Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 06.07.1978, Qupperneq 6

Dagblaðið - 06.07.1978, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978. Bandaríkin: Vildu fremur sjónvarpiö en föðurinn Bandarísk börn, yngri en sex ára, verja þriöja hluta sólar- hringsins fyrir framan sjónvarps- skerminn, samkvæmt könnun, sem gerö var þar nýlega á vegum neytendasamtakanna. Börnin voru spurð hvort þau vildu fremur hafa föður sinn eða sjónvarpið 44% þeirra sögðust fremur vilja hið síðarnefnda. Niðurstöður sjón- varpskönnunarinnar gefa til, kynna að er venjulegt bandariskt. bam hefur lokið námi i barna- skóla, hafi það horft lengur á sjón- varp um ævina heldur en það hefur dvalizt i skólastofunni. BIAÐIÐ ánríkisstyrks KENNARAR Tvo kennara vantar að grunnskóla Þorlákshafnar. íbúð fyrir hendi. Upp- lýsingar gefnar í síma 99—3638. Skólanefnd. Atvinnaíboði Vanur kranamaður óskast á rafmagnskrana. Upplýsingar í síma 83661. BREIÐHOLT HF. SÍMI 81550. Sveitarstjóri Starf sveitarstjóra í Skútustaðahreppi er laust til umsoknar. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf auk launakrafna sendist skrifstofu sveitarfélagsins, Múlavegi 2, Mývatnssveit fyrir 22. júlí. Sími 96—44158. Sérhæfum okkur í \h\Mh\ Seljum í dag: Saab 96 1972 ekinn 79 þús. Saab 961972 EKINN 98 þús. Saab 961976 EKINN64þús. Saab 991972 EKINN 98 þús. Saab 991973 EKINN 97 þús. Saab 99 1974 EKINN 57 þús. sjálfsk. Saab 99 1976 ekinn 39 þús. Saab 99 1976 ekinn 53 þús. Látið skrá bíla, höfum kaupendur að ýmsum árgerðum. BJÖRNSSON A^o BlLDSHÖFÐA 16 SiMI 81530 REYKJAVÍK NewYork: Lengi eftir að sprengingin varð reikuðu særðir vegfarendur um strætin og reyndu að stöðva blóðrennsli úr sárum eftir glerbrot sem hrundu úr skýjakljúfum. J*——► Deilur um íssöluna olli sprengingunni í flutningabilnum —160 særðust og ótal rúður sprungu í nærliggjandi skýjakljúfum splundruðust Kalt strið og deilur milli tveggja rjómaísfyrirtækja i New York hafa nú færzt á mjög alvarlegt stig. ísflutningabifreiðin, sem sprakk í borginni um siðustu helgi mun vera afleiðing þessarra deilna fyrirtækj- anna. Þá slösuðust eitt hundrað og sextíu manns, þar af fjórtán alvarlega. Lögreglan t New York leggur ekki trúnað á að frelsishreyfing Puerto Rico hafi átt neinn þátt í sprenging- unni þó félagar hennar hafi lýst þvi yfir. Bifreiðir og eigur fyrirtækisins. sem á bifreiðina sem sprakk í loft upp, hafa áður orðið fyrir skemmdum and- stæðinga. Einnig hafa komið kvartanir til yfirvalda um að rjómaís sé seldur úr flutningabifreiðum isfyrir- tækisins. Sérfræðingar lögreglunnar telja víst að sprengja hafi valdið skemmdunum á bifreiðinni. Um tima var talið að slysasprenging i kælikerfi gæti hafa valdið henni. Eftir sprenginguna reikaði bjargar- litið fólk lengi um á götunum i nágrenninu og reyndi að stöðva blóð- rennslið úr sárum sem komið höfðu, er það skarst á glerbrotum. Mikið sprakk af rúðum í nærliggjandi byggingum og skýjakljúfum og féllu brotin á strætin. Héldu glerbrotin áfram að falla lengi á eftir því glerbrotum rigndi við minnsta skjálfta eðaandvara. Deila ísraels og Arabaríkjanna: Nýjum tillögum Egypta algjörlega hafnaö Síðustu afskipti Bandaríkjanna, sem leiddu til þess að Egyptar lögðu fram nýjar tillögur til friðarsamninga í deil- unni við Irsael, hafa ekki bætt stöðu mála þar austur frá. Hafa ágreiningsmál deiluaðila komið mun betur í Ijós. I tillögum Egypta var meðal annars gert ráð fyrir að Israelsmenn færu af Gaza- svæðinu og vesturbakka Jórdanárinnar. Var þá meðtalinn sá hluti Jerúsalem sem þeir hertóku fyrir nokkrum árum en var áður undir stjórn Jórdaníu. Þessum hugmyndum hafa Israelar algjörlega hafnað. Að sögn fréttastofa krefjast ísraelar þess að Egyptar leggi fram raunhæfar tillögur. Egyptar telja sig aftur á móti hafa gert það og kalla stefna ísraels ósveigjanlega.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.