Dagblaðið - 06.07.1978, Síða 24

Dagblaðið - 06.07.1978, Síða 24
Ný skríða verð- hækkana framundan Útlit er fyrir skriöu verðhækkana næstu vikurnar. Hitaveita Reykja- víkur hefur óskað eftir að fá að hækka gjaldskrá sína um 33,5% frá 1. ágúst. Rafmagnsveitur ríkisins hafa farið fram á 8,3% hækkun frá sama tima og 50% af væntanlegri hækkun á gjald- Ólafssonar verðlagsstjóra liggja rafmagnsveitu er háð sam- skrá Landsvirkjunar. Þá er yfirvofandi fjölmargar beiðnir um hækkanir á þykki iðnaðarráðuneytis. Hækkun 15% hækkun á dagvistargjöldum í vöru og þjónustu fyrir verðlagsnefnd. dagvistargjalda í Reykjavík er háð Reykjavík, en slík hækkun hefur þeg- Hann gat þó ekki skýrt frá þvi hvaða samþykki borgarstjórnar. ar verið samþykkt á Akureyri. hækkanir væri um að ræða. GM Samkvæmt upplýsingum Georgs Hækkun á gjaldskrá hitaveitu og Bráðabirgða- ráðherrar hraða stöðuveitingum forsætisráðherra veitir stöðu Husa- meistara ríkisins og utanríkisráð- herra skipar nýjan sendiherra í Bonn Athygli hefur vakið að ráðherrar þeirrar rikisstjórnar sem nú situr til bráðabirgða hafa undangengna daga beitt embættisvaldi sínu og skipað menn í mikilvægar stöður. 1 gær barst fjölmiðlum tilkynning um það að for- sætisráðherra hefði skipað Garðar Halldórsson yfirarkitekt í stöðu húsa- meistara ríkisins. Þá mátti lesa það í Morgunblaðinu i morgun, að utanríkisráðherra hefði skipað Pétur Eggerz sendiherra í Bonn i stað Níelsar P. Sigurðssonar. DB hafði samband við ráðuneytin tvö i morgun og lagði þá spurningu fyrir skrifstofustjóra utanrikisráðuneytis og ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis hvort slíkar stöðuveitingar væru eðlileg- ar eins og á stæði. Skrifstofustjóri utanrikisráðuneytisins kvaðst ekkert vilja um það segja hvort stöðuveitingin væri eðlileg. Hér væri um pólitíska ákvörðun að ræða. Samkvæmt lögum væru menn skipaðir einu sinni í utanríkisþjónustuna og ráðherra gæti síðanflutt þátil. Guðmundur Benediktsson ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu sagði að staða húsameistara hefði verið auglýst 3. júni sl. eða vel fyrir kosningar. Fresturinn rann síðan út 5. júli. „Það eru mýmörg fordæmi fyrir slíkum stöðuveitingum,” sagði Guðmundur, „en það er ekki okkar kontóristanna að leggja dóm á þær.” JH. Grindurnareiga að draga úr hraðanum — áslysagötu „Þær tilraunir sem nú eru gerðar á Nesvegi miða að því að draga úr hraða ökutækja og beina umferðinni i ríkari mæli um Hringbraut og Eiðsgranda,” sagði Sæmundur Pálsson, lögregluþjónn á Seltjarnamesi, er við spurðum hánn, hvaða tilgangi grindurnar dularfullu á Nesvegi ættu að þjóna. Sæmundur sagði að þama hefðu slys verið tið, m.a. þrjú dauðaslys á siðustu árum. „Hafa þau oft orsakazt af því að bílar koma vestan Nesveg af 18 metra götu og ætla að halda sama hraða á 9 metra götu. Þessi aðgerð er gerð að undirlagi skipulagsarkitekta bæjarins,” sagði Sæmundur að lokum. -GAJ- Vid öllu búinn Þótt sólin sklni á beran kroppinn er betra að vera við öllu búinn. Aldrei er að vita hvencer himininn getur dottið ofan á litla kolla og þess vegna er tryggara að bera hjálm. Með sverðinu — þótt frumstœtt sé — má verjast villimönnum og villidýrum I skóginum á bak við. En annars er allt I lagi lagsL DB-mynd. JAPÖNSK STÚLKA LÝKUR PRÓFI í GUÐFRÆÐI VK> HÁSKÓLA ÍSLANDS Það var mikið klappað í Háskóla- bíói 24. júní sl. er dr. Þórir Kr. Þórðarson, forseti guðfræðideildar H.Í., lýsti Miyako Kashima Þórðarson kandidat í guöfræði og gat þess jafn- framt, að hún væri fyrsti japanski stúdentinn sem lyki prófi frá Háskóla íslands. Það er ekki á hverjum degi sem kvenfólk lýkur prófi í guðfræði hér á íslandi og því ekki svo undarlegt, að þaö veki athygli er japönsk stúlka lýkur slíku prófi. Áður höfðu aðeins tvær konur lokið embættisprófi í guðfræði frá H.í. Geirþrúður Bernhöft og Auður Eir Vilhjálms- dóttir. Miyako kom hingað til lands fyrir 10 árum og stundaði fyrst nám í islenzku. Jafnframt sótti hún töluvert kirkju til að hlýða á talað íslenzkt mál. I ------------------------------------- Þannig fékk hún áhuga á kristinni trú og lét innritast í guðfræðideildina. Námið hefur gengið vel hjá Miyaki, og er árangur hennar ekki síst athyglisverður fyrir þá sök, að í guðfræðideildinni eru flestar kennslubókanna á erlendum tungu- málum, en prófúrlausnum þarf vita- skuld að skila á íslenzku. En Miyako er mikil málamanneskjaog lét sig t.d. ekki muna um að taka 1. ágætis- einkunn í hebresku og það þrátt fyrir að kennslubókin var á sænsku. Miyako er þriðji útlendingurinn, sem lýkur guðfræðiprófi frá H.í Miyako er óráðin í hvað hún hyggst fyrir í framtiðinni en í haust ætlar hún í fri til Japans. Hún er gift Sigfúsi Gauta Þórðarsyni lögfræðingi og eiga þau eina dóttur. -GAJ- FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1978. Cimarro• bræðurá vírínn á morgun Sirkus-bræðurnir Cimarro hafa ákveðið að láta verða af hjólreiðunum á milli Hallgrimskirkjuturns og Iðnskólans í hádeginu á morgun — ef veður leyfir. Var hafizt handa við að strengja virinn á milli húsanna tveggja í morgun og ætti því að ljúka í dag. Á morgun, rétt áður en bræðurnir hefja sýningu, verður hjóli þeirra komið fyrir á, vírnum með aðstoð kranabíls. Leyfi veður ekki hjólreiðarnar á morgun, verður gerð önnur tilraun í hádeginu á laugardag. ÓV. Loftferðasamningarnir við Breta: Treglega gengurað semja Samningar hafa ekki tekizt milli Breta og íslendinga um flugleiðina Glasgow— Kaupmannahöfn og hafa samninga- viðræður gengið fremur treglega. Þeim hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma. Fulltrúar íslendinga hafa boðizt til að fækka eitthvað ferðum milli borganna og jafnframt takmarka árlegan farþega- fjölda. Krafa Breta var í upphafi sú að' Flugleiðir hættu flugi á þessari leið á næstu mánuðum. Hafa þeir nú boðið nokkurn aðlögunartima, jafnvel til 1. nóv. 1979. íslendingar hafa lagt á það áherzlu hve flug á umræddri flugleið sé þeim mikilvægt og jafnframt bent á þá staðreynd að flug þetta hafi viðgengizt allt frá árinu 1950 og ísiendingar því áunnið sér hefð hvað það varðar. Slík var staðan i gær þegar brezku fulltrúarnir héldu heimleiðis með það m.a. i huga -að ræða frekar röksemdir íslendingar við sína heimamenn. -J Á. Kaupið TÖLVUR * 5 TÖLVUUR « BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.