Dagblaðið - 11.07.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLl 1978.
5
SNARFAR! MMBIABIB SNARFAR/ MMBIAÐIÐ SNARFAR/
Gert klárt fyrir ferðina til Hafnar.
Hermann Jöhannsson á Má og Lára
Magnúsdóttir á Láru. — DB-mynd
Ragnar Sigurjónsson.
Fjöldi manns horfði stöðugt á, þegar
eitthvað var um að vera hjá sjórall-
köppum. Runólfur Guðjónsson og
Hafsteinn í óða önn að undirbúa Haf-
rót fyrir austurförina. — DB-mynd
Jónas.
Eyjamenn vörðu miklum tima til að grúska í vél bignyjar asami eiganuanum,
Gunnari Gunnarssyni, og Birni Árnasyni. Gunnar til vinstri á myndinni. — DB-
mynd JónasGuðm.
BIAÐIB SNARFARI
BIAÐIB
TAKK,
EYJAMENN!
Eyjamenn eru alveg einstakir heim
aðsækja. Þaðfengu Dagblaðsmenn og
Snarfaramenn að finna rétt einu sinni
í gær og fyrradag þegar rallbátarnir
komu þangað. Áhugi og fórnfýsi bók-
staflega talað tuga manna og kvenna
gerði það að verkum að timinn i Eyj-
um leið eins og í draumi. Allir vildu
rétta hjálparhönd, ekkert var sjálf-
sagðara. Kærar þakkir, Eyjamenn.
Ekki tókst öllum bátunum að kom-
ast til Eyja á sunnudagskvöldið eins og
til stóð. Tveir komust og annar við
heldur illan leik. Hinir komu svo í gær-
morgun en af stað var haldið kl. 17,
nema Gunnar Gunnarsson og Björn
Árnason á áttunni, henni Signýju. Sér-
fræðingar í Eyjum grúskuðu í vélinni
fram eftir degi eða allt þar til Sgný
virtist hafa öðlazt sinn fyrri æsku-
þrótt. Og af stað héldu Gunnar og
Björn i humátt eftir hinum keppend-
unum kl. 10.10.
Ekki var öllum óhöppum af þeim fé-
lögum létt. Sigldu þeir hraðan byr frá
Eyjum, en sneru brátt við. Viftureim
hafði bilað. Eftir.að skipt hafði verið
um reim var enn snúið til hafs. Þá
kom upp vandamál með kælingu vél-
arinnar. Enn var snúið við. Leit helzt
út fyrir í nótt að Gunnar og Björn
yrðu að hætta keppni og er það skaði
svo ágætir keppnismenn sem þeir eru.
Farstöðvaeigendur í Eyjum voru al-
veg ómetanlegir og fylgdust með og
höfðu samband viö keppendur lengst
af. Þar reyndist Kristinn Kristinsson,
landsþekktur farstöðvareigandi, sann-
arlega réttur maður á réttum stað.
Þegar bátarnir komu inn stefndi
hugurinn þó mjög i eina átt — eða
voru þær tvær? Það var þá fyrst Gest-
gjafinn en þar beið kokkurinn reiðubú-
inn hvenær sem á þurfti að halda með
þessa dýrindis kjúklinga. Um borð í
hraðbát á fleygiferð verður ■ : mikið
úr matargerðarlisf. Og annað sem
menn dreymdi um, einkanlega báts-
verjana sem komu inn á sunnudag Oj-
aðfaranótt mánudags — rúmin á Hót-
el Vestmannaeyjum. Sennilega hafa
engir hvílzt jafn vel á þeim stað fyrr.
Bátsverjar héldu svo af stað frá Eyj-
um með góðar minningar um tiltölu-
lega stutt stopp en áreiðanlega munh
þeir koma aftur, siglandi eða bara
fljúgandi.
—ÓG—
Sigfínga-
keppni
föstudag og
/augardag
14. og 15. júlí verður opið mót í siglingum á
Fossvogi. Tilkynnið þátttöku í síma 13177 eða
52779 fyrir fimmtudagskvöld.
Siglingasamband íslands
Sérhæfum okkur í
I LV'.hM
Seljum í dag:
Saab 96árg. '71,1740 rúmcentimetra mótor, ca llOhestöfl.
Bifreiöin erhvit ogsvört með útvíkkun á brettum.
Bifreiöinnifylgir allur útbúnaður til rallíaksturs,
svo sem veltigrind, 4 punkta öryggisbelti, twin
master speed pilot, öryggishjálmar, kastarar ogfleira.
Saab 96 árg. 72, ekinn 79 þús. km
Saab 96 árg. 72, ekinn 73 þús. km
Saab 99árg. 72, ekinn 98 þús. km
Saab 99árg. 73, ekinn 97 þús. km
Saab 99 árg. 74, ekinn 68 þús. km
Saab 99 combi árg. 75, ekinn 44 þús. km
Saab 99 árg. 76, ekinn 39 þús. km
Saab 99 árg. 76, ekinn 53 þús. km.
Látið skrá bíia, höfum kaupendur
að ýmsum árgerðum.
BDÖRNSSON Aco
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI 81530 REYKJAVÍK