Dagblaðið - 22.07.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. JÍJLÍ 1978.
3
Jón Sveinsson,
tœknifræftingur MTFI.
Smáraflot 8. Garðabru
Slmi 42901 - 51900
Góöir Garöabúar,
Veröi ófl valinn ( baejarstjórn Garöabæjar 1978, mun ég m.a.
beita mór af alefli fyrir eftirfarandi málum:
1. Efla iönaö innan bæjarfólagsins, svo fleiri vinnufúsar hend-
ur fói störf viö sitt hæf i. Til þess þarf aö úthluta aögengilegum
önaöarlóöum I hæfilegu hlutfalli viö úthlutun Ibúöarlóöa I
bænum og leggja þar götur jafnóöum og byggt er.
2. Vinna aö framtföarlausn á umferöarmólum bæjarins, sem
nú valda bæöi hættu, töfumog ónæöi í bænum, beina umferö
framhjá meö skipulagi og gerð aðalvega út frá byggöinni.
3. Ljúka verkefnum, sem hafin eru f gatnagerö og skólabygg-
ingu meö skipulegum hætti.
4. Lausn mikilvægustu þjónustuvandamála bæjarfólagsins,
ivo sem heilsugæslu, löggæslu og stuóla aö bættri aöstööu til
hverskonar fálagsllfs.
Gerum uppstillingu sjálfstæöismanna til bæjarstjórnar bind-
mdi meö góöri kjörsókn f dag kl. 17-21 og ó morgun 8. aprfl
J. 10 til 22. Kjör fer fram f barnaskólanum.
Með bestu kveðju.
Fyrir kosningar sendi Jón Sveinsson
frá sér yfirlýsingu og kvaðst ætia að
vinna að lausn umferðarvandamála
Garðakaupstaðar, en eftir kosn-
ingar....
litla virðingu fyrir stjómmálamönn-
um. Og hvað kemur til að þú, sem ég
er sannfærður um að ert heiðarlegur
maður, lætur hafa þig út í svona
skollaieik með okkur kjósendur?
Annars er lýðræði víst ekkert sér-
stakt áhugamál ykkar sjálfstæðis-
manna sem i bæjarstjórn Garðabæjar
sitjið nú. Að minnsta kosti greidduð
þið aUir atkvæði gegn tillögu um að
halda borgarafund um vegarmálið sem
fram kom á bæjarstjórnarfundi hinn
27. júní sl. Og þá erum við komnir að
minnisleysi þínu aftur, kæri Jón. Á
framboðsfundi í vUcunni fyrir kosning-
ar til bæjarstjórnar lofaðir þú og aðrir
frambjóðendur sjálfstæðismanna því
að þið mynduð ekki standa gegn því
að halda borgarafund ef fram kæmu
óskir um það. En svo greiðið þið allir
atkvæði gegn því. Og þú sem sagðir
við mig rétt eftir kosningar að þig
hreinlega langaði i borgarafund um
Hafnarfjarðarveginn. Ég er farinn að
halda að þið sjálfstæðismenn í bæjar-
stjóm þjáist af necrophiliu. (Það er
nefnilega ekki necrophilia að finnast
aðrir vera með þann vonda kvilia.)
Einhverjir svoleiðis vondir vessar voru
það sem láku úr penna Ólafs G.
Einarssonar rétt fyrir bæjarstjórnar-
kosningar og þið prentuðuð á forsíðu
blaðsins ykkar undir nafninu „Veg-
villur” (Garðar, 5. tbl., 9. árg., 26. maí
1978). Eins og þú kannski manst þá
var þessi grein lesin upp fyrir okkur á
framboðsfundi nokkrum dögum áður
en hún kom út. Undir lestrinum stóð
Markús Sveinsson upp og gekk út, ein-
beittur og ákveðinn á svip. Margir
þeirra sem á fundinum voru.túlkuðu
það sem mótmæli gegn sóðaskrifum
ÓGEs og urðu harla glaðir yfir því að
þama skyldi nú vera kominn annar
maður með bein í nefinu eins og þú.
En eftir að hann greiddi breikkuninni
atkvæði á siðasta bæjarstjórnarfundi
hef ég stundum verið að velta þessu
fyrir mér og ég held að það hljóti að
hafa verið misskilningur að túlka út-
göngu Markúsar sem mótmæli. Senni-
lega hefur honum bara verið mál að
pissa og þess vegna skil ég ekki hvers
vegna hann þurfti að vera svona ein-
beittur og ákveðinn á svipinn. Þetta er
eitthvert sorglegasta dæmi sem ég
þekki um það hvað það er mikil hætta
á því að jafnvel einföldustu gerðir
manna séu mistúlkaðar og fái pólitiska
merkingu þegar menn eru komnir i
háar pólitískar stöður.
Ég vil svo taka það fram að ég hef
enga ánægju af því að senda þér þetta
bréf en það hefur valdið mér von-
brigðum að þið Markús hafið ekki
komið drengilega og hreinskilnislega
fram í þessu máli eins og ég átti von á.
Því tel ég það skyldu mína að benda á
það sem mér finnst miður hafa farið í
meðferð ykkar á því. Skoðun Garðars
var alltaf ljós, hann er málpípa ÓGEs
og Sigurður Sigurjónsson hefur enga
marktæka skoðun. Þess vegna er
óþarfi að eyða púðri á þá.
Símanum lokað fjórum dög
um eftir að símareikningur-
inn var greiddur
Simnotandi hringdi:
Símanum mínum var lokað 17. júh'
sl. vegna skuldar að upphæð kr. 2360
+ söluskattur, sem gerðu samtals kr.
2832. Þetta var vegna símtals við
útlönd.
Reikningurinn barst mér á tilsettum
tíma um síðustu mánaðamót en af
vangá greiddi ég ekki reikninginn fyrr
en 13. júlí. Greiddi ég hann með póst-
gíróseðli í banka einum hér í borg.
Enda þótt Póstur og sími hafi haft
heimild til að loka síma minum vegna
þessarar litlu skuldar strax þann 10.
var það ekki gert.
Aftur á móti var símanum lokað 17.
júlí, fjórum dögum eftir að ég hafði
greitt reikninginn. Þetta er auðvitað
ekki nógu gott. Ég varð að greiða
lokunargjald kr. 800 ofan á fyrri
reikning.
Mér finnst að skriffinnskan sé orðin
Simanum var lokað fjórum dögum eftir að símareikningur var greiddur.
full mikil þegar það tekur meira en banka og á skrifstofu símans. Er ekki
fjóra daga að koma greiðslunni úr ' kerfið gallað?
Starfsfólk í Ör-
firisey þarf að
ganga rúman kíló-
Hringið í
síma
27022
metra í strstó
Þórarinn Björnsson starfsmaður i
Örfirisey hringdi:
Okkur starfsfólki hérna i örfirisey
finnst það alveg óþolandi hvað við
erum afsett í samgöngumálum. Við
þurfum að ganga rúman kilómetra til
að ná í strætisvagn.
Strætisvagn stoppar við hús Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur, stundum í 12—
Raddir
lesenda
Svefnpoki
týndist á
Keflavíkur-
vegi
Friðrik Baldursson hringdi:
Aðfaranótt sunnudagsins 9. júli sl.
sótti ég þrjá danska stúdenta út á
Keflavíkurflugvöll. Við settum hluta
af farangrinum, m.a. dúnsvefnpoka
eins Dananna, upp á þak bilsins sem
ég var á.
Á leiðinni til Reykjavíkur voru við
stöðvaðir og sagt að pakki heföi dottið
af bilnum. Kom í ljós að það var svefn-
pokinn. Fólk í hvítum Saabbil með Ö-
númeri sást taka pokann upp.
Leit bar engan árangur. Ekki heldur
auglýsingar í blöðum og útvarpi. Nú
vil ég biðja Dagblaðiö að vekja athygli
þeirra sem pokann hirtu á því að
eigandinn viil gjarnan fá hann aftur.
Pokinn er gulur að lit og merktur
Peder Rasmussen.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
hringi i Friðrik Baldursson Grænu-
tungu 5 Kópavogi, sími 41155.
17 mín. Það mundi ekki taka vagninn
nema 5 mín. að aka hringinn um
Örfirisey.
í örfirisey eru fjölmörg atvinnu-
fyrirtæki og þar vinna 400—500
manns. Meðal fyrirtækja hérna eru
Sjófang, Seglagerðin, Kristján Ó.
Skagfjörð o.fl.
Vonandi tekur nýi meirihlutinn í
borgarstjórn Reykjavikur þetta mál til
athugunar. Við starfsmenn í örfirisey
erum orðnir langþreyttir á göngunum.
Ræða Þóris
verði
birtáprenti
Hallþór Þ. Briem Hverfisgötu 91 kom
að máli við DB. Sagðist hann hafa
heyrt að séra Þórif Stephensen hefði
flutt ágæta predikun í Dómkirkjunni
sl. sunnudag. Hann hefði því miður
misst af henni. Vildi hann að ræðan
yrði birt á prenti og er þeirri áskorun
hér með komið á framfæri.
sm
Ie?'0
Það er alltaf gaman að
þekkja náungann...
Þekkja hann jafnvel
betur en hann þekkir
sjálfan sig — og meira
að segja án þess
að hann hafi hug-
mynd um það
sjálfur...
Þetta er bók sem
þér innsýn
hugarheim
annara, án
að þú
þurfir að
spyrja þá...
(ATH! Þérerviss-
ara að tryggja þér
elntak í tima, þvi
bókin bókstaf-
lega rikurút...!)
Samtak s.l.
Elnholti 8,
26620.
Hvernig finnst þér
að búa í Reykjavík?
Anna Valenti, húsmóðir: Ég er nú
fæddur ísfirðingur og flutti hingað fyrir
10 árum síðan. Mér likar alveg ágætlega
við Reykjavík.
Indriði Indriðason: Það er ágætt. Ég er
búinn að búa hér í 40 ár og það hefur
aldrei verið betra en núna.
Magnús Jónsson strætisvagnabflstjóri:
Mér finnst ágætt að búa í Reykjavík. Ég
er fæddur og uppalinn við Smiðjustig i
Skuggahverfinu svokallaða.
Guðmundur J. Guðmundsson nemi: Mér
finnst það ágætt eftir að ihaldið féll í
borgarstjórn.
Axel Eyjólfsson húsgagnasmiðun Mtr
finnst það gott miðað við það að íhaldið
er búið að vera 40 ár við völd.
Sigurður Stgurbjörnsson fyrrverandi sjó-
maðun Mér finnst reglulega gott að búa
hér í Reykjavík. Þó svo að ég sé ekki
fæddur Reykvikingur. Ég er fæddur á
Fáskúðsfirði og flutti hingað suður árið
1926.