Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 06.07.1978, Qupperneq 10

Dagblaðið - 06.07.1978, Qupperneq 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. JÚLl 1978. frfálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaön* Framkvœmdastjórí: Svoinn R. Eyjóffsson. Ritstjórí: Jónas Krístjánsson. Fréttastjórí: Jón Birgir Pétursson. Rrtstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rítstjómar. Jóhannes Roykdal. Iþróttir: Hallur Símonarson. Aflstoöarfréttastjórar: Atii Steinarsson og Ómar Valdimarsson, Handrít: Ásgrímur Pálsson. Blaflamenn: Anna Bjamason, Ásqgíf Tómasson, Bragi Sigurflsson, Dóra Stofánsdóttir, Gissur Sigurðs- son, Guðmundur Magnússon, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Jóncs Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ragnar Lár., Ragnhojflur Krístjánsi'óttir. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Ljósmyndir: Ari Kristinsson Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Hörflur Vilhjálmsson,- Ragnar Th. Sigurflsson, Sveinn Þormóðsso«i. Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorlerfsson. Sölustjórí: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjórí: Már E.M. Halldórsson. Ritstjórn Siflumúla 12. Afgreiflsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þvorhofti 11. Aflalsimi blaflsins er 27022 (10 línur). Áskríft 2000 kr. á mánufli innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaflifl hf. Síflumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 10. Tómatará haugana Einai&unarstefnu eykstfylgií aþjóðaviðskiptum — helzta viðfangsef ni á fundi æðstu manna vestvænna iðnríkja í Bonn 16. júlí Frétt Dagblaðsins um eyðileggingu mikils magns söluhæfra tómata og agúrkna vegna svokallaðs offramboðs hefur vakið réttláta reiði almennings. Neytendasamtökin hafa vaknað. Umræður verða vonandi til þess, að þessar einokunaraðferðir verða nægilega afhjúpaðár. í allri gagnrýni á svonefnt auðvaldskipulag hefur dæmi um eyðileggingu afurða til að halda uppi verði borið hátt. Við búum við blandað hagkerfi. í orði kveðnu eiga lögmál markaðarins hvarvetna að gilda. Framboð og eftirspurn eiga að ráða verðinu. í reynd er þessu þannig farið, að víða ríkir einokun, einkum á sviði landbúnaðarframleiðslu. Sölufélag garðyrkjumanna fullyrðir, að salan aukist aðeins um fimm til tíu af hundraði, þótt verð þess- ara afurða sé lækkað. í reynd þýðir það, að slík verðlækkun hefur aldrei verið nægilega mikil eða nægilega auglýst. Verð á tómötum og gúrkum þykir flestum orðið býsna hátt. Kaup á þessum vörum eru alitof lítil vegna hins háa verðs, enda þótt vítamín skorti í íslenzka fæðu og brýna nauðsyn beri til að auka grænmetisneyzlu þjóðarinnar. Á sama tíma flytjum við inn niðursoðið gúrkusalat og asíur. Neytendasamtökin hafa bent á leiðir til úrbóta, meðal annars, að aftur verði seldar í verzlunum gúrkur og tómatar annars flokks á lágu verði, kassar verði seldir á heildsöluverði beint til neytenda á lágu verði og neytendum leiðbeint um frystingu og niðursuðu græn- metis. Slík eyðilegging afurða, sem Sölufélagið gengst fyrir, er ekki þolandi. Hér er um beint þjóðhagslegt tap að ræða. Einokun af þessu tagi bitnar, þegar til lengdar lætur, bæði á neytendum og framleiðendum. Svör Sölufélagsins eru flest út í hött. Það lætur sem svo, að nú geti þeir, sem haldið hafi uppi gagnrýni á þetta háttalag, tekið við sölunni á svokallaðri offram- leiðslu á tómötum og gúrkum. Gefið hefur verið í skyn, að niðurgreiðslur komi til álita. Við höfum slæma reynslu af niðurgreiðslu- og uppbótakerfi, þar sem fé er tekið úr einum vasa neytenda til að setja í annan og fyrir vikið haldið upp þjóðhagslega óhagkvæmum fram- leiðsluháttum. Tiliögur Neytendasamtakanna eru hið viturlegasta, sem fram hefur komið í tómatamálinu svonefnda. Hindra þarf, að slík eyðilegging verðmæta endurtaki sig. Garðyrkjumenn eiga að una lögmálum markaðarins á svipaðan hátt og til dæmis eggjaframleiðendur. Hugsunarháttur einokunar er víða rótgróinn í fram- leiðslu og viðskiptum hér á landi. Gjarnan er þessi einokun í skjóli pólitískrar forsjár. Stjórnmálamennirnir hafa veitt einokuninni blessun sína og að líkindum fengið einhver atkvæði fyrir sinn snúð. Snögg og ákveðin viðbrögð almennings við fréttunum um evðileggingu söluhæfra tómata lofar góðu. Nú verður að vinna markvisst að því að hnekkja einokun. hvar sem hennar verður vart: Það er hagur ne\ tendaog l'ramleiðenda, þegar öll kurl koma til grafar, ■ ig þjóðai ínnar allrar. Eitt ískyggilegasta merkiö um alvar- legt ástand í alþjóðaviðskiptum er aukin tilhneiging þjóða heims til inn- flutningstakmarkana. Rikisstjómir sýna meiri og meiri tilhneigingu til afskipta af inn- og útflutningi. Sérfæðingar hafa ítrekað varað við þessari þróun. Jafnvel hafa ýmsir stjórnmálamenn komið með varnaðar- orð, jafnvel stjórnmálamenn frá þeim rikjum, sem beitt hafa sér fyrir inn- flutningstakmörkunum. Síðastur áhrifamanna, sem rætt hefur um þessa þróun, er japanski ráð- herrann Nobuhiko Ushiba, sem fer með utanríkisviðskipti. Taldi hann að áframhaldandi óvissa og einangrunar- stefna í viðskiptum heimsins gæti leitt til algjörrar óreiðu á því sviði. Orð japanska ráðherrans eru samhljóða áliti annarra sérfræðinga i alþjóðaviðskiptum. Tclja þeir að ef haldið verði áfram á sömu braut gæti komið til nokkurs konar viðskipta- stríðs milli ríkja heims. Þá mundi hver þjóð reyna að hindra innflutning vara annars staðar frá. Reynt yrði með ýmsum ráðum að vernda innlenda framleiðslu og ríkisstjórnir mundu reyna að aðstoða þá innlendu fram- leiðslu sem í vök ætti að verjast. Væri þá aftur snúið til einangrunar- stefnunnar, sem rikti á tímum krepp- unnar miklu um 1930 og árunum þar á eftir. Stefna efnahagssérfræðinga og leið- andi stjórnmálamanna á Vestur- löndum hefur verið sú að auka sem mest viðskipti milli landa. Hafa þeir talið þá leið vænlegasta til að halda uppi góðum lífskjörum. Þá gæti hvert land eða landshluti einbeitt sér að þeirri framleiðslu sem hagkvæmust væri þar. Efnahag rikja væri bezt komið með sem frjálsustum viðskiptum milli landa. Samkvæmt þessari stefnu er heppilegast að líta á heimsviðskiptin eins og á efnahagslíf þjóðar. Allar takmarkanir þar á séu af hinu illa. Til dæmis ætti að leggja niður þá at- vinnugrein sem ekki væri samkeppnis- fær eða úrelt. Starfsfólk sem við það starfaði yrði þá að snúa sér að öðrum verkefnum, samkvæmt kenningunni um frjáls heimsviðskipti. Þá ætti ríkí, sem kæmist að þeirri niðurstöðu að skipasmíðar þess væru dýrseldari en keppinautanna, að verzla við hina síðarnefndu. Talsmenn frjálsra viðskipta telja að á þennan hátt nýtist hráefni á hag- kvæmastan hátt og séu notuð á sem arðsamastan hátt. Efnahagslif þjóðanna verði blómlegt, eftirspurn aukist og allir séu ánægðir. Að venju hefur gengið erfiðlega að samræma kenninguna raunveru- leikanum. Stjórnmálamenn og áhrifa- hópar hafa oft á tíðum aðra hagsmuni i huga. Einnig er erfitt að sýna tals- mönnum atvinnulausra fram á tvi- Aukin tilhneiging til verndar innlendri framleiðslu er í algjörri and- stöðu við þá stefnu, sem verið hefur rikjandi í viðræðum iðnríkja heimsins um hugsanlegt samkomulag um við- skipti og tolla. Eru það hinar svo- nefndu GATT viðræður. Þær hafa staðið um árabil og hugmyndin hefur verið sú að komast að sameiginlegu samkomulagi sem tæki gildi i byrjun næsta áratugs. Munu æðstu menn helztu iðnríkja hins vestræna heims hittast í Bonn í Vestur-Þýzkalandi um miðjan þennan mánuð. Á að leggja fyrir þá uppkast *að Gatt samkomulagi. Ástand dollarans á alþjóðagjald- eyrismörkuðum hefur ekki bætt ástandið i alþjóðaviðskiptum að und- anförnu. Hagur fólks hefur verið góður i Bandaríkjunum á síðustu mánuðum. Hefur það leitt til aukinnar eftirspurnar þar eftir erlendum vörum. Afleiðingin hefur orðið verulegur viðskiptahalli Bandaríkjanna. mælalaust réttmæti frjálsra viðskipta. Vanþróuð riki hafa einnig átt í erfiðleikum með að aðlaga sig þessum viðskiptakenningum. Þar eru ýmis höft réttlætt rneð þvi að nauðsynlegt sé að vernda nýuppbyggðan iðnað, sem standi á brauðfótum. í iðnþróuðu rikjunum hafa þær raddir aftur á móti orðið æ háværari, sem krefjast verndar á innlendum iðnaði. Er það oft gert i skjóli atvinnuleysis. Er þá oft fullyrt að hér verði aðeins um tíma- bundna aðstoð að ræða. Atvinnuveg- irnir muni blómstra eftir, aðeins ef timi gefist til að undirbúa sig undir samkeppnina við aðrar þjóðir. Bandarískir kaupsýslumenn saka aðrar þjóðir og þá sérstaklega Japani um að hafa ekki gætt þess að auka kaupgetu almennings heima fyrir. Hafi atvinnuvegir þessara landa þvi notið góðs af aukinni kaupgetu og eftirspurn í Bandaríkjunum án þess að eftirspurn ykist hjá þeim samhliða. Talið er vist að mál þessi verði gaumgæfilega rædd á fundi æðstu manna iðnríkja í Bonn. Ljóst er að stefnan um sem frjálsust viðskipti ríkja á milli verður þar rikjandi, í það minnsta i orði. Hvernig gengur að framfylgja henni á borði getur aðeins framtiðin leitt i Ijós. Vanþróaður iðnaður rikja þriðja heimsins á í miklum erfiðleikum með að standast samkeppnina á alþjóðamörkuðum. Hann hefur cinnig staðið höllum fxti gagnvart aukinni tilhneigingu iðnrikja yesturlanda til að takmarka innflutning. ^ -

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.