Dagblaðið - 06.07.1978, Síða 7

Dagblaðið - 06.07.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. JÚLl 1978. 7 Danmörk: Fylltu peningaskáp- inn af sandi og sprengduí loftupp — Danmerkurmet í bankaráni er nærri eitt hundrað milljónum var stolið úr sparisjóðsútibúi Mesta bankarán i afbrotasögunni i Danmörku var framið á mánudaginn. Var þá brotizt inn i sparisjóðsaf- greiðslu í Alsgaarde og komust þjófarnir á brott með um það bil tvær milljónir danskra króna. Er það jafn virði tæplega eitt hundrað milljóna i íslenzkum gjaldmiðli. Næturgeymsla sparisjóðsins eða næturbox var sprengt upp. Við það var beitt aðferðum. sem ekki hafa áðursézt við innbrot i Danmörku. Þess vegna telur lögreglan að hér hafi verið á ferðinni óvenjufróðir at- vinnuinnbrotsþjófar. Peningaskápur- inn var fyrst fylltur af sandi og var honum komið inn um samá op og geymsluveski viðskipavina sparisjóðs- ins eru sett i. Þar var sprengiefnið einnig látiðfara niður. Við sprenginguna valt peninga- skápurinn á hliðina og opnaðist. Bak hans sprakk úr og hafnaði i fimmtán metra fjarlægð. Var þá hægt að gramsa i þvi sem skápurinn hafði að geyma. Hafði innihaldið alveg haldizt óskemmt þrátt fyrir hina öflugu sprengingu. Sandurinn. sem áður hafði verið látinn renna inn i peninga- skápinn, kom þar að góðu haldi og varði peningana og þau skjöl sem þar voru. Vegna þess að innleggsblöðin sem fylgdu peningasendingum frá viðskiptavinum sparisjóðsins voru i skápnum og eru horfin ásamt peningunum gæti upphæðin. scm vitað er að stolið var. reynzt hærri en þær tvær milljónir.sem vitaðer um. Lögreglan hefur spurmr af sants konar vinnubrögðum \ið innbrot i peningageymslur i Svíþjóð Er þvi talið að þarna hafi jafnvel Ssiar verið á ferðinni eða þá danskir félagar þeirra i starfsgreininni. forframaðir hinum megin við sundið. «C Rústir peningaskápsins sem sprengdur var sjást í hakgrunni mvndarinnar. Verið er að hreinsa glerbrot og sandinn, sem var um alla bygginguna. Voru það einu ummerkin sem ræningjarnir skildu eftir, en þeir hofðu aftur á móti á hrott með sér jafnvirði eitt hundrað milljóna íslenzkra króna. REUTER Erlertdar fréttir REUTER JimmyCarter í minnstu áliti fimm síðustu forseta Vinsældakannanir sýna að Banda- rikjamenn hafa aldrei metið forseta sinn jafn lítils frá þvi hann tók við embætti. Aðeins 38% þeirra töldu sig vera ánægða með störf forsetans. Niðurstöð- ur þessarar könnunar bera með sér, að vinsældir Jimmy Carters forseta hafa fallið meira á fyrstu sautján mánuðum valdaferils hans en nokkurra þeirra fimm forseta sem ríktu á undan honum. Utanrikisstefna forsetans veldur mestri óánægju. Aðeins 29 af hundraði þeirra sem spurðir voru felldu sig við hana. Er það um það bil 10% færri en var i april siðastliðnum. ísraelsmenn fá leyfi til að selja þotur tilFormósu Bandaríkin hafa samþykkt að ísrael endurselji Taiwan (Formósu) herþotur fyrir rúmlega þrjú hundruð milljón dollara samkvæmt fregnum CBS sjón- varpsstöðvarinnar í gær. Leyfi Banda rikjastjómar þurfti að liggja fyrir vegna þess að hreyflar þotnanna eru fram- leiddir þar. Lögreglan beitti táragasi og vatni gegn kennurum Lfg.-'glan i Perú beitti táragasi og vatn' ■ 'iigum til að dreifa mannfjölda vcm s,iina/l hafði saman i Cuzco, þriðju stærstu borg landsins, í gær. Var verið að lýsa yfir stuðningi við kröfur kennara um hærri laun. Er talið að verkfallið nái til 80% allra rikisrekinna skóla i Perú. Opinbcrir aðilar hafa hafið mikinn áróður gegn samtökum kennara sem standa að verk- fallinu og sakað þá um að reyna að brjóta niður stjórn landsins og leppa leiðina til lýðræðis. Ekki er nenia mánuður siðan Perúmenn kusu scr stjórnlagaþing. sem semja á nýja stjórnarskrá. Ætlunin cr að þing kosningar fari frani eigi siðar en innan tveggja ára. m Vegna gífurlegrar sölu vantar okkur bíla á skrá— Glæsilegur og bjartur sýríingarsalur BÍLASALAN SKEIFAN SKEIFUNNI11 - SIMAR 84848 0G 35335

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.