Dagblaðið - 07.07.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1978.
17
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
$
rersetti
st 22.15
tBarysnikovum
srkvöldikúluvarpi.
timefra
kúluvarpara. Árangur hans i Leipzig á dögun-
um er hann bætti eigið a-þýzkt met um 10
sentimetra var þá næstbezta kast frá
upphafi. Þá hafði hann varpað yfir 22 metra í
æfingum, og hann taldi þá sjálfur að aðeins
tímaspusmál væri hvenær heimsmetið félli.
Það kom vonum fyrr og í dag hefur Udo
Bayer yfirburði yfir aðra kúluvarpara í
heiminum.
tslandsmet Hreins Halldórssonar er 21.09
einnig sett í Stokkhólmi. Hreinn hefur varpað
um og yfir 20 metra í sumar en hann er enn að
ná sér eftir meiðsli.
ísþjálfarinn
ijálfari íslendinga i handknattleik og Sigurður
hafa skrifað undir samning um þjálfun Jóhanns
einn yngsti landsliösþjálfari heims — aðeins 24
Atli Eðvaldsson, kom Valsmönnum á
bragðið á Siglufirði.
Hörð barátta
á Skaga
Baráttan á unglingameistaramótinu i
golfi á Akranesi er nú ákaflega hörð. í
eldri flokki hafa verið leiknar 54 holur af
76 og þrír kappar eru efstir og jafnir.
Hannes Eyvindsson, GS, Ragnar Ólafs-
son GR og Magnús Birgisson GK hafa
aliir leikið holurnar 54 á 225 höggum á
Akranesi.
í yngri flokknum er Gylfi Krístinsson
GS í forustu. í eidri flokki stúlkna hefur
Alda Sigurðardóttir GK forustu með
186 högg. í yngri flokknum er Þórdís
Geirsdóttir í forustu með 230 högg.
Valur slapp ffyrir
horn á Siglufirði
— Bikarmeistarar Valsí erfiðleikum gegn3. deildarliði
Bikarmeistarar Vals lentu i miklum
erfiðleikum á Siglufirði i bikarkeppni
KSÍ í gærkvöld gegn KS — sluppu
naumlega fyrir horn i orðsins fyllstu
merkingu. Valsmenn sigruðu 2—0 en
Siglfirðingar reyndust engir eftirbátar
bikarmeistaranna þrátt fyrir tap. Vaiur
héit heim með sigurínn, en KS hélt
heiðrínum. Siglfirðingar höfðu velgt
Valsmönnum undir uggum.
Siglfirðingar báru fullmikla virðingu
fyrir Valsmönnum í byrjun en fljótlega
náðu leikmenn KS upp góðri baráttu og
leikurinn var í jafnvægi. Leikmenn KS
voru ágengari upp við mark Valsmanna
og raunar hefðu þeir átt að skora. KS
fékk vitaspyrnu í fyrri hálfleik en
Sigurður Haraldsson, markvörður Vals,
gerði sér lítið fyrir og varði.
Siðari hálfleikur var keimlíkur
hinum fyrri, jafnræði var með liðunum.
Leikmenn KS-börðust vel á litla vellin-
um á Siglufirði og barátta þeirra og
kraftur fór greinilega í taugarnar á Vals-
mönnum. Sigurður Haraldsson mátti
tvívegis taka á honum stóra sínum í
marki Vals áður en Valur skoraði loks á
70. mínútu. Atli Eðvaldsson skaut föstu
skoti af um 30 metra færi sem mark-
vörður KS hefði átt að verja en í netinu
hafnaði knötturinn.
KS, en sigruðuþó2-0
Engu líkara var en leikmenn KS
skynjuðu að tækifæri þeirra til að ná
óvæntum úrslitum, einum óvæntustu
úrslitum í islenzkri knattspyrnu um
árabil, væri að engu orðið. Valsmenn
náðu nú góðum tökum á leiknum og
Ingi Björn Albertsson, skoraði úr víta-
spyrnu fyrir Val. Raunar þurfti að
tvitaka spyrnuna, þar sem dómarinn
taldi að markvörður KS hefði hreyft sig,
er hann varði fyrri skot Inga Björns.
Valsmenn höfðu þvi sigur á Siglufirði
en 3. deildarlið KS sannaði hve sterkt
það er. KS hefur undanfarin ár verið á
þröskuldi sætis í 2. deild en ekki náð
þeim áfanga. Þá hefur það staðið knatt-
spyrnu fyrir þrifum á Siglufirði að
aðstaðan er mjög slæm. St.A.
James Bett til Belgíu
James Bett, Skotinn I liði Vals, ætlar
að staldra stutt við ef að líkum lætur.
Hann hélt utan til Belgiu fyrír aðeins
tveimur dögum og ræðir þar við forráða-
menn Lokeren, 1. deildarliðs i Belgiu.
James Bett hefur aðeins ieikið tvo
leiki með Val en hann hefur leikið með
Airdrie i Skotlandi. Njósnarar frá
Lokeren fylgdust með uppgjöri Vals og
ÍA á laugardag og hrífust af leikni
Skotans.
Valsmenn sitja nú eftir með sárt ennið
— en til er I regiugerðum KSÍ að erlend
félög megi ekki leita til leikmanna á
miðju keppnistfmabili.
íslendingar heiðra
Skotann Moyes
Skotinn David Moyes var I gærkvöld
sæmdur gullmerki KSÍ og lárviðarsveig
KRR fyrir ötult starf að samskiptum
islenzkra og skozkra knattspyrnu-
unglinga.
David Moyes er fyrsti Skotinn til að
hljóta gullmerki KSÍ og fyrsti
útlendingurinn til að hljóta lárviðarsveig
KRR. Samskipti íslendinga og Skota
hófust 1969 er FH fór til Glasgow.
David Moyes, sem er Jcunnur þjálfari í
Skotlandi, hefur unnið af lifi og sál að
þessum samskiptum.
700 skozkir drengir hafa nú komið til
tslands og um mánaðamótin er tala
íslenzkra pilta er farið hafa til Skotlands
til að æfa, horfa á knattspyrnu og
kynnast landi og þjóð, orðin 1000.
Það sést af þessum tölum hve
umfangsmikið starfið er og hefur það
verið bæði skozkum unglingum og
islenzkum lærdómsrikt.
Ellert Schram, formaður KSt sæmir David Moyes gulimerki KSÍ. DB-mynd
Bjarnleifur.
Vatnskæld 4 cyl. vél
Rumtak: 767 sm ‘
Hestöfl: 25 DIN
Þjoppun: 7.5 : I
Rafkerfi 12v.
Hjólbarðar: 5 20x12"
Þyngd 605 kcj
með stóru möguleikana...
ZAXT4V4 WSO L
hægt er að auka til muna farangursrými með því að leggja niður bak á aftursæti, hurðir stórar, til að
auðvelda mönnum að komast í og úr bílnum. Og ekki spillir bensíneyðslan en hún er aðeins 6 lítrar á 100 km.
6i á íoo km GSvarahlutir
” a.x/x/ J1« Ármúla 24. Reykjavík. Sími 36510