Dagblaðið - 11.07.1978, Síða 1
4. ÁRG.—- ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978— 147.TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÍILA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11. — AÐALSÍMI 27022.
Sjórall Dagblaðsins og Snarfara:
ISJAKAR OG BLINDÞOKA
Al — Siglingakappamir komu til Hafnar
LikH#ll^l^ll íHornafirðiseintínótt
„Variö ykkur á íshrönglinu hérna,”
heyrðist frá báti 04 í talstöð keppnis-
stjórnarinnar seint í gærkvöld. Voru
menn i fyrstu ekki vissir um hvort áhöfn
bátsins eða liðsmenn mótsstjórnar væru
orðnir vitlausir.
Þetta gerðist eftir að blind|x)ka hafði
skollið yfir bátana. Þá voru þ eir komnir
austur fyrir Vík í Mýrdal. Þótti móts-
stjórn sem náttúruöflin hefðu nóg að
gert með brælunni fyrsta dag Sjórallsins
og svo blindþokunni, þegar isfréttin
barst.
Þetta reyndist þó hvorki misheyrn né
vitleysa því bátur 04 var mjög grunnt
undan landi — við ósa Jökulsár á Sól-
heimasandi, sem bar fram ísbrot úr lón-
inu við skriðjökuiinn. Var bátur 04 að
vara báta 03 og 09 við, þar sem þeir voru
í grenndinni. Allt gekk slysalaust á þessu
óvænta íssvæði.
Frá Vestmannaeyjum fóru bátarnir
kl. 17 í gær, nema bátur 08 sem enn var
til viðgerðar þar eins og segir frá í frétt á
baksíðu.
Allgott sjóveður var í gærkvöld og
gekk allt eins og í sögu, jafnvel lygasögu,
þegar keppnisbátamir renndu sér einn af
öðruih i gegnum gatið á Dyrhólaey en
skömmu síðar versnaði veðrið eins og
fyrr segir.
-GS
Þátttakendur I Sjóralli DB og Snar-
fara renna sér einn af öörum I gegnum
gatið á Dyrhólaey I gærkvöld. Þá var
þokað að skella á, eins og myndin ber
með sér. Eftir þetta gerðist ýmistlegt
— bilarnir, ishröngl og villur. — DB-
mynd RagnarTh.
Keppendur i Sjórallinu bruna út úr Vestmannaeyjahöfn á fullri ferð um kl. 17 I gær.
Einn varð eftir — um stundarsakir. — DB-mynd Ragnar Th.
Fréttirog
myndiraf
Sjórallinu 78
á baksíðu
ogbls.5
Forsetinn
færumsagnir
f rá Lúðvík
ogBenedikt
— sjá baksíðu
og bls. 5
Togbáturinn Gissur hvfti í nýju hlutverki í nótt við Hafnarós:
VEIDDIFJORA BATA
í STAÐ FISKJAR
Áhöfnin á togskipinu Gissuri hvita
undir stjórn Guðmundar Kr. Guð-
mundssonar vann svo sannarlega til
þakklætis keppenda í Sjóralli DB og
Snarfara i nótt, þegar hún leiðbeindi
keppendunum síðasta og erfiðasta
spölinn að ósnum, sem siglt er inn um
til Hafnar i Hornafirði, og síðan alveg
inn i höfnina.
Báturinn var að fara í róður kl. 23 í
gærkvöld þegar hann iieyrði til eins
Alltrólegt
við
Kröflu
— sjá baksíðu
keppnisbáta, sem ekki var alveg klár á
staðsetningu sinni. I stað þess að halda
áfram til veiða hóf Gissur hvíti leit að
bátnum í þokunni á þessum hættu-
slóðum — fiskaði þá einn af öðrum
upp að siðunni með aðstoð ratsjár og
ferjaði þá síðan alla í einni halarófu á
eftirsérinni höfnina.
Var þessu verki ekki lokið fyrr en
upp úr kl. fimm i morgun og hélt
Gissur hviti þá aftur til veiða.
Meira svindl
íFinansbanken
— Svíar nú undir
smásjánni
— sjá erl. fréttir
bls. 6-7
Eiginkona Guðmundar skipstjóra
var meðal þeirra Hafnarbúa sem lögðu
leið sína niður að höfn I nótt til að
fylgjast með bátunum.
Blaðamaður DB spurði hana hvort
henni þætti ekki bagalegt að láta hafa
veiðina svona af bóndanum en hún
svaraði glaðlega: „Kallar þú fjóra báta
kannski enga veiði?”
-GS
Tveirúr
HM-liði
Argentínu
til Englands
— Sjá íþróttir
í opnu