Dagblaðið - 06.07.1978, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 06.07.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978.. 3 .%* ; :-é ** . . Morgunblaðið sér ofsjónum yfir sigri Alþýðuflokksins Sigurður J. Sigurðsson, verkamaður, skrifan Skriffinnar Morgunblaðsins tóku þann kost fyrstu dagana eftir kosning- arnar að bera sig karlmannlega, þrátt fyrir allar hrakfarirnar, — hafa vafa- laust talið það nokkra búningsbót. En undir niðri sýður þó i þeim gremjan og er nú að birtast i ýmsum myndum, því að þeir sjá mjög ofsjónum yfir kosningasigri Alþýðuflokksins. Gott dæmi þessa er að finna í Stak- steinum Morgunblaðsins 29. júní, en þar segir m.a., að það sé „umdeilanlegt hvert erindi sumir meðlimir hans (þingflokks Alþýðuflokksins) eiga á þingbekki”. — Þarna brýzt öfundin og gremjan í gegn út af þvi að hinir ungu og gunnreifu frambjóðendur Alþýðu- flokksins skuli hafa (svo að notuð sé gömul og góð íslenzka) rassskellt svo rækilega hina reyndu, æfðu og ábúðarmiklu frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins. Skriffinnum Morgunblaðsins skal hér með sagt það, að hinir ungu og vösku þingmenn Alþýðuflokksins munu áreiðanlega ekki reynast lakar á Alþingi en hin aldraða sveit Kröflu- flokkanna. Hin langa ganga hinna eldri manna í þeim herbúðum. sem nú er einkum kennd við Kröflu, hefur nefnilega ekki verið með neinum glæsi- brag nú í seinni tið. Hún hefir helzt einkennzt af því göngulagi, sem eitt sinn var kennt við krappaþýfi og þúfnakarga, en í því landslagi varð fótaburðurinn oft heldur höktandi og leiðinlegur á að horfa. Póstmenn eyðilögðu frímerki Jóhanna Hlöðversdóttir hafði sam- band við DB. Hún fékk nýlega bóka- sendingu frá Almenna bókafélaginu. Á pakkann hafði pósthúsið, sem er R- 5 (pósthúsið á Hlemmi) skrifað mót- tökunúmerið, eins og vanalega. Hins vegar sýndu póstmennirnir það að- gæzluleysi að skrifa númerið yfir frí- merki að verðgildi 250 kr. eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Kvaðst Jóhanna safna frímerkjum og ekki oft fá jafn verðmæt merki. Væri það mjög bagalegt að póstmenn i gætu ekki umgengizt póst án þess að þurfa að eyðileggja frímerki um leið. Sjónvarp, popp og sumarf rí Okkur eru alltaf að berast bréf frá unglingum, þar sem sjónvarpið er hvatt til að endursýna poppþáttinn frá 17. júní. Þann dag voru flestir ungling- ar utanhúss og misstu því af þættinum. Síðasta bréfið um þetta efni er frá þeim stöllum Siggu og Ellu og telja þær aö poppefni megi vel hafa forgang og „óþrjótandi umræðu- og fræðsluþættir verði látnir bíða betri tíma.” Þá þakka þær sjónvarpinu fyrir framhaldsþáttinn Gæfa eða gjörvileiki og Dave Allen. Þetta er sennilega ekki bezti tíminn til að koma áskorunum á framfæri við sjónvarpsmenn, því þeir eru í sumar- fríi út júlimánuð. Strax og því lýkur munum við slá á þráðinn og heyra i þeim hljóðið. A myndinni má glögglega sjá hvernig móttökunúmer pakkans hefur verið krotað á frimerkið. Vélbátarall DB og Snarfara fagnaðarefni: A.B.E. skrifan Framtak Dagblaðsins og Snarfara með vélbátarall umhverfis landið er sportbátamönnum mikiö fagnaöar- efni. 1 umræðum um þessa keppni er áberandi hve menn óttast veður og sjólag, en það er vonandi, að keppendur geri sér fulla grein fyrir Varizt rekadrumbana stærstu hættunni við þessa siglingu, en það er rekinn, sem marar í kafi og sést alls ekki nema við góð skilyrði. Við erum fjórir félagar nýkomnir úr skútusiglingu frá Reykjavík til Akureyrar þar sem við lentum í flestum veðrum, m.a. hagli, 9 vindst. og haugasjó. Meðalganghraði okkar var sjaldan meiri en 7 sn , en það fór hrollur um okkur í hvert skipti sem rekadrumbarnir smugu dökkir og ógn- vekjandi meðfram borðstokkunum á skútunni. Vorum við allir sammála um að þarna væru á ferðinni hættur nr. 1, 2 og 3 við væntanlega vélbáta- keppni. Það má lengi bjarga sér und- Siglið heilum báti til hafnar an sjó og veðri á heilli fleytu, já og þótt bæði vél og stýri bili, en ástandið getur orðið iskyggilegt ef rekadrumbur nær að höggva i sjálfan skrokkinn. Við skútukarlar skorum því á væntanlega þátttakendur að keppa fyrst og fremst að því að sigla heilum báti til hafnar en láta ekki glepjast af kappinu um 1. sætið. „SÖMU GÖMLU...?” Almennur borgari spyn Eftir kosningasigra og ósigra al- þingiskosninganna upphófst skripa- leikur sá sem forseti vor stýrir. Kall- aðir eru fyrir forystumenn flokkanna einn af öðrum, síðan ræða þeir saman út og suður um möguleika á sam- vinnu. En mér er spurn: Verður næsta stjórnarsamstarf milli sömu þorsk- hausanna og við höfum verið að reyna síðasta áratuginn eða svo? Er ekki tími til kominn að nýir menn reyni fyrir sér um að stjórna landinu? Við þurfum að ráða bót á verðbólguvandanum. Þar þurfum við unga, heiðarlega og dug- mikla menn. Sem sagt ekki afdankaða stjórnmálamenn, sem óttast í sífellu að missa atkvæði. Sigurborg Stefánsdóttir, 12 ára: Hva, hvað er sól? Ég bara veit það varla. Ætli það sé bara ekki svona hiti. Kristfn Halldórsdóttir, 12 ára: Ég veit það ekki. Er það ekki svona kúia með hita í? Jóhanna Matthiasdóttir, 9 ára: Það er bara svona til þess að gera veðrið heitt. Benedikt Sigurðsson, 12 ára: Það er eldhnöttur. Það gýs á honum og þá kemur hiti eins og er núna. Róbert Ingvar Manus, 7 ára: Hún er uppi í himninum og er gul. Georg Lúkasson, 6 ára: Nú, það er sól. Hún er hringur og er brennandi heit.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.