Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 06.07.1978, Qupperneq 15

Dagblaðið - 06.07.1978, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. JÚLl 1978. 15 X&ffámtMvMÁétötW0W*%!&. Lína langsokkur eins og við þekkjum hana úrsjónvarpinu. LINA LANGSOKKUR HEFUR STÆKKAÐ OG FRÍKKAÐ Inger hefur gefið út poppplötur og þú er líka eins gott að hlusta áþær. Lína iangsokkur er og verður alltaj Llna langsokkur, en stúlkan sem lék Linu langsokk eldist og breytist. Það er Inger Nilsson sem nú hefur gefið út plötur bteði með lögum um Línu og svo venjulegri poppmúsík. Hún vonast til að geta orðið frœg söngkona með timanum en hún hefur einnig mikinn áhuga á að verða leikkona. Það eru nú tíu ár siðan Inger lék Llnu langsokk I sjónvarpsþáttunum en ekki hafa vinsœldir þáttarins minnkað á þessum tíu árum. Nú er Inger oróinn 19 ára gömui og hugsar eflaust um eitthvað annað en Línu langsokk. Inger hefiir verið i skóla svo hún verður að láta alla sína fram■ tíðardrauma bíða að minnsta kosti þangað til hún er búin að lœra. i &. %< % “ 5 Lína langsokkur eins og hún lítur út í dag. Inger Nilsson hefur stóra mynd af Línu í herberginu svo hún gleymi henni nú ekki. Það virtist ekki erfitt fyrir Ltnu að lyfta tveim lögregluþjónum. Morðingjar hennar voru 4 og 6 ára Börnin í enska iðnaðarbænum Wolverhampton komu oft inn til hinnar 84 ára gömlu Kate Willits og léku sér hjá henni. Hún lá yfirleitt í rúminu og var ánægð að fá heimsókn. Nokkur barnanna höfðu fundið það upp með sér, að ef þau voru með hávaða eða eyðilögðu eitthvað í stofunni fengu þau smápening til að hætta því. En núna koma þar ekki fleiri börn, húsið er lokað og Kate Willits eða „Besta” eins og börnin kölluðu hana liggur nú grafin í kirkjugarðinum. Þeir síðustu sem heimsóttu hana voru tveir drengir, sex ára kynblendingur Clinton Easy og leikfélagi hans, sem er tveim árum yngri, Kinverjinn Won Wong. Þessir drengir slógu gömlu konuna i höfuðið með múr- steini, vegna þess að annar fékk ekki pening hjá henni. Þegar drengirnir áttuðu sig á því að konan var dáin fóru þeir út og héldu áfram að leika sér. En þegar barnabarn gömlu konunnar kom i heimsókn til hennar sama dag æptu drengirnir á hana og sögðu að hún þyrfti ekki að koma meir: „Besta er dauð, við slógum hana í hausinn með múrsteini.” Lögreglan yfirheyrði drengina og þeg- ar þeir höfðu sagt frá öllu, fengu þeir að Síðasta myndin af Kate Willits fyrir morðið. fara aftur út að leika sér. 1 Englandi er ekki hægt að refsa bömum innan við 10 ára, og barnaverndarráð hefur heldur ekki afskipti af þessu. Eftir dauða Kate Willits, sem auðvitað kom af stað miklu umtali og hræðslu manna, hafa drengirnir Clinton og Wong orðið hetjur bæjarins, í augum barnanna og börnin líta upp til þeirra og eru ekki hrædd við að umgangast þá. Áður en drengirnir köstuðu steinin- um í höfuð gömlu konunnar, höfðu þeir verið að teika sér í stofunni hjá henni; er þeir gerðust uppivöðslusamir og byrjuðu að tæta úr skúffunum hennar og rífa út úr skápnum, bað hún þá að fara. Wong hætti að tæta og að launum gaf hún honum pening. Þegar Wong hafði fengið pening vildi Clinton lika fá pening, en það vildi gamla konan ekki. Og þess vegna tók hann múrsteininn sem hann hafði komið með inn og kastaði í höfuð gömlu konunnar. Fréttin um dauða Kate Willits hefur farið um England eins og eldur í sinu, og fólk vill að drengirnir verði lokaðir inni eða settir á barnaheimili. Ekki bætir það úr skák að drengirnir eru litaðir. England hefur mikið kynþáttavandamál og margir hvítir segja að dökkir séu viðriðnir öll vandamál í landinu. Faðir Clintons er negri en móðir hans irsk, svo þeirra mál eru ekki góð í augna- blikinu. En ennþá verra er það fyrir móður Woogs, því að hún er kinversk og getur ekki einu sinni talað ensku. Hún hefur fengið lögfræðing til að fara í mál við þýzka blaðið „Bild am Sonntag”. Fyrir stuttu birti þetta blað ýtarlega grein um mál þetta og sýndi myndir af drengjunum, sem auðvitað er ólöglegt. Drengirnir geta slegið gamla konu í hel án þess að það geri þeim mein, en ljós- myndaranum má refsa fyrir að taka myndir afþeim. Myndirnarsem birtust af drengjunum íþýzka blaðinu „Bildam Sonntag".

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.