Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 06.07.1978, Qupperneq 12

Dagblaðið - 06.07.1978, Qupperneq 12
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1978 Leiknir og Höttur sigruðu í F-riðli Tveir leikir fóru fram i 3. deild íslandsmótsins, i F-riðli, I gærkvöld. Leiknir frá Fáskrúðsfirði fór suður á Breiödal og lók við Hrafnkel Freysgoða. Leiknir sigraöi 2—1. Jón Jónasson náði forustu snemma i lciknum fyrir Hrafnkel cn Kjartan Reynisson jafnaði með þrumuskoti. Og Leiknir lót ekki þar við sitja, skoraði fljótlega annað mark — og það með all- sérstæðum hætti. Eins og gengur og gerist var dómgæzlan slök. Knötturinn fór í hönd eins varnarmanns Hrafnkels og dómarinn dæmdi óbeina aukaspyrnu — leikmenn Leiknis mótmæltu, vildu viti. Þá breytti dómarinn dómi sínum, dæmdi beina aukaspyrnu, innan vitateigs Hrafnkels! Og Helgi Ingason skoraði beint úr spyrnunni, 2—1. öll mörkin því í fyrri hálfleik en mikil harka var I leiknum og að ósekju hefði mátt sýna leikmönnum fleiri gul spjöld en gert var. Á Seyðisfirði hlaut Höttur frá Egils- stöðum sin fyrstu stig, sigraði Huginn. Leikmenn Hattar gáfust ekki upp þrátt fyrir að þeir skoruðu sjálfsmark þegar á fyrstu mínútu leiksins — hcldur sóttu í sig veðrið og Finnur Ingólfsson skoraði tvivegis fyrir Hött, sanngjarn sigur, 2— 1. Þar með er 6. umferöum lokið í F- riðli, Huginn er nú með 4 stig, Höttur 2 stig. -VS. Enn a-þýzkt heimsmet Fjórða heimsmetið leit dagsins Ijós á a- þýzka meistaramótinu i sundi i A-Berlin í gærkvöld. Barbara Krause setti heims- met i 100 metra skriðsundi, annað heimsmet hennar á meistaramótinu. Hún synti á 55.14 en spáði þvi að heimsmct hennar mundi ekki standa lengi. „Sá sem vinnur I heimsmeistaramótinu í V— Bcrlín mun að öllum Ifkindum synda á betri tima,” sagði hin 19 ára gamla Bar- bara Krause. Með heimsmeti sínu bætti Krauser heimsmet Korneliu Ender frá Montreal, 1976 — og þar með missti Ender sitt siðasta heimsmet, en hún hefur dregið sig i h'é. Stefán Ingólfsson formaður KKÍ Körfuknattleiksþing 1978 var haldið að Hótel Esju 9—10. jtini sl. í skVrslu fráfarandi stjórnar kom fram að þröngur fjárhagur sambandsins setti mjög mark sitt á starfsemina sl. ár. Stjórninni tókst þó að rétta fjárhaginn nokkuð og skilaöi starfsemi siðasta árs rúmum 900 þús. kr. tekjuafgangi. Fjárhagur sambandsins er þó enn bág- borinn og skuldir nema 4 millj. kr. Stærsta verkefni síðasta starfsárs var Norðurlandamót í körfuknattleik sem haldið var hér dagana 21.—23. apríl. Voru þingfulltrúar á einu máli um að framkvæmd mótsins heföi tckist mjög vel. Var Polar Cup nefnd sem annaðist alla framkvæmd mótsins færðar sér- stakar þakkir. Nefndina skipuðu: Helgi Ágústsson, formaður, Einar Matthías- son og Þorsteinn Hallgrimsson. Á þinginu voru samþykktar umfangs- miklar breytingar á lögum sambandsins og reglugerðum. Þær miða einkum að þvi að auðvelda framkvæmd komandi íslandsmóts, en eins og kunnugt er verður keppnin mun flóknari en áður með tilkomu hinnar nýju Úrvalsdeildar. Samkvæmt fjárhagsáætlun sem þingið samþykkti fyrir komandi starfsár verður velta sambandsins 9,2 millj. Stærstu út- gjaldaliðir eru skrifstofukostnaður 2,85 milljónir og greiösla upp I skuldir 2,0 millj. t stjórn næsta ár voru kjörnir: Stefán Ingólfsson, formaður, Helgi Árnason, Páll Júliusson, Sigurður Jóns- son og Þórdis Kristjánsdóttir. — Guðmundur Baldursson, átti snjallan leik I Hafnarfirði. Jaf nt án marka í Kapla- krikaí leikFH ogFram — og liðin verða að reyna með sérafturíbikarkeppni KSÍ FH og Fram tókst ekki að ná fram úr- slitum i uppgjöri liðanna i 16-liða úr- slitum bikarkeppni KSt í Kaplakrika i gærkvöld, markalaust jafntefli þrátt fyrir framlengingu. Liðin verða því að reyna aftur og þá í Laugardal. Það voru engin mörk i Kaplakrika en þrátt fyrir það voru marktækifærin til KS mætir Valsmönnum íkvöld Síðasti leikur 16-liða i bikarkeppni KSÍ fer fram í kvöld á Siglufirði. Þá hefja bikarmeistarar Vals vörn sina á bikarnum er þeir leika við KS. Þegar hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum íslandsmeistarar ÍA, Þróttur, KR, Einherji, ÍBV, Breiðablik og siðan eiga Fram og FH eftir að leika öðru sinni. staðar. Góð markvarzla Guðmundar Baldurssonar i marki Fram kom í veg fyrir mark, já eða mörk FH. Hann bjargaði vel frá Janusi Guðlaugssyni og tvívegis varð hann að taka á honum stóra sínum við að verja góð skot frá Pálma Jónssyni. Þá bjargaði Rafn Rafnsson á linu — FH átti tækifærin til íþróttir HALLUR HALlSSON Sjö mörk í Laugardal er Þróttur lagði Keflavík Þróttur sigraði 4-3 ogþvfáfram í8-liða úrslit Þróttur tryggði sér sæti I 8-liða úr- slitum bikarkeppni KSÍ með sigri á ÍBK, 4—3, í Laugardal í gærkvöld. Þorgeir Þorgeirsson skoraði þrennu fyrir Þrótt og lagði grunn að sigri, öruggari sigri en tölurnar segja til um. Það er greinilegt að Þróttarar eru nú mjög að sækja í sig veðrið i knatt- spyrnunni. Þeir sigla nú lygnan sjó í 1. deild, með níu stig að loknum níu leikjum — virðast hafa fest sig í sessi þar. Og sigur þeirra gegn ÍBK gefur fyrirheit um góða frammistöðu í bikarnum. Þróttur náði forustu á 34. minútu fyrri hálfleiks er Þorgeir Þorgeirsson skoraði. En Adam var ekki lengi í Paradís, aðeins fjórum minútum síðar jöfnuðu Keflvikingar og þá var að verki Ómar Ingvason, en Rúnar Gislason, markvörður Þróttar, hefði átt að geta komið i veg fyrir markið. Staðan í leikhléi var I — 1, en þegar á 9. minútu síðari hálfleiks náði Páll Ólafs- son forustu fyrir Þrótt, 2—1. Þorgeir Þorgeirsson jók siðan muninn i 3—I og enn hafði hann ekki sagt sitt siðasta orð, ÞYZK LIÐ VIUA HENRIK AGERBECK Danskir knattspyrnumenn eru ávallt mjög I sviðsljósinu og þegar danska landsliðið lék hér við ísland I Reykjavík var Karl Heinz Ruhl þjálfari Borussia Dortmund í Bundesligunni í V-Þýzka- landi, hér I Reykjavík og fylgdist með leiknum. Ruhl hefur mikinn hug á að fá Henrik Agerbeck og þeir ræddu saman. Agerbeck er nú markhæstur i 1. deildinni í Danmörku, og Eintracht Frankfurt hefur þegar gert honum tilboð, gott tilboð. „Borussia Dortmund verður því að leggja fram betra tilboð ef ég á að fara til þeirra,” sagði Agerbeck. Ljóst er að Agerbeck fer í knattspyrnu á meginlandi Evrópu, væntanlega til V- Þýzkalands. kom Þrótti í 4— I. Öruggur sigur virtist I höfn, Þróttarar slökuðu á, nokkuð sem ávallt verður að varast. Á síðustu minútunum skoruðu Keflvikingar tvivegis — Einar Ólafsson, 4—2, og Gísli Torfason úr viti, 4—3. En of stutt var til leiksloka og Þróttur heldur áfram í 8-liða úrslit. að skora og hefði átt að bera sigur úr býtum. En Iitlu munaði í framlengingunni að Fram skoraði, Pétur Ormslev fór þá illa að ráði sínu, í upplögðu tækifæri skaut hann framhjá og FH-ingar sluppu með skrekkinn. Það er greinilegt að FH-ingar sækja nú mjög I sig veðrið eftir ákaflega slaka byrjun í íslandsmótinu. Liðið er mun heilsteyptara nú, meira öryggi og endur- koma Þóris Jónssonar hefur styrkt liðið mjög, auk þess sem Leifur Helgason er ávallt hættulegur. íslenzkur sigurf Kópavogi — gegn færeyska drengjalandsliðinur3-0 íslenzka unglingalandsliðið 14—16 ára sigraði í gærkvöld Færeyinga, 3—0, í Kópavogi. Staðan í leikhléi var 0—0 en íslenzku’piltarnir fóru af stað í siðari hálfleik og tryggðu sér sigur. Þegar á 10. mínútu siðari hálfleiks skoraði Jón Þór Brandsson eftir að Jóhannes Sævarsson hafði einleikið i gegn um vörn færeyska liðsins og skotið að marki. Færeyski markvörðurinn hálf- varði og knötturinn féll fyrir fætur Jóns Þórs semskoraði. Á 21. minútu jók ísland forustu sína er Lárus Guðmundsson skoraði laglega yfir færeyska markvörðinn, vippaði knettinum laglega yfir markvörðinn. Á 30. mínútu skoraði ísland sitt þriðja mark, Sigurður Grétarsson úr vítaspyrnu. Einherji áfram í 8-íiða úrslitin r í fyrsta sinn, eftir 3-1 sigur gegn Víkingi, Olafsvik Einherji frá Vopnafirði komst I fyrsta sinn I sögu félagsins i 8-liða úrslit hikar- keppni KSÍ með öruggum sigrí á Víking, Ólafsvík, 3—1 á Vopnafirði. Einherji hefur staðið sig mjög vel I 3. deild, hefur örugga forustu, nánast tryggt sér sæti i úrslitakeppni 3. deildar — haft yfirburði fyrir austan. Og Einherji sannaði í gærkvöld að Austfjarðaliðin eru I mikilli sókn. Nú eiga Austfirðir tvö lið ■ í 2. deiid er Allan Simonsen til Barcelona — líklegt að Daninn Allan Simonsen leiki með Barcelona í vetur Flest bendir nú til að Allan Simonsen, Daninn snjalli hjá Borussia Mönchengladbach leiki með Barcelona á Spáni næsta vetur. Simonsen fór til Barcelona til viðræðna við forráðamenn spánska liðsins, sem nú leitar Ijósum logum að leikmanni til að fvlla skarð Johan. Crijuff. Enn hefur ekkert verið gefið upp, hve dýr Allan litli Simonsen verður Barcelona. Hann er annar leikmaður Borussia Mönchengladbach á skömmum tíma sem heldur til Spánar. Áður hafði v-þýzki landsliðsmaðurinn Rainer Bonhoff gert samning við Valencia — en þar leikur einnig Mario Kempes, markhæsti leikmaður HM, með 6 mörk og tvö síðustu keppnistíma- bil hefur Kempes verið markhæsti leik- maður á Spáni, með 24 og 28 mörk. Fari Simonsen til Barcelona þá fylgir hann í kjölfar þriggja leikmanna Borussia Mönchengladbach er haldið hafa í hina suðrænu sól. Eins og áður var minnzt á skrifaði Rainer Bonhof nýlega undir samning með Valencia, Daninn Henning Jensen hélt fyrir tveimur árum til Real Madrid og leikur þar nú en áður hafði Gunther Netzer farið frá Borussia til Real Madrid. Aður en Barcelona sneri sér að Allan Simonsen, knattspyrnumanni Evrópu, reyndi Barcelona að fá Kevin Keegan, annan lítinn mann með stórt hjarta, í sínar raðir. Keegan, leikur með Hamburger SV en þýzka liðið neitaði að selja Keegan þrátt fyrir að 2 milljónir sterlingspunda væru í boði. — Allan Simonsen, til Barcelona öllum likindum. spjara sig vel — og sigur Einherja staðfestir enn styrkleika liðsins þvi Vikingar frá Ólafsvik hafa verið sterkir, á mælikvarða 3. deildar. Ólafur Ármannsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Vopnfirðinga og fjölmargir áhorfendur á Vopnafirði voru sannarlega með á nótunum. Baldur Kristjánsson skoraði siðan annað mark Einherja, 2—0. og virtist stefna í öruggan sigur Einherja — staðan I leikhléi var2—0. En Víkingar voru ekki af baki dottnir og Birgir Þorsteinsson minnkaði muninn i 2—1. Leikmenn Einherja létu ekki deigan síga og Steindór Sveinsson tryggði sigurinn nteð þriðja marki Einherja, 3—1. Einherji því í 8-liða úr- slitum en áður hafði Einherji slegið út 2. deildarlið Austra frá Eskifirði., Öldungarnir bitust um „Hornið” 1 fyrradag var haldin opin öldunga- keppni á Nesvellinum, en keppt var um „Hornið”, sem auglýsingaþjónustan h/f gaf til árlegrar keppni. Úrslit: Óli B. Jónsson NK 43-42-85-14 = 71 Gunnar Pétursson NK 42-42-84-12 = 72 Ingólfur Isebann GR 43-43-86-13 = 73 Fyrir að vera næstur holu á 6. braut hlaut Lárus Arnórsson GR, glæsileg aukaverðlaun. Keppendur voru 22 úr hinum ýmsu klúbbum. rl

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.