einhver allra undarlegasti þjófnaður
sem um getur á siðari árum er stuldur-
inn á þrem messuhöklum úr Frikirkj-
unni í Reykjavlk. Þrátt fyrir áskoranir
til þjófsins eða þjófanna hafa höklarnir
ekki komið i leitirnar. Höklarnir eru
ómetanlegir fyrir kirkjuna en fyrir
þjófa munu þeir væntanlcga aldrei
verða nokkurs virði.
Einn höklanna hefur verið notaður
af prestum safnaöarins frá upphafi,
annan gaf Hjalti Jónsson skipstjóri og
útgerðarmaður kirkjunni árið 1949.
Safnaðarstjórnin heitir á fólk að
hafa augun opin og láta rannsóknar-
lögrcgluna vita ef það gæti gefið ein-
hverjar upplýsingar um hvar höklarnir
eru niður komnir.
Dömurnar
hans
Ein af þcssum gömlu verzlunum,
sem enn lifir í Reykjavík, er bygginga-
vöruverzlunin Brynja að Laugavegi
29. Líklega hefur viðskiptavinunum
brugðið i brún þegar þeir komu þar að
lokuðum dyrum. En Brynja opnaði
aftur — og þá kom í Ijós aö búið var að
„lyfta andlitinu”. Innréttingarnar
höfðu þá staðið i 50 ár og þjónað vel.
Nú hverfur semsé gamli „diskurinn”
fvrir léttari innréttingum. Árið 1906
þóttu gluggar verzlunarinnar
„hneykslanlega stórir” — þeir halda
'sér áfram en vekja hreint enga
hneykslan manna. Brynja verður 60
ára á næsta ári. Eigandi Brynju er
Björn Guömundsson. Myndin er úr
nýju búðinni — innsetta myndin af
Brynju í gamla daga meðan Marteinn
Einarsson var enn við lýði.
Ingólfs
Þessi fríði hópur kom fram á Útsýnar-
kvöldi fyrir skemmstu og tók þátt f feg-
urðarsamkeppni um titilinn Ungfrú
Útsýn. Laglegur hópur, ekki satt?
DB-mvnd Ragnar Th. Sig.