Dagblaðið - 11.07.1978, Page 24
Forystubáturinn lenti í ógöngum og villtist:
ÁTTAVITINN FÓR AÐ
SNÚAST EINS OG SKRÚFAN
Það var þó ekki einungis þetta sem
brást, heldur var talstöðvarsamband
við bátinn lítið sem ekkert í nótt vegna
bágborins ástands talstöðvar þeirra
sem þó hafði verið yfirfarin í Eyjum i
gær.
í blindþokunni siðari hluta leiðar-
innar í gær voru þessi þrjú tæki ein-
mitt hvað þýðingarmest til að rata í
gegnum grámann. Hinir bátarnir
höfðu þá ekki heyrt í báti 05 lengi en
vonuðust til að það væri vegna for-
skots hans, sem hann hafði fljótlega
unnið. Einnig hafði samband við 05
verið slæmt á sunnudag.
„Það skeði tvennt i senn; áttavitinn
fór að hringsnúast, jafnvel eins dug-
lega og sjálf skrúfan. Svo bilaði mílu-
teljarinn lika og gaf alrangar upplýs-
ingar,” sögðu þeir Hafsteinn og Run-
ólfur á báti 05 þegar þeir komu til
Hafnar í Hornafirði kl. rúmlega fimm
í morgun.
Síðla kvölds heyrðist svo frá bátn-
um og af vandræðum hans. Sigldu þá
hinir bátamir þrir í „breiðfylkingu” þí
nokkurn tíma og leituðu en án árang
urs. Ekki náðist aftur samband við bát
05 svo hinir þrir ályktuðu að hann
væri aftur kominn langt framúr. Það
var ekki fyrr en komið var rétt austur
undir Höfn að ljóst varð að þeir Haf-
steinn og Runólfur voru einhvers
Keppendurnir fjórir sem komust frá Eyjum á tilsettum tima bruna út úr höfninni þar mót opnu hafi.
Th.
— DB-myndir Ragnar
staðar rammvilltir.
Þeir félagar þökkuðu það að villan
varð ekki verri því að þeir sáu þrívegis þokunni. Komu þeir síðastir til Hafnar
til lands skamma stund i gegnum rof i upp úr kl. fimm í morgun. - GS
Áætlun ofurkappa sem dregizt hefur
afturúr vegna bilana:
ÆTLAR HÁLFAN
HRINGINN ÁN
ÞESS AÐ SOFA
EF MEÐ ÞARF
Ofurkappinn Gunnar Gunnarsson á
bát nr. 08 virðist með öllu „ódrepandi”.
Hann barðist til Eyja eins og bátur 05
fyrstu nóttina og lyktaði þeirri ferð
þannig að rétt utan við hafnarkjaftinn í
Eyjum bilaði bátur hans og þurfti á að-
stoð að halda síðustu metrana. Var
ýmislegt úr lagi gengið en þrátt fyrir það
var Gunnar ekki á þeim buxunum að
gefast upp, heldur vildi hann hefja við-
gerð i hvelli.
Henni var ekki lokið þegar bátamir
voru ræstir frá Eyjum kl. 17 i gær en
jafnskjótt og hægt var lagði Gunnar af
stað. Ekki vildi betur til en svo að bilanir
heftu aftur ferð hans og varð hann að
snúa aftur til Eyja. Hóf Gunnar enn
einu sinni viðgerð og er DB hafði sam-
band við hann í nótt átti hann von á
varahlutum kl. níu i morgun og hugðist
leggja upp jafnskjótt og þeir væru komn'-
irásinnstað.
Ekki óttaðist hann forskot hinna, taldi
sig geta unnið það upp á leiðinni til
Akureyrar með þvi að sleppa svefni.
—GS.
Fæddi tvfbura
í 500 f eta hæð
— einstæð fæðing í flugvéL Skilið á milli
með vasahníf
Ung kona ættuð úr Reykjavík ól í
gær tvíbura er hún var á leið til
Reykjavíkur í Islander-flugvél Flugfé-
lagsins Arna frá ísafirði. Var þetta
fyrsta fæðing konunnar, sem er innan
við tvitugt. Tvíburarnir fæddust hátt á
annað mánuð fyrir tímann en þeir
voru allhressir er þeir komu í fæðing-
ardeild Landspitalans og líðan þeirra
var óbreytt i morgun.
Helgi Jónsson héraðslæknir í Bol-
ungarvik var með i flugferðinni suður,
en hann hafði talið rétt að konan væri
flutt flugleiðis suður af heilsufars-
ástæðum. Hörður Guðmundsson var
flugstjóri í förinni.
Það var skömmu eftir flugtak sem
konunni elnaði sóttin og hófst fæðing-
in litlu síðar sagði Helgi læknir í við-
tali við DB. Hörður ákvað að fljúga
lágt — lengst af i 500 feta hæð.
Drengur og stúlka fæddust og tók hér-
aðslæknirinn á móti við frumstæðar
aðstæður, hafði lítið annað tækja en
sjúkrakassa vélarinnar og skildi á milli
með sótthreinsuðum vasahníf. Lækn-
irinn og flugmaðurinn héldu vestur
aftur í gærkvöldi eftir þessa einstæðu
tvíburafæðingu í loftinu.
—ASt.
Forsetinn færumsagnir
frá Lúðvík ogBenedikt
Gunnar Gunnarsson (t.h.) hcldur vonsvikinn um borð i bát sinn I Vestmannacyjum í
gær. Hann ætlar þó aö halda áfram — segist bara sofa minna fyrir bragðið.
— viðræðurflokkanna komará
stjórnarmyndunarstigið
„Ég á von á þvi að þessir flokksfor-
menn sem hafa verið að tala saman,
Benedikt Gröndal og Lúðvik Jóseps-
son, komi til min og gefi mér umsagn-
ir,” sagði forseti íslands, dr. Kristján
Eldjárn, í morgun. í framhaldi af því
mun forsetinn taka ákvörðun um
næstu skref.
Margir telja að hann muni enn á ný
kveðja alla formenn flokkanna á sinn
fund og siðan fela einhverjum þeirra
aðgera tilraun til stjórnarmyndunar.
Framsóknarmenn breyttu í gær um
skoðun gagnvart vinstri stjórn og lýsti
yfir í viðræðum við Alþýðubandalagið
að þeir væru fúsir til viðræðna um
slíka stjórn. Áður höfðu þeir sagzt
vilja standa utan stjórnar en heitið
minnihlutastjórn „verkalýðsfloKk-
anna” hlutleysi. Því eru horfur á, að „i
alvöru” geti orðið viðræður um vinstri
stjórn. Alþýðuflokkurinn hefur þó
engu breytt fyrri skoðun, að hann vilji
nýsköpunarstjórn, en flokkurinn hefur
ekki með öllu útilokað vinstri stjórn.
Könnunarviðræðum Alþýðubanda-
lags og Alþýðuflokks er svo langt kom-
ið að forystumenn flokkanna töldu í
gær að þær ættu ekki að tefja forseta
íslands við stjórnarmyndunartilraun-
ir. Viðræður Alþýðubandalags og
Framsóknar stóðu stutt. Framsóknar-
menn vildu ekki ræða einstök málefni
til þrautar fyrr en raunverulegar við-
ræður um stjórnarmyndun hefjast.
—HH.
frjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ1978.
Kvikuhlaup á
Kröflusvæðinu:
„Jarðfræð-
ingarnir
segja
aðvið
getum
verið
alveg
rólegir”
DB fékk þær upplýsingar á skjálfta-
vaktinni í Reynihlíð að skjálftavirknin
hafi aukizt i morgun. Virtist sem kvikan
sækti rr.est i norður og mældist t.d. auk-
in skjálftavirkni á Húsavík. Land seig i
gærkvöldi um rúman 1 sm en í nótt
hafði dregið úr siginu.
Kristján Ingvarsson formaður Al-
mannavarnanefndar í Mývatnssveit
sagði að ekki væri mikið um viðbúnað af
þeirra hálfu annan en þann að fylgzt
væri með skjálftamælunum. „Jarðfræð-
ingarnir segja okkur, að þetta sé svo
norðarlega að við getum verið alveg ró-
legir,”
Kristján sagði að mikið væri um
ferðamenn á staðnum og gæti það orðið
vandamál ef eitthvað kæmi uppá. En við
erum alveg rólegir ennþá.
—GAJ—
Kappreiða-
hestur
horfinn
Einn af beztu kappreiðahestúm lands-
ins, Þór Þorgeirs bónda í Gufunesi,
hvarf sporlaust fyrir u.þ.b. viku. Hests-
ins hefur verið ákaft leitað en án árang-
urs. Fyrirhugað var að hann tæki þátt í
landsmótinu sem verður haldið um
næstu helgi að Skógarhólum á Þingvöll-
um og því var hann i toppþjálfun.
Hesturinn hefur verið rólegur í haga
og því þykir hvarfið undarlegt. Helzt
hallast menn að því að hann hafi verið
tekinn í misgripum fyrir annan hest. Hjá
vörzlumanninum i Garðabæ er nú
brúnn hestur i óskilum, mjög áþekkur
Þór Þorgeirs. Geta menn þess til að eig-
endur hans hafi misst hann og farið að
leita og e.t.v. tekið Þór í misgripum fyrir
þar em nú er í vörzlu í Garðabænum.
Þeir sem einhverjar upplýsingar geta
gefið um Þór eða brúna hestinn í Garða-
bænum eru vinsamlega beðnir að hafa
samband við Þorgeir eða lögregluna.
—JH.
■ Kaupið^V>
TÖLVUR
OG TÖLVUUR M
BANKASTRÆTI8