Dagblaðið - 06.07.1978, Síða 9

Dagblaðið - 06.07.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978. 9 Er hægt að auka og flýta nautgriparækt á íslandi? FUOTVIRKARA AÐ FLYTJA INN FRJÓVGUÐ EGG EN SÆÐI — viðurkennir nautgriparæktarráðunautur Er hægt að auka og flýta nautgripa- rækt hér á landi? Þessu velta margir neytendur fyrir sér og hafa þá einkum í huga litið úrval af nautakjöti í verzlunum. „Nautgriparækt á íslandi er i algjörum ólestri. Þar er úrbóta þörf og óhæfa að draga það áratugum saman að taka af skarið,” sagði Jón E. Sveinsson, bóndi á Egilsstöðum, i samtali við DB. Jón er í hópi þeirra bænda sem óánægðir eru með seinagang í nautgriparækt hér á landi. Telur hann að hægt sé að standa öðruvisi að málum en gert er. Fyrir nokkrum árum var gert átak til að koma nautgriparækt á íslandi í betra horf. Flutt var inn sæði af Galloway- kyni frá Skotlandi og islenzkar kýr frjóvgaðar með þvi. Kýrnar hafa síðan verið i strangri einangrun í Hrísey, þvi óttazt er að sjúkdómar geti brotiztút. Lög frá Alþingi kveða á um strangar varúðarráðstafanir við innflutning dýra og verður að koma til samþykki yfir- dýralæknis, Búnaðarfélagsins og Tilraunastöðvar Háskólans að Keldum. Lögin voru sett í kjölfar mæðiveiki og garnaveiki, sem barst hingað fyrir nokkrum áratugum með erlendu sauðfé. Ólafur E. Stefánsson, nautgripa- ræktarráðunautur hjá Búnaðarfélagi íslands, veitti DB þær upplýsingar að fyrir árslok 1979 yröi sæði flutt úr nautum sem borin eru í Hrísey og kýr á nokkrum bæjum á landinu frjóvgaðar með þvi. Er þess að vænta að upp úr 1982 komi nautgripir af Galloway-kyni á markaðinn. Jón E. Sveinsson á Egilsstöðum og samherjar hans í bændastétt telja að sú aðferð að flytja inn sæði sé allt of seinvirk. Þeir segja að flýta megi ræktun nautgripa hér á landi með því að flytja inn frjóvguðegg. Ólafur E. Stefánsson nautgripa- ræktarráðunautur viðurkenndi í samtali við DB að fljótvirkara væri að flytja inn frjóvguð egg. „Ef heilbrigðisyfirvöld samþykkja þessa aðferð og telja hana örugga þá er hún fljótvirkari. Meðan það liggur ekki fyrir ber að halda áfram núverandi ræktunarstefnu," sagði hann. Ólafur benti á að þegar hafizt var handa við nautgriparækt í Hrisey hafi mjög stórt skref verið stigið fram á við, ef miðað væri við kyrrstöðuna sem ríkti áður. Það er Ijóst að ef bændurog neytendur vilja að breytingar verði á stefnu i naut- griparækt verða samtök þeirra að hafa frumkvæði. Forystumenn Búnaðar- félagsins ætla sýnilega ekki að taka af skarið, sem Jón E. Sveinsson minntist á. GM Björgvin Júniusson (til vinstri) segir Hjalta Jóni Sveinssyni (t.hj og tæknimanni útvarpsins frá á kosningadag. DB-mynd: Fax. Framkvæmdastjóri BÚHsegiruppífússi Framkvæmdastjóri Bæjarútgerðar hann láti af störfum sé fyrst og fremst Hafnarfjarðar, Guðmundur R. Ingva- uppsögn verkstjóranna tveggja fyrir son, hefur sagt upp störfum. Stafar skömmu. Telur hann að i þvi máli hafi uppsögn hans af óánægju með lyktir verið beitt miklum rangindum og að vinnudeilunnar í BÚH í síðasta mánuði. frystihúsi BÚH og Hafnfirðingum hafi í greinargerð til útgerðarráðs segir verið gert illt eitt með þvi að láta undan Guðmundur að ástæðan fyrir því að kröfum verkafólksins. -GM. HLUSTAÐ A VORIÐ MEÐ PÉTRIÖNUNDI Út er komið lítið ljóðakver, Hlustað á eftir Pétur Önund og á hans eigin vegum vorið, eftir Pétur önund Andrésson, 26 — hið fyrra kom fyrir tveimur árum. ára gamlan Reykvíking. Kápumynd þessa kvers gerði Jens Krist- Þetta er annað kverið sem út kemur leifsson. -ÓV. r Vinnuskoli Kópavogs i heimsókn Krakkar úr Vinnuskóla Kópavogs komu í tveimur hópum á ritstjóm DB til þess að fylgjast með því hvernig blað verður til. Krakkarnir fóru um ritstjórn- ina og fylgdust með skrifum blaða- manna, útlitsteiknun og störfum Ijós- myndara. Eftir að hafa skoðað ritstjórnina fóru krakkarnir i prentsmiðju og fylgdust með tæknivinnunni og vonandi hafa þeir haft bæði gagn og gaman af. Myndin var tekin er fyrri hópurinn fór í gegnum Dagblaðið í sameiningu. Þar mátti sjá hvernig allt lítur endanlega út, að lokinni samvinnu margra aðila. Nú hafa krakkarnir væntanlega nokkra hugmynd um það hvað mikil vinna liggur að baki hverri blaðsíðu í blaði, sem menn fletta daglega. JH DB-mynd Hörður. Utvarpað úr skáp á Akureyri Á efstu hæð Barnaskóla Akureyrar er skápur, sem einu sinni var geymsla fyrir leikfimitæki. Hann er út undir súð við austurvegg hússins og sýnist ósköp Leiðrétt frétt f rá 27.6: Gleymt að umreikna eftir verðbólgu Hörður Túliníus hjá fyrirtækinu Hýbýli á Akureyri hafi samband viö blaðið og var ekki ánægður með frétt þess 27. júní sl. Þar er sagt að Dælustöð Hitaveitu Akur- eyrar hafi verið dýr í byggingu og getið ummæla um að hún hafi verið jafndýr fokheld og heil blokk. Hörður sagði að þar sem fyrirtækið Hýbýli byggði dælu- stöðina og sér væri málið skylt væri vert að taka fram að um ár leið á milli þess tíma sem blokkin var fokheld og þess er dælustöðin var fokheld. Á þessu ári hækkaði byggingarvisitala um 58.6% að sögn Harðar og var því ekki um sambærilega tölu að ræða. Hörður sagði að umreiknað til verðlags i desember ’77 kostaði blokkin 63 milljónir á meðan dælustöðin kostaði 36 milljónir. Þar af fóru 4 milljónir í verk sem teljast má fyrir utan sjálfa stöðina. Það kom fram í fréttinni þann 27. að um slíkt væri að ræða. DS Vegna fréttar DB um 8 m skaðlaust fall: Maðurinn skaddaður áhrygg Maður sá. sem féll ofan af húsi á Teigunum um helgina. og DB skýrði frá á mánudag. slapp ekki . ómeiddur, eins og blaðið skýrði frá eftir fáanlegum heimildum þá. Hann mun hafa brákazt á hrygg og rifbeinsbrotnað. svo eitthvaö sé nelnt. Einnig hafa kunnugir lesendur bent blaðinu á að svo hafi mátt skilja sem maðurinn hafi verið að þvælast uppi á þaki um miðja nótt. og þá bætir imyndunaraflið við orðinu: drukkinn. Það er hér með leiðrétt. ntaðurinn var allsgáður og var að mála þak hússins. (;.S. venjulegur skápur i heild sinni. En þriðjungur þessa skáps er þó merkilegur fyrir það, að þarna er aðstaða Ríkisútvarpsins fyrir beinar út- sendingar á útvarpsefni frá Akureyri. Þarna eru einnig gerðar segulbandsupp- tökur fyrir útvarpið. Myndin er tekin á kosningadaginn þegar Björgvin Júníusson, upptökustjóri útvarpsins á Akureyri, sagði frá gömlu húsunum í innbænum. Fax.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.