Dagblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978. Morgunblaðið, svikamyllan í Sjálfstæðisflokknum Loksins eru menn farnir aö gera sér opinberlega Ijósa grein fyrir þeirri svikamyllu, í valdabaráttu innan Sjálf- staeðisflokksins sem Morgunblaðið og staða þess gagnvart Sjálfstæöis- flokknum er. Sjálfstæðisflokkurinn einn stjórnmálaflokka i landinu á sér ekkert málgagn I blaðaformi. En lítill hópur manna innan Sjálfstæðis- flokksins er eigandi að málgagni, Morgunblaðinu, sem í orði kveðnu styður Sjálfstæðisflokkinn. Vegna þeirrar staðreyndar, að þetta er eina málgagnið, sem Sjálfstæðisflokkurinn styðst við, er það i „fjölmiðils einokunaraðstöðu” gagnvart Sjálf- stæðisflokknum. Það er alveg sama, hvað þeir menn segja, sem eru á rit- stjórn Morgunblaðsins og í þeim þrönga hópi innan Sjálfstæðis- flokksins, (ennþá að meginhluta til í Sjálfstæðisflokknum), þótt i gegnum erfðir gæti Morgunblaðið lent í höndum kommúnista), um sjálfstæði og hlutleysi Morgunblaðsins. Ein- faldlega eðli málsins samkvæmt eru tengsl þarna á milli sem brjóta i bága við allar reglur lýðræðisins um jafna samkeppnisaðstöðu sjálfstæðismanna um áhrif innan Sjálfstæðisflokksins. Ég mun seinna gera sérstaklega grein fyrir samskiptum minum sem sjálf- stæðismanns í yfir 30 ár við Morgun- blaðið, er Morgunblaðið upp úr þurru leigði skitugan leigupenna til þess að skrifa um mig, sjálfstæðismanninn, niðgrein, og verður fróðlegt að heyra skýringar á þvi, hvernig greinin varð til og hvernig á birtingunni stóð. Sé hlutleysi og sjálfstæði blaðsins á þann veg, sem ritstjórnin er sífellt að staglast á þá er hennar vandi margfalt meiri, ef hún ætlar að starfa í samræmi við reglur lýðræðisins og almenns siðgæðis, þar sem Sjálf- stæðisflokkurinn á ekkert málgagn í dagblaðsformi. Tengsl Morgunblaðsins við Sjálf- stæðisflokkinn hafa verið svo náin, að í hugskoti almennings í landinu hefur verið litið á Morgunblaðið og Sjálf- stæðisflokkinn sem eitt og hið sama. Auiðvitað vita ritstjórar Morgun- blaðsins og flokkseigandafélagið þetta fullkomlega. Sambandið hefur meira að segja verið svo náið, skv. skrifum Birgis ísleifs Gunnarssonar fyrrv. borgarstjóra, að Morgunblaðið hefur að meginuppistöðu séð um stjórn- málaáróðurinn fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Það eru sem sé menn á kaupi hjá einkafyrirtæki úti í bæ, sem sjá um mikilvægustu störf flokksins fyrir kosningar. Gagnvart hverju innan flokksins bera þessir menn svo ábyrgð? Ekki gagnvart einu eða neinu innan þeirrar stofnunar, sem Sjálfstæðisflokkur heitir. Það er alveg sama hvað ritstjórnin og flokkseigendafélagið segir í sam- bandi við tengsl eigenda fyrirtækis og framkvæmdastjóra eða annarra forsvarsmanna þess, auðvitað hafa eigendurnir sín áhrif og auðvitað er tekið tillit til vilja þeirra. Ef aftur á móti enginn ágreiningur kemur upp milli þeirra, er það eingöngu sönnun þess, að i þessu tilfelli stjórn Árvakurs h/f og ritstjórar Morgunblaðsins séu nægjanlega ánægðir með hvorir aðra svo breytingar eiga sér ekki stað. Hvernig hefur svo Morgunblaðið gætt þess hlutleysis sem þvi siðferði- lega bar að gæta vegna stöðu sinnar gagnvart Sjálfstæðisflokknum? Það er staðreynd að Morgunblaðið hefur ekki búið við það frjálslyndi og viðsýni, sem það nú þykist hafa að leiðarljósi nema í mjög skamman tima. Allan þann tíma, sem Morgunblaðið var raunverulega eini blaðakosturinn sem tiltækur var til þess að koma skoðunum á framfæri á landsvísu, var um fullkomna einræðistilhneigingu að ræða af hálfu forsvarsmanna þess. Það eru alltof margir menn sem reyndu söltun á greinum eða birtingar- leysi eða að verið var að vesenast með rauða blýanta niður í greinum, sem lagðar voru fram undir nafni og á ábyrgð greinarhöfundar, til þess að það þýði að mæla þessu á móti I dag. Staðreyndir liggja fyrir í sambandi við samskiptasögu mina og Morgun- blaðsins. Viðsýnið og frjálslyndið var blátt áfram barið inn í Morgunblaðið og kom þar margt til þó er einn atburður þar stærstur er Jónas Kristjánsson ritstjóri brýtur á bak aftur einokunaraðstöðu Morgun- blaðsins í blaðaheiminum. Afstaða Morgunblaðsins í landhelgismálinu Ég skal heldur ekki segja, hve lengi frjálslyndis- og viðsýnishugtakið hefði loðað við Morgunblaðið, ef margir atburðir hefðu endurtekið sig á borð við það, að birta heilsíðuauglýsingar frá brezka togaraeigendasambandinu, sem að efni til var heimskur þvætt- ingur, en svo þegar Islendingurinn Pétur Guðjónsson tók sig til til þess að hrekja þennan þvætting og skrifaði grein þá fékkst hún ekki birt i Morgun- blaðinu. En þetta varð þó til þess, að fleiri auglýsingar frá brezka togara- eigendasambandinu sáu ekki dagsins Ijós á síðum Morgunblaðsins. Þar með lokaði Morgunblaðið fyrir almenna umræðu um þetta stórmál þjóðarinnar og sjáll'stæðismaðurinn Pétur Guðjónsson hraktist frá Morgun- blaðinu og skrifaði í Tímann um land- helgismál i tvö ár. En sögulegt yfirlit um gang landhelgismálsins siðastliðin 7 ár er væntanlegt hér i Kjallaranum innan tíðar einkum með tilliti til april- útkominnar skýrslu rannsóknar- nefndar brezka þingsins á öllum þáttum brezkra fiskveiða og fisk- iðnaðar. 1 skýrslunni viðurkennir rannsóknarnefndin berum orðum, að stefna brezku stjórnarinnar i fiskveiði- málum, landhelgismálum, eftir 1970 hafi blátt áfram brotið i bága við brezka þjóðarhagsmuni, nákvæmlega eins og við i Félagi áhugamanna um sjávarútvegsmál vorum að reyna að telja brezkum og islenzkum stjórn- völdum trú um. Einnig með tilliti til þess, að hér i kosningabaráttunni hafa stjórnmálamennirnir verið aö slá sig og sinn flokk til riddara i þessu máli, þegar staðreyndin er að Íslend- ingar drösluðust aftan í alþjóðlegri þróun og unnu styrjöld í hernaðarlegu (átakalegu) tilliti án þess aö vita almenntaf því. Ef einhver stjórnmálamannanna á heiður skilið fyrir sitt innlegg, þá var það sá maðurinn, sem bar ábyrgð á Landhelgisgæzlunni, og tók ákvörðun um aukningu og styrkingu á búnaði hennar með kaupum á Tý; En ef til vill fyrst og fremst á ákvarðanir um að taka Baldur og Ver í Landhelgisgæzl- una, en það eru afturendarnir á þeim. sem endanlega gera út af við brezka flotann á Islandsmiðum i 4. þorska- stríðinu. Sá maður sem tók þær heilla- drjúgu ákvarðanir var Ólafur Jóhannesson. En maðurinn, sem gerir sér fyrstur manna Ijósa tæknilegu atriðin i sambandi við Baldur og Ver sem gerði þau að fyrsta flokks gæzlu- skipum og átakaskipum við brezka flotann, er Auðunn Auðunsson skip- stjóri. Allur búnaður hefði verið einskis virði, ef ekki hefði komið til ávallt og undir öllum kringumstæðum einbeittur vilji og óbilandi kjarkur áhafna landhelgisskipa okkar undir framúrskarandi stjórn skipherra okkar, sem þegar á hólminn var komið, höfðu yfirburða reynslu og sjómanns þekkingu yfir gagnaðilana í brezka flotanum. Það er svívirða gagn- vart þeim mönnum sem í átökunum við brezka flotann stóðu að stjórn- málamennirnir skuli hafa á svo skömmum tíma, sem liðinn er frá lokum 4. þorskastríðsins, hafa gleymt framlagi þeirra eða látið svo lítið að minnast framgöngu þeirra í undan- genginni kosningabaráttu en þeir hver ;0g einn þakkað sínum flokki það sem gert var. eftir efnahagsséni Alþýöubandalagsins i Þjóðviljanum 6. ág. sl. Að mestu er ritsmíðin enn eitt dæmið um það blinda hatur sem þessi uppskafningur hefir á okkur krötum, en að hluta rækileg staðfesting á að um efnahags- mál er hann jafnfákunnandi og um verkalýðsmál. „Tillögur Alþýðu- bandalagsins fólu þvi einfaldlega i sér að framlengja þær aðgerðir i fjóra mánuði til viðbótar, við þá þrjá, sem þegar hafa verið ákveðnir.” (ÓRG Þjóðv. 6.8.). Hér er „séníið” að tala um „lausn ” þeirra alþýðubandalags- manna á vanda frystihúsanna. (Fram- hald á núgildandi „lausn”). Hver hafa nú verið bjargráðin þessa þrjá mánuði, sem Alþýðubandalagið ætlaði að framlengja í fjóra mán. til viðbótar? Það er þá fyrst að frystiiðnaðurinn átti í sínum verðjöfnunarsjóði nægjanlegt fé til þess að bæta 11% af 15% tap- rekstri meðalhúss út júní og vel það. Það sem eftir var af júlí og ágúst tók ríkisstjórnin ábyrgð á að yrði greitt, en hún hefir ekki það minnsta hugsað fyrir þvi með hverju á að greiða þaö (gat). Svo vel hafa þessi bjargráð gefist, Kjallarinn Ólafur Björnsson sem Alþýðubandalagið vill taka upp eftir fráfarandi rikisstjórn, að ekki var júlí allur þegar frystihús á Suður- nesjum, í Vestmannaeyjum og víðar gáfust upp. Fáir munu halda áfram út september hvað þá til áramóta. Jafnvel stjórnmálasérfræðingur ætti að geta skilið að þótt hægt sé að slarka áfram í 1—2 mánuði með því að fá aðeins bætt 11% af 15% tapi, það er 4% mínus á meðalhúsi. Þá er slíkt útilokað i 7 mánuði (þ.e. gat við gat). Er vandinn fiskvinnslunnar eða þingmanna? Mikið hefir verið látið af þvi að fisk- blokkin sé nú i því hæsta verði, sem hún nokkrun tima hefir komist, þ.e. í 105 sentum. í þessu verði hefir blokkin nú staðið í um eitt ár og það má vissulega þykja gott. En hvað hefir gerst hér á landi á sama tíma? Tilkostnaður vió aó fram- ieiöa þessa ágætu blokk hefur hækkað um 40—50%. Svo eru þessir spekingar alveg hissa á að dæmið gangi nú ekki lengur upp hjá þessum „skussum” sem reka frystihúsin. Það rétta varðar þá ekki um Fullvíst er að víða mætti bæta rekstur frystihúsa og vel geta verið dæmi þess að hreinlega ætti að skipta um menn er fást við rekstur þeirra. Slíkt sannar þó ekki að almennur tap- rekstur sé aðeins bókhaldstap eins og margir spekingar predika sýknt og heilagt. Staðreyndin er reyndar sú að enginn rckstur í landinu skilar Þjóðhags- stofnun meiru af gögnum, rckstrar- uppgjöri o.fl. Mörg frystihús skila þessum upplýsingum þrisvar á ári og fjöldi frystihúsa skilar mánaðarlega framleiðniútreikningum. Mörg þessara fyrirtækja eru hálf- eða alopinber rekstur. Tvær gamalgrónar bæjarútgerðir reka alhliöa fiskverkun, sem væntanlega sýna ekki aðeins „bókhaldstap”. Spekingarnir hljóta að hafa greiðan aðgang að reikningum þessara fyrirtækja, sem þeir vissulega myndu nota sér ef þeir hefðu minnsta áhuga á að kynna sér málin. Síðan gætu þeir gert kröfu til þess að þeir sem ekki geta starfað á þeim grundvelli, sem þessum fyrirtækjum nægir, væru hreinlega gerðir upp. Kjallarinn PéturGuðjónsson Landhelgismálið allt er eðlis síns vegna hafið langt yfir hina pólitkisku , flokka. Stjórnmálamennirnir gerðu ekkert annað en að rétta upp hönd. Það þurfti miklu meira til en það. Ég geri ráð fyrir þvi, að sú rödd eymdar og úrtölu, sem var að finna á síðum Morgunblaðsins á þessum árum mundi óska sér i dag að hún hefði aldrei hljóð látið frá sér fara, einkum og sér í lagi eftir útkomu brezku rann- sóknarskýrslunnar. Alþjóð eru kunn uppsetning á leiðara Morgunblaðsins fyrir ofan grein Birgis ísleifs, sem er einhver mesti dónaskapur og sjálfbirgingsháttur sem um getur i islenzkri blaðasögu. Viðbrögð Morgunblaðsins við niður- stöðum viljayfirlýsinga sjálfstæðis- manna til ákveðinna mála í skoðana- könnunum í sambandi við prófkjörið. Og núna er það lætur blaðamenn sina ófrxtýa Albert Guðmiindsson. Ef viðsýnið og frjálslyndið og hlutleysið á að ráða. verður Morgunblaðið að láta skrifasams konar (istla um alla þá er til greina koma sein formenn Sjálf stæðisflokksins i næsta landsfundi. Ef ekki, sitja ritstjórarnir uppi með stimpil á misnotkun á aðstöðu sinni gagnvart Sjálfstæðisflokknum og ennþá einni undirstrikuninni á þeirri ólýðræðislegu stöðu, að það skuli vera litill hópur innan Sjálfstæðisflokksins, sem skuli eiga „prívat” málgagnið, sem flokkurinn styðst við. Sjálfstæðisflokkurinn verður að binda endi á þetta ástand. Sjálfstæðis- flokkurinn verður að eignast sitt eigið málgagn, sem ber ábyrgð gagnvart flokknum og flokksmönnum almennt. Það er eins og hver önnur rökleysa að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki átt sitt málgagn, sem stærsti stjórnmála- flokkur þjóðarinnar á sama tíma og marx-leninistarnir gefa út hlað. Morgunblaðið verður kio .kipti l'\ rir öll að hætta mismunun a mill’ sjálf- stæðismanna á siðum sinum annars biður það um uppvakningu þess ljóta draugs er tröllreið sumum dagblöðum dag eftir dag á árunum milli 1930 og 40 og er Ijótasti kafli islenzkrar blaða- mennsku. Sá draugur er persónuníðið. PéturGuöjónsson, form. Félags áhugamanna um sjávarútvegsmál. Nútíma arðræningjar Okkur krötum ofbýður sú vitlausa verðbólga, sem allt brennir, rekstrar- grundvöll fyrirtækja, kaupmátt tekna verkafólks og fer verst með þá sem minnst mega sín. Ég og aðrir kratar vilja breyta þessu. Við viljum auka kaupmáttinn og staðreyndir sýna okkur að einfaldar krónuhækkanir gera það ekki. Við viljum lika gjör- breyta skiptingu þeirra tekna sem aflast. Og höfum i huga að það eru alltof margir sem komast upp með það að taka margföld laun fyrir alls konar gervistörf á kostnað þeirra. sem þræla við undirstöðuatvinnuvc ,;na. Það er löngu liðin tíð að atvinnurckendur hirði arðinn af vinnu verkalýðsins, heldur er það hvitflibbaliðið, sem magnast með hverju árinu, sem er orðin hin raunverulega afæta, og skæðastir eru þeir, sem mest fleðulæti hafa i frammi. Ólafur Björnsson, útgeröarmaöur. Kcflavfk.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.