Dagblaðið - 28.04.1978, Síða 4
18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1978.
ÚTVARP NÆSTU VIKU
11.00 Messa í Dómkirkjunni. Prestur: Séra
Hjalti Guðmundsson. Organleikari: Gústaf
Jóhannesson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.20 Afstæóishyggja 1 siðfræði. Mike Marlies
• gistilektor flytur siðasta erindi í flokki hádegis-
erinda um viðfangsefni í heimspeki.
14.00 Miðdegistónleikar. a. Fiðlukonsert i a-
moll op. 53 eftir Antonin Dvorák. Josef Suk
og Tékkneska fílharmoníusveitin ieika; Karel
Ancerl stjórnar. b. „Brasilíuþrá”, svíta mynd-
rænna dansa eftir Darius Milhaud. Hljómsveit
Franska rikisútvarpsins leikur; Manuel
Rosent^hal stj.
15.00 Landbúnaður á íslandi: — fyrsti þáttur.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. Tæknivinna:
Guðlaugur Guöjónsson.
16.00 íslenzk einsöngslög: Inga Maria Eyjólfs-
dóttir syngur lög eftir Bjama Böðvarsson o.fl.
ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 íslenzk maiblóm. Ingimar óskarsson
náttúrufræðingur flytur erindi (Áður útv. i
apríl 1967)
16.50 Kórsöngun Fischer-kórinn 1 WUrtenberg
syngur vinsæl lög. Söngstjóri: Gotthilf
Fischer.
17.30 Útvarpssaga barnanna: „Steini og Danni
á Öræfum” eftir Kristján Jóhannsson. Viöar
Eggertsson les (7).
17.50 Dansar i gömlum stíl. Per Bolstad og Káre
Korneliussen leika á harmónikur ásamt
hljómsveit.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningai.
19.25 Boðið til veizlu. Bjöm Þorsteinsson
prófessor flytur þriðja þátt úr Kínaför 1956;
dálitla glæpasögu.
19.55 Frá tónleikum Kammermúsikklúbbsins i
Bústaðakirkju 3. febr. s.l. siðari hluti: Franski
tónlistarflokkurinn „La Grande Ecurie et la
Chambre du Roy” flytur „Alcione”-svituna
eftir Marin Marais og Kantötu fyrir sópran og
hljómsveit eftir Joseph Bodin de Boismortier.
Einsöngvari: Sophie Boulin. Stjórnandi: Jean-
Claude Malgorie.
20.30 Útvarpssagan: „Nýjar skuldir” eftir
Oddnýju Guðmundsdóttur. Kristjana E.
Guðmundsdóttir lýkur lestri sögunnar (5).
20.55 Frá orgeltónleikum í Dómkirkjunni. Karel
Paukert leikur verk eftir Sweelinck, Bach,
Liszt, Ligeti, Alain, og Eben.
21.25 Um suðurhluta Afríku. örn Ólafsson
menntaskólakennari flytur fyrra erindi sitt.
22.00 „Ljóð án orða”. Rena Kyriakou leikur
pianóverk eftir Mcndelssohn.
22.20 Úr visnasafni Útvarpstíðinda. Jón úr Vör
flytur níunda þátt.
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
22.45 Kvöldtónleikar. „Ameríkiimaður í París”,
hljómsveitarverk eftir George Gershwin.
Hátíðarhljómsveit Lundúna ,leikur; Stanley
Black stjórnar. „Vor í Appalakíufjöllum”,
ballettmúsik eftir Aaron Copland. Fíl-
harmóniusveitin i New York leikur; Leonard
Bernstein stjórnar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
1. maí
Hótfflísdagur
verkalýflsins
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05:
Valdimar ömólfsson leikfimikennari og
Magnús Pétursson pianóíeikari. Fréttir kl.
7,30,8.15 (og forustugr. landsmálabl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55: Séra Guðmundur
Þorsteinsson flytur (a.v.d.v.). Morgunstund
barnanna kl. 9.15: Margrét ömólfsdóttir les
framhald þýðingar sinnar á sögunni „Gúró”
eftir Ann Cath. — Vestly (10). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriða. tslenzkt mál kl.
10.25: Endurtekinn þáttur dr. Jakobs
Benediktssonar. Tónlelkar kl. 10.45. Nútíma-
tónlist kl. 11.00: Þorkell Sigurbjömsson
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar.
13.05 Tónleikar. a. „Sóleyjarkvæði”, tónlist
eftir Pétur Pálsson við Ijóðaflokk Jóhannesar
úr Kötlum. Eyvindur Erlendsson stjómar
flutningi lesara og söngvara. b. „Sauma-
stofan”, lög og ljóð eftir Kjartan Ragnarsson.
Leikarar i Leikfélagi Reykjavikur syngja.
Útsetjari tónlistarinnar, Magnús Pétursson,
o.fl. hljóðfæraleikarar leika.
14.25 Útvarp frá Lækjartorgi. Útihátíðarhöld 1.
mai-nefndar verkalýösfélaganna i Reykjavík.
Fluttar verða ræður og tónlist, m.a. leika
Lúörasveitin Svanur og Lúðrasveit verkalýðs-
ins.
15.30 Kórsöngun Alþýðukórinn syngur. Söng-
stjóri: Dr. Hallgrímur Hclgason.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popphorn. Þorgeir Ástvaldsson kynnir.
17.30 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifsson
sérum timann.
17.45 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.Tilkynningar.
19.40 Um daginn og veginn. Aðalheiður Bjarn-
freösdóttir formaður starfsstúlknafélagsins
Sóknar talar.
20.00 Lög unga fólksins. Rafn Ragnarsson
kynniri
20.50 U iumál verkálýðshreyfingarinnar.
H.ialti JÖ!; Svcinsson stjórnar samfelldri dag-
skrá ilar m.a. um almenna þátttöku i
félaíi iiþýðusamtakanna.
22.00 „Gav i ’ svítan eftir Aram Katsja-
túrjan. t.veitin Filharmonia i Lun-
dúnum ieik'ar; höfundurinn stjórnar.
22.30 Veðuríregnir, Fréttir.
22.50 Danslög.
23.55 Fréitir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
2. maí
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00,
8.15 og 10.10. Morgunleikfími kl. 8.15 og
9.05. Frétfir kl. 7.30, 8.15, 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund bamanna
kl. 9.15: Margrét örnólfsdóttir les framhald
sögunnar „Gúró” eftir Ann Cath.-Vestly (II).
Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt
lög milli atriða. Hin gömlu kynni kl. 10.25:
Valborg Bentsdóttir sér um þáttinn. Morgun-
tónieikar kl. 11.00: Hljómsveitin „Har-
monien” í Björgvin leikur Norska rapsódíu nr.
1 op. 17 eftir Johan Svendsen; Karsten Ander-
sen stj. / Sinfóníuhljómsveit útvarpsins i
Moskvu leikur Sinfóníu nr. 3 í D-dúr op. 33
eftir Aledander Glazúnoff; Boris Khajkin stj.
12.00 Dagskráin.Tónleikar.Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
^4.30 Miðdegissagan: ,3»ga af Bróður Ylfing”
eftir Friðrik Á Brekkan. Bolli Gústavsson les
(12).
15.00 Míðdegistónleikar. Itzhak Perlman og
Vladimir Ashkenazý leika Sónötu nr. 1 i f-moll
fyrir fiðlu og pianó op. 80 eftir Prokofjeff.
Jacqueline Eymar og strengjakvartett leika
Pianókvintett í d-moll op. 89 eftir Gabriel
Fauré.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popp.
17.30 LitU barnatíminn. Gisli Ásgeirsson sér um
tímann.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Um veðmál. Jón Kristjánsson fiski-
fræöingur talar um silungsrannsóknir.
20.00 Ptanósónata nr. 2 op. 64 eftir Dmitrl
Sjostakóvitsj. Emil Gilels leikur.
20.30 Útvarpssagan: „Kaupangur” eftir Stefán
Júliusson. Höfundur byrjar lestur sögunnar.
21.00 Kvöldvaka: a. Einsöngun Maria Markan
syngur lög eftir islenzk tónskáld. b. Undir
eyktatindum. Sigurður Kristinsson kennari
flytur annan frásöguþátt sinn um byggð og bú-
skap.á Fjarðarbýlum Mjóafjarðar. c. Kvæða-
lög: Magnús Jóhannsson kveður „Mansöng”
eftir Sigurð Breiöfjörð, „Ljóðabréf til litillar
stúlku” eftir Jóhannes úr Kötlum og „Læk
inn” eftir Gísla ólafsson. d. Eins og Napóleon
á Stóra-Grána. Björn Egilsson á Sveinsstöðum
í Tungusveit segir frá Pétri Björnssyni gangna-
stjóra í Teigakoti. Baldur Pálmason les frásög-
una. e. Stúlkan á heiðinni. Sigurður Ó. Pálsson
les frásöguþátt eftir Jón Björnsson frá Hnefils-
dal og kvæði eftir Benedikt Gíslason frá Hof-
teigi. f. Kórsöngur: Kór Söngskólans í Reykja-
vík syngur islenzk lög; söngstjóri: Garöar
Cortes.
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
22.50 Harmonikulög. Heidi Wild og Renato Bui
leika.
23.00 Á hljóðbergi. „Vangaveltur yfir vondum
heimi”: Bandaríski orðleikjasmiðurinn Ogden
Nash og danski heimspqjíingurinn Piet Hein
velta vöngum í bundnu máli.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
3. maí
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00,
8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 9.15: Margrét örn-
ólfsdóttir heldur áfram lestri sögunnar „Gúró”
eftir Ann Cath.-Vestly (12). Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25 Filharmoniusveit
Lundúna leikur „Jepta”, forleik eftir Hándel;
Karl Richter stj. / Hans Heintzw leikur á orgel
„Sjá morgunstjarna blikar blíð” fantasiu eftir
Buxtehude / Agnes Giebel og Marga Höffgen
syngja með kór og hljómsveit leikhússins i
Feneyjum „Te deum” eftir Vivaldi; Vittorio
Negri stj. Morguntónleikar kl. 11.00: Fíl-
harmoníuhljómsveit Lundúna leikur „Töfra-
sprota íeskunnar”, svítu nr. 1 op. 1 eftir
Edward Elgar; Eduard van Beinum stj. / Fíl-
harmoníuhljómsveitin í Los Angeles leikur
„Petrúsjka”, ballettmúsik eftir Igor
StravinSky; Zubin Metha stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðufregnir og fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Saga af Bróður Ylfing”
eftir Friðrik Á. Brekkan. Bolli Gústavsson les
(13).
15.00 Miðdegistónleikar. Sinfóniuhljómsveit
Berlinar leikur „Á ferð um skóginn”, hljóm-
sveitarþátt eftir Oskar Lindberg; Stig Rybrant
stjórnar. Dennis Brain og hljómsveitin Fílhar-
monia i Lundúnum leika Hornkonsert eftir
Paul Hindemith; höfundurinn stjórnar.
Mstislav Rostropóvitj og Enska kammer
sveitin leika Sinfóniu fyrir selló og hljómsveii
op. 68 eftir Benjamin Britten; höfundurinn
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
,irt.
16.20 Popphorn. Halldór Gunnarsson kynnir.
17.30 Útvarpssaga barnanna. „Steini og Danni á
öræfum” eftir Kristján Jóhannsson. Viðar
Eggertsson les sögulok (8).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.Tilkynningar.
19.35 Gestur i útvarpssal: Martin Berkowsky
leikur á pianó Kinderszenen eftir Robert Schu-
mann.
20.00 Að skoða og skilgreina. Kristján E. Guö-
mundsson tekur saman þáttinn, sem fjallar um
hópmyndun meðal unglinga, uppreisn gegn
foreldrum og samfélagi o.fl. (Áður á dagskrá i
janúar 1976).
20.40 Íþróttir. Umsjón: Hermann Gunnarsson.
21.00 Stjörnusöngvarar fyrr og nú. Guðmundur
Gilsson rekur feril frægra þýzkra söngvara.
Þrettánd ogsiðsti þáttur: Peter Anders.
21.30 Dómsmál. Björn Helgason hasstaréttarrit-
ari segir frá.
21.50 íslenzk tónlist: Sjöstrengjaljóð eftir Jón
Ásgeirsson. Sinfóniuhljómsveit íslands leikur;
Karsten Andersen stjórnar.
22.05 Kvöldsagan: Ævisaga Sigurðar Ingjalds-
sonar frá Balaskarði. Indriði G. Þorsteinsson
rithöfundur les siðari hluta (4).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Djassþáttur í umsjá Jóns Múla Áma-
sonar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
4. maí
Uppstigningardagur
8.00 Morgunandakt. Séra Pétur Sigurgeirsson
vigslubiskup flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Útdráttur úr
forustugr. dagbl.
8.35 Létt morgunlög. London Pops hljómsveitin
leikur.
9.00 Morguntónleikar (10.10 Veðurfregnir.
10.25 Fréttir). a. „Pomp and Circumstance”,
mars nr. 1 i D-dúr op. 39 eftir Edward Elgar
Hljómsveitin Filharmónía i Lundúnum leikur:
Sir John Barbirolli stjórna b. Óbókonsert i D-
dúr eftir Richard Strauss. Heinz Holliger og
Nýja fílharmóniusveitin i Lundúnum leika;
Edo de Waart stjórnar. c. Pianókonsert nr. 1 i
b-moll op. 23 eftir Pjotr Tsjaikovský. Peter
Katin og Sinfóniuhljómsveit Lundúna leika;
Edric Kundell stjórnar d. Fiðlukonsert nr. 3 i
h-moll op. 61 eftir Camilla Saint-Saens. Arthur
Grumiaux og Lamoureux hljómsveitin i Paris
leika; Jean Fournet stjórnar.
11.00 Messa í Aðventkirkjunni. Siguröur
Bjarnason prestur safnaðarins predikar. Kór
og kvartett safnaðarins syngur undir stjórn
Garðars Cortes. Einsöngvari: Birgir
Guðsteinsson. Organleikari: Lilja Sveinsdóttir.
12.15 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Á
friv aktinni. Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Saga af Bróður Ylfing”
eftir Friðrik Á. Brekkan. Bolli Gústavsson les
(14).
15.00 Miðdegistónleikar. a. Magnificat eftir
Johann Sebastian Bach. Flytjendur: Ann-
Marie Connors, Elísabet Erlingsdóttir,
Sigríður E. Magnúsdóttir, Keith Lewis,
Hjálmar Kjartansson, Pólifónkórinn og
kammersveit.. Stjórnandi: Ingólfur
Guðbrandsson. b. Sinfónia nr. 96 i D-dúr
„Kraftaverkið” eftir Joseph Haydn. Clcveland
hljómsveitin leikur; George Szell stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 „Heimsljós”, sjö söngvar fyrir barytón og
hljómsveit eftir Hermann Reutter við Ijóð úr
samnefndri skáldsögu Halldórs Laxness.
Guömundur Jónsson og Sinfóniuhljómsveit
íslands flytja; Páll P. Pálsson stjórnar.
16.40 Góð eru grösin. Sigmar B. Hauksson
tekur saman þáttinn og ræðir við Ástu
Erlingsdóttur grasalækni og Vilhjálm Skúla-
son prófessor (Áður á dagskrá annan páska-
dag).
17.30 Lagið mitt. Helga Þ. Stephensen kynnir
óskalög bama innan tólf ára aldurs.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 tslenzkir einsöngvarar og kórar syngja.
20.10 Leikrit: „Á útleið” eftir Sutton Vane.
Þýðandi: Jakob Jóh. Smári. Leikstjóri: Jón
Sigurbjömsson. Persónur og leikendur:
Scrubby...Valdemar Helgason. Anna...Lilja
Þórisdóttir. Henry...Sigurður Skúlason. Tom
Prior...Hjalti Rögnvaldsson. Frú Cliveden-
Banks...Auður Guðmundsdóttir. Séra William
Duke ..Bjarni Steingrimsson. Frú
Midget... Anna Guðmundsdóttir.
Lingley...Steindór Hjörleifsson. Séra Frank
Thomson...Valur Gislason.
22.10 Einsöngur I útvarpssal: ólafur Þorsteinn
Jónsson syngur lög úr óperettum eftir Lehár,
Johann Strauss o.fl. Ólafur Vignir Albertsson
leikur á pianó.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Rætt til hlítar. Þórunn Sigurðardóttir
stjómar umræðum um fólksfjölgun á íslandi.
Þátturinn stendur i u.þ.b. klukkustund.
Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
5. maí
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7,00, 8.15
og 10,10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05.
Fréttir kl. 7,30, 8.15, 9.00 og 10.00 Morgun-
bæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 9.15:
Margrét örnólfsdóttir les þýðingu sina á sög-
unni „Gúró” eftir Ann Cath. — Vestly (13).
Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt
lög milli atr. Það er svo margt kl. 10.25: Einar
Sturluson sér um þáttinn. Morguntónleikar kl.
11.00: Péter Pongrácz, Lajos Tóth og Mihály
Eisenbacher leika Tríó i C-dúr fyrir tvö óbó og
enskt horn op. 87 eftir Beethoven/Lazar
Berman leikur Pianósónötu i h-moll eftir
Franz Liszt.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Saga af Bróður Ylfing”
eftir Friðrik Á. Brekkan. Bolli Þ. Gústavsson
les (15).
15.00 Miðdegistónleikar. Leontyne Price og
Nýja filharmoníusveitin flytja „Knoxville,
sumarið 1915”, tónverk op. 24 fyrir sópran
rödd og hljómsveit eftir Samuel Barber;
Thomas Schippers stjórnar. Clifford Curzon
og Sinfóniuhljómsveit Lundúna leika Píanó-
konsert nr. 2 eftir Alan Rawsthorne; Sir
Malcolm Sargent stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popp.
17.30 Útvarpssaga barnanna: „Stúlkan Fríða og
skrímslið”, franskt ævintýri í endursögn Alans
Bouchers, þýtt af Helga Hálfdanarsyni. Þor-
björn Sigurðsson les.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.Tilkynningar.
19.35 Um mannréttindadómstól Evrópu. Þór
Vilhjálmsson hrestaréttardómari flytur erindi.
20.00 Sinfónískir tónleikar. Sinfónía nr. 3 í a-
moll op. 44 eftir Sergej Rakhmaninoff; Fíla-
delfiuhljómsveitin leikur; Eugene Ormandy
stjórnar.
20.40 Um suðurhluta Afriku. örn Ólafsson
menntaskólakennari flytur síöara erindi sitt.
21.10 Óperutónlist: Mario del Monaco syngur
ariur úr óperum eftir Verdi, Hljómsveit óper-
unnar í Monte Carlo leikur með, Micola
Rescigno stjórnar.
21.25 „Saga úr þorskastriði”, eftir Anton Helga
Jónsson. Höfundur les.
21.45 tslenzk tónlist: Pétur Þorvaldsson leikur á
selló og ólafur Vignir Albertsson á píanó.
22.05 Kvöldsagan: Ævisaga Sigurðar Ingjalds-
sonar frá Balaskarði. Indriði G. Þorsteinsson
les (5).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Gleðistund. Umsjónarmenn: Guðni
Einarsson og Sam Daniel Glad.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
6. maí
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00,
8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og
8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Tilkynningar kl. 9.00. Létt lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 9.15: Kristin Svein-
björnsdóttir kynnir. Barnatimi kl. 11.10:
Stjórnandi: Sigrún Bjömsdóttir. Lesið úr
„Kofa Tómasar frænda”, sögu eftir Harriet
Beecher Stowe, og sagt frá höfundinum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 Vikan framundan. Sigmar B. Hauksson
kynnir útvarps- og sjónvarpsefni.
5.00 Miðdegistónleikar. a. Barry Tuckwell og
Vladimir Ashkenazý leika Sónötu í Es-dúr,
fyrir horn og pianó op. 28 eftir Franz Danzi. b.
Evelyn Lear syngur lög eftir Hugo Wolf við
Ijóð eftir Eduard Mörike; Erik Werba leikur
undir á pianó.
15.40 íslenzkt mál. Ásgeir Blöndal Magnússon
fiytur þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðúrfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.00 Enskukennsla (On We Go). Leiðbeinandi:
Bjarni Gunnarsson.
17.30 Barnalög.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Við Heklurætur. Jón R. Hjálmarsson
ræðir við Harald Runólfsson í Hólum á Rang-
árvöllum; fyrsti þáttur.
20.05 Hljómskálamúsik. Guðmundur Gilsson
kynnir.
20.40 Ljóðaþáttur. Umsjónarmáður: Njörður P.
Njarðvik.
21.00 íslenzk tónlist: a. Lög eftir Gylfa Þ. Gisla-
son við Ijóð eftir Tómas Guðmundsson.
Róbert Arnfinnsson syngur. Hljómsveit Jóns
Sigurðssonar leikur. b. Lög eftir Emil
Thoroddsen. Karlakór Reykjavíkur syngur.
Söngstjóri: Páll P. Pálsson.
21.40 Stiklur. Þáttur með blönduðu efni í umsjá
Óla H. Þórðarsonar.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp Iaugardaginn6. maí: Karluk
NÝ HLIÐ Á VILHJÁLMISTEFÁNSSYNI
Skotinn William McKinley, sem
kominn er á niræðisaldur, er liklega
eini maðurinn sem enn er á lifi og lifði
það að fara i heimskautaferð með Vil-
hjálmi Stefánssyni. Þeir fóru ásamt
fleirum á heimskautafarinu Karluk til
Norðurskautsins fyrir um sextiu árum
og var Vilhjálmur leiðangursstjóri.
Um þessa reynslu sína hefur
McKinley ritað bók undir nafninu
Karluk og kom hún út í íslenzkri
þýðingu nú fyrir jólin. Og í sjónvarpi á
laugardagskvöldið 6. mai verður rætt
við hann í skozkri heimildarmynd um
þessa einstæðu reynslu.
Óskar Ingimarsson, sem þýðir
heimildarmyndina um Karluk, sagði
að McKinley bæri Vilhjálmi ekkert
Ein þeirra gömlu mynda sem birt var i bókinni Karluk. Vilhjálmur er lengst til
hægri en meó honum eru liffræðingurinn Fritz Johansen og mannfræðingurinn
Henry Beuchat.
allt of vel söguna. Hann kemur fram
með sjónarmið sem við tslendingar
1 höfum ekki heyrt fyrr.
Svipað kemur fram í bók McKinley
sem hefur notið mikilla vinsælda
eftir því sem starfsfólk á Borgarbóka-
safninu sagði. Stöðvast bókin litt inni
og er biðlisti eftir því að fá hana
lánaða.
En McKinley fær ekki að tala illa
um Vilhjálm án þess að kappanum
gefist tækifæri á að svara fyrir sig. 1
heimildarmyndinni er sýnt viðtal sem
tekið var við Vilhjálm árið 'l 962, árið
sem hann lézt.
Það sem Óskar sagði aö gæfi þó
myndinni mest gildi eru gamlar mynd-
ir er sýndar eru. Eru þar bæði kvik-
myndir og ljósmyndir sem líklega fáir
hafa séð áður. Gæti því orðið verulega
áhugavert að fylgjast með þessari
heimildarmynd um Karluk. Hún hefst
klukkan 21.20 á laugardaginn eftir
viku.
DS