Dagblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 1
4. ÁRG. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST1978 — 174. TBL. RITSTJÖRN SÍÐÚMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI í 1. — AÐALSÍMI 27022.
Verkamannasamband um stjórnarmyndun: Alþýðuflokkur og i Alþýðu-
bandalag saman, — það er krafan — baksíða
Skátasirkusog
skemmtanaskattur:
Niðurfell-
ing nú, —
EN ALDREI
AFTUR
„Rikisendurskoðun kannaði
þau (reikningsskil „skátasirkuss-
ins” svonefnda) að beiðni ráðu-
neytisins og hefur ekki gert at-
hugasemd..............Ráðuneytið
telur þvi ekki ástæðu til frekari að-
gerða í málinu,” segir i fréttatil-
kynningu um niðurfellingu á
skemmtanaskatti af sirkushaldi
Bandalags íslenzkra skáta.
„Hins vegar hefur ráðuneytið
ákveðið að nota ekki framvegis
heimild þá sem feist í iögum um
skemmtanaskatt til undanþágu frá
greiðsiu skattsins.” (leturbr. blm.)
Liggja til þessarar ákvörðunar
nokkrar ástæður, m.a. að „erfitt er
að fylgjast með því að öruggt sé að
undanþágur séu ekki misnotaðar”,
eins og segir i fréttatilkynning-
unni.
Skátarnir fá sem sagt skemmt-
anaskattinn felldan niður en það
fær aldrei framar nokkur aðili.
-
LesendurDB!
Eruðþið
meðtil
Grikk-
lands?
— Sumargetraunin
erábls. 7ídag
Er engum
að treysta?
„Þótt neytendur vilji vera á
verði og reyna að kynna sér
hlutina setja jramleiðendur
alls kyns hindranir í
veginn,” segir neytandi í
bréfi til Neytendasíðunnar.
Sjá nánar á bls. 4.
STEFAN
Svona myndir sjáum við alltof sjaldan af iþróttavelli, keppinauta sem óska hvor öðrum til hamingju með góðan árangur. Myndin var tekin á Selfossvelli I gærmorgun,
eftir „hlaup aldarínnar” þar. —DB-mynd R.ThJSig.
64 ára og setti nýtt „íslandsmet”
Eiginlega þjófstartaði landbúnaðar-
sýningin á Selfossi kl. 11 i gærmorgun.
Stefán Jasonarson formaður Búnaðar-
sambands Suðurlands hafði skorað á
Jónas Kristjánsson ritstjóra Dagblaðsins
i hlaup. Jónas tók áskoruninni og kvaðst
reiðubúinn aðskokka á eftir Stefáni.
Viðureignin var sú iþróttamannsleg-
asta sem menn minnast af vellinum.
Kapparnir hlupu 10 hringi á hinum
glæsilega velli Selfyssinga, 4000 metra.
Harkan var mikil í byrjun, en rétt fyrir
mitt hlaup kom æfing Stefáns, sem er 64
ára gamall, í ljós. Hann seig fram úr og
fékk glæsilegan tíma, eiginlega nýtt
íslandsmet, 17.28.4 minútur, en ekki
hefur fyrr verið keppt í vegalengd
þessari. Jónas fékk 18.35.8.
„Gott hjá þér Jónas, þú ert kyrrsetu-
maður,” sagði Stefán Jasonarson að
loknu hlaupi. „Ég þeytist eftir rollunum
og fæ mina æfingu, líka þegar ég þarf að
sækja út i hesthúsin min i kilómetra fjar-
lægðfrá Vorsabæ.”
Talsvert margir áhorfendur mættu og
klöppuðu íþróttagörpunum lof í lófa.
Báðir höfðu staðið sig með prýði og
auglýst trimmið, sem alltof margir hafa
trassað siðustu misserin, ekki sizt trimm-
nefndin svonefnda.
JBP
Rolls Royce bifreið á
R-númeri -sjáws.5
Brezkur sjentilmaður á ferð:
Regnhlíf með í förinni,
— en fátt eitt annað
— bls.6
Sænska frystihúsið
blífur, bankinn bíður
— sjá bls. 8
Styrkleysið er okkar
veikleiki ~ sjá viðtal við FR-menn
bls. 5
Stjomarmyndunarviðræðurnar:
SVARTSÝNI
Menn eru svartsýnir á að takist að
mynda þriflokkastjórn Sjáifstæðis-,
Alþýðu- og Framsóknarflokks eftir
fyrsta viðræðufundinn i. gær og fund í
þingflokki Alþýðuflokksins þar á eftir.
Einn þingmanna sagði i gærkvöldi
að þessar viðræður virtust mundu fara
út um þúfur fljótlega.
Litill skilningur rikti á viðræðufund-
inum, sem stóð í um tvær klukku-
stundir. Beinharðar tillögur komu ekki
fram en rætt var um hvernig ráða
mætti við efnahagsvandann sem nú
blasir við.
Næsti viðræðufundur verður ekki
fyrr en á mánudag.
Á fundi þingflokks Alþýðuflokksins
kom fram veruleg andstaða gegn
þessari stjórnarmyndun.
HH