Dagblaðið - 12.08.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978.
” .........——
9'
Sænska frystihúsið rekið
áfram — „fer ekki í bága við
okkar áætlanir”
— segir Seðlabankinn
Sænska frystihúsið verður rekið að
minnsta kosti eitt árið enn. Á fundi
borgarráðs Reykjavíkur hinn 6. júni
sl. var samþykkt að heimila Bæjarút-
gerð Reykjavikur að reka „Sænska” til
haustsins 1979 á sama hátt og verið
hefur.
„Áætlun um byggingu Seðlabanka-
húss er í endurskoðun og engar dag-
setningar komnar á framkvæmdir,”
sagði Sigurður örn Einarsson, skrif-
stofustjóri bankans i viðtali við DB.
„Áform BÚR um rekstur Sænska
frystihússins eitt ár enn að minnsta
kosti fer ekki í bága við neinar áætl-
anir Seðlabankans. Við vissum af
þessu,” sagði Sigurður örn.
Fyrirhugað er að reisa Seðlabanka-
hús þar sem „Sænska” stendur nú eða
því sem næst. Hefur komið til orða að
borgin og Seðlabankinn hefðu maka-
skipti á lóðum. Reykjavíkurborg fengi
Seðlabankagrunninn en Seðlabankinn
lóðina undir „Sænska”. Rætt hefur
verið um að gera bílageymslu inn í
Arnarhólinn og tyrfa þak hennar
þannig að ekki myndi raskast útlit
hólsins.
Seðlabankahús á grunni Sænska
frystihússins yrði ekki hærra en svo að
það byrgði borgarbúum ekki útsýn
frekar en frystihúsið hefur gert.
BÚR hefur rekið frystihúsið frá þvi
Reykjavíkurborg eignaðist það 1973.
Þar er geymt kjöt fyrir kjötheildsölur
og verzlanir. Þar er enn framleiddur is
meðal annarsJyrir skip BÚR. Loks eru
einstaklingum leigð 650 geymsluhólf
við miklar vinsældir.
Rekstur hússins hefur gengið svo
vel, að hann stendur undir kostnaði,
svo sem fasteignagjöldum og vatns-
skatti, sem námu um 2.6 milljónum
króna árið 1977. Þessi liður hækkar
upp í 3.5 millj. i ár. Þá stendur rekstur-
inn einnig undir rafmagnskostnaði og-
greiðslum á afborgunum á láni, sem
borginni var veitt, þegar hún keypti
húsið af skilanefnd þess árið 1973.
Að sögn Vigfúsar Aðalsteinssonar,
skrifstofustjóra BÚR, starfa nú 4—5
menn við rekstur hússins.
Þegar veður leyfir eru fataslár drifnar út á götuna, rétt eins og tiðkast á „flóamörkuðum” erlendis. Allt sem lifgar upp á
gamla miðbæinn er kærkomin tilbreyting. Þarna er ungfrú Matthildur með Pollý „vinkonu” sína að athuga hvernig
viðskiptin ganga.
DB-myndir Bjarnleifur
„Við höfum verið með heilmikið af
krakkafötum auk alls konar fatnaðar og
er hver flík seld á eitt hundrað krónur.
Mikið er um að fólk komi með föt sem
börn þeirra eru vaxin upp úr og gefi
okkur og kaupi svo passandi föt hjá
okkur,” sagði Jórunn Sörensen, for-
maður Sambands dýraverndunarfélaga,
þar sem hún stóð og afgreiddi viðskipta-
vini i hinum nýja Flóamarkaði sam-
bandsins að Laufásvegi 1. Markaður-
inn er opinn daglega frá kl. 2—6, en ráð-
gert er að hafa einnig opið á laugardög-
um með haustinu.
Þarna kennir margra grasa. Næstum
því allt sem nöfnum tjáir að nefna er falt
ámarkaðinum. Leikföng, búsáhöld,
plötuspilari, sokkaviðgerðarvél, gömul,
útdregin myndavél á 1500 kr., skart-
gripir, skór og málverk. Þama var einnig
til gamalt Rauða kross rúm sem verðlagt
var á 2000 kr. Ónotaðir skór kosta 200
kr. en 100 kr. þeir sem notaðir eru.
Hægt er að kaupa minningarkort
sambandsins á markaðinum og einnig er
Dýraverndarinn kynntur. Allur ágóði
rennur til dýraverndar í landinu.
Sambandið tekur með þökkum við
öilu því sem fólk vill láta af hendi rakna,
en farið er fram á að fötin séu heil og
hrein.
Jórunn Sörensen kunni sér varla læti
af fögnuði yfir nýja fyrirtækinu sem hún
sagði að hefði gengið mjög vel. „Þetta á
eftir að verða sambandinu mikil lyfti-
stöng,” sagði hún. „Fjárhagur þess
hefur hingað til verið mjög bágborinn,
þrátt fyrir árlegan styrk frá ríkinu sem er
150 þúsund kr. i dag.”
Eigendur hússins að Laufásvegi 1 eru
miklir dýravinir og lána sambandinu
húsnæðið endurgjaldslaust.
A.Bj.
Gamlar krónur fá nýtt verðgildi:
Kjólar á hundrað-
kall á flóamarkaði
í miðbænum
Eins og glöggt má sjá á myndinni kcnnir margra grasa á Flóamarkaði Sambands
dýravcrndunarfélaga á Laufásveginum. Þá stuttu stund sem blm. og Ijósm. stóðu við
kom fjöldinn allur af fólki, skoðaði varning og keypti.
Rafmagnið
og heita vatnið
hækka
Ríkisstjórnin veitti leyfi til 25%
hækkunar á heildsöluverði rafmagns á
fundi sinum í gær. Rafmagnsveitu
Reykjavikur var heimilað að hækka
rafmagnstaxta um 8.3% til viðbótar
hækkun heildsöluverðs.
Þá var einnig samþykkt að leyfa
20% hækkun á töxtum Hitaveitu
Reykjavíkur. Eru þessar hækkanir
nokkru minni en um var sótt eða ná-
kvæmlega þær, sem Gjaldskrárnefnd
mælti með. — BS
¥
■V
* »
♦
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
1. A. Vekjum athygli á því að við framköllum
Það er 110, 126 Instamatic, 135, 120 og fleiri stærðir Kodak, Fuji,
3M Sakura Gaf eða allar filmur sem framkallaðar eru með C 41 að-
ferðinni. B. Einnig stækkum við litljósmyndir. C. Kynnist okkar
kjörum og þjónustu.
2. Við bjóðum sérstakan afslátt á framköllun frá okkur með því að
greiðslan sé send með filmunni eða framköllun staögrcidd um leið
og filman kemur i okkar hendur.
3. Sendið aldrei peninga í pósti heldur ávisun stilaða á okkur.
4. Útfyllið miðann hér fyrir neðan og sendið hann útfylltan ásamt
filmunni og greiðslunni í pósthóif okkar i vél lokuðú venjulegu
umslagi, eða í sérstökum umslögum frá okkur.
Pósthólf okkar eru:
P.O. Box282 121 RcykjaOk.
P.O. Bo\ 300 202 Kópavogi.
P.O. Box 350 222 HafnarfirAi.
P.O.Box 100 212GarAabæ.
Venjulegt búðarvorð:
120 kr. hver mynd.
350 kr. framk. á filmu.
Dœmi:
8 myndir + framk. 1310 kr.
12 á filmu 1790 kr.
20áfilmu 2750 kr.
24 á filmu 3330 kr.
36 á filmu 4670 kr.
ViA bjóAum
20% AFSLÁTT
MilliliAalaust
Fyrir fljótustu þjónustu
scndiA I pósthólf
okkar næst hcimili þinu.
Okkar póst-
staðgroiðsluvorð:
100 kr. hver mynd.
300 kr. framk. á filmu.
Dæmi:
8 myndir + framk.
12 á filmu
20 á filmu
24 á filmu
36 á fílmu
llOOkr.
1500 kr.
2300 kr.
2700 kr.
3900 kr.
Askiljum okkur rétt til verðbreytinga i samræmi við almennt verðlag.
Aðeins er greitt fyrir myndir sem heppnast. Inneignarnóta er gefin
fyrir þær sem ekki takast, 100 kr. hver mynd. Ef filma skemmist
afokkar völdum er hún bætt með nýrri filmu.
Ég undirritaður sendi upphæð kr.
Nafn
Heimilisfang
Staður og póstnúmer
Sími______________
íbúð nr.
STJÖRNU-UOSMYNDIR - NY LITMYNDAIÐJA