Dagblaðið - 13.09.1978, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1978.
London: r
BROTIZTINNI
SKRIFSTOFUR
ÍHALDSMANNA
Brotizt var inn í skrifstofur brezka
íhaldsflokksins i London í gær. Að
sögn lögreglunnar er þó ekkert sem
bendir til þess að innbrotið hafi verið
af pólitiskum toga spunnið. Á skrif-
stofunni voru geymd ýmis skjöl og
áætlanir, sem forráðamenn íhalds-
flokksins telja að ekki sé heppilegt að
komi fyrir almennings augu að svo
stöddu. Má þar meðal annars nefna
lokauppkast af stefnumörkum flokks-
ins komist hann til valda i næstu kosn-
ingum. Þær verður að halda eigi síðar
en I október á næsta ári.
Lásar á skápum og skúffum voru
brotnir upp en að sögn lögreglu þá
virðist engu hafa verið stolið og er
helzt álitið að þarna hafi verið á ferð-
inni einhverjir sem leitað hafi fjár-
muna.
Talsmaður íhaldsflokksins var þó
ekki eins trúaður á þessa skoðun lög-
reglunnar. — Innbrotið var framið
einmitt á þeim tima þegar mikilvæg
skjöl eru geymd á skrifstofunum, sagði
hann. — Árið 1974 hafi sams konar
skjölum verið stolið á einhvern hátt og
komið til fjölmiðla fyrr en ætlað hafi
verið að gera þau opinber.
Ætluðu þjófarnir að ná i leyniskjöl
Margrétar Thatcher eða voru þeir
aðeins á höttunum eftir peningum.
Francis J. Crawford bandaríski kaupsýslumaðurinn, sem ákærður var fyrir gjaldeyrisbrask i Sovétríkjunum slapp með
skrekkinn. Talið var að hann gæti átt á hættu nokkurra ára nauðungarvinnu en dómurinn var skilorðisbundinn og fékk hann
að fara úr landi skömmu eftir að búið var að kveða upp dóminn. Á myndinni sést er hann ræðir við fréttamenn á flugvellinum
í Frankfurt i Vestur-Þýzkalandi. Crawford hélt stöðugt fram sakleysi sínu.
Nixon varar við bjart-
sýni i Camp David
Richard Nixon fyrrum forseti
Bandaríkjanna varaði fólk við í gær að
búast við beinum friðarsamningum í
kjölfar viðræðnanna i Camp David.
Þar ræðast þeir við Sadat Egypta-
landsforseti, Begin forsætisráðherra
Israel og Carter Bandarikjaforseti.
Nixon lét þessi orð falla á blaða-
mannafundi er hann hélt af því tilefni
að samningar hafa verið undirritaðir
um að hann skrifaði nýja bók. Á hún
að fjalla um þau vandamál, sem mæta
muni forsetum Bandaríkjanna á
næstUáratugum.
Hann sagðist ekki búast við neinum
skjótum árangri af fundi þre-
menninganna í Camp David.
Auðvitað vonaði hann hið bezta.
Nixon tók fram að hann hefði engar
upplýsingar um það sem gerðist á
fundinum umfram þær sem birzt
hefðu opinberlega. Vegna þessarar
nýju bókar sagðist Nixon hafa lagt á
hilluna öll áform um að ferðast til
annarra landa þar til hann hefði lokið
henni. Yrði það væntanlega næsta
vor. Ferðaáætlanir hins fyrrverandi
forseta hafa fyrir skömmu orðið fyrir
áfalli, þegar ástralska rikisstjórnin
tilkynnti að hún teldi ekki æskilegt að
hann kæmi í opinbera heimsókn þang-
að á næstunni. Nixon tók neitun
Ástralíumanna vel og karlmannlega
cg hefur látið hafa eftir sér að honum
hafi hreint ekki dottið í hug að fara i
neinar heimsóknir, sem taldar yrðu
opinberar.
Barcelona:
Gúmkúlur, reyk- og
bensínsprengjur
Óeirðalögregla skaut gúmkúlum og
reyksprengjum að hópi vinstri sinn-
aðra göngumanna i Barcelona á Spáni
í gær. Svöruðu þeir í sömu mynt og
vörpuðu bensínsprengjum að lögregl-
unni, hlóðu götuvígi og brutu rúður i
nærliggjandi byggingum. Gerðist
þetta i miðhluta Barcelona. Göngu-
menn voru að mótmæla láti ungs
vinstrisinna, sem lézt af skotsárum
eftir átök við lögregluna daginn áður.
Bensínsprengjur lentu á tveimur
lögreglujeppum og kviknaði i þeim en
engir særðust að sögn lögreglunnar.
Rúður brotnuðu í simaklefum, veit-
ingastöðum, verzlunum og kyrrstæð-
um bifreiðum áður en lögreglunni
tókst að dreifa mannfjöldanum.
Vinstrisinninn sem lézt var sextán
ára og tilheyrði hreyfingu maoista,
sem ekki er leyfð af stjórnvöldum á
Spáni. Var hann skotinn til bana af
óeinkennisklæddum lögreglumanni, er
mótmælafólk réðst að lögreglubifreið
og kastaði að honum bensínsprengj-
um.
Cuda340
Til sölu Plymouth Cuda
1973. Vél 340 cc 4 hólfa
Holley 650. Edelbrock
Torker 340 millihedd.
Hooker flækjur, elec-
tronic kveikja og m. fl.
Hole Shot konverter í
skiptingu.
Keyptur á Hot Road
sýningu í USA 1978.
Upplýsingar í síma 92—
2361 eftir kl. 18.
Ólafsvík
Einbxlishús í Kópavogi, 6—7 herb. og eldhús
á 2 hæðum með stórum og góðum bílskúr,
fæst í skiptum fyrir einbýlishús í Ólafsvík.
Baldvin Jónsson hrl.
Kirkjutorgi 6, sími 15545.
Kvöld- og helgarsími 76288
Sími 29922
Dalsel
Vönduð tveggja herbergja íbúð á 3. hæð. Innréttingar í
sérflokki. Sameigin fullfrágengin og bílskýli.
Vesturbær
Góð tveggja herbergja íbúð við Hagamel. íbúðin er á
fyrstu hæð í nýju húsi, góð sameign.
Kópavogur
Höfum til sölu vandaða og góða 4ra herbergja íbúð á
bezta stað í Kópavogi.
íbúðin er með 3 stórum svefnherbergjum, góðum
teppum og suðursvölum. Gott útsýni.
Kópavogur. Einbýli.
Til sölu gamalt einbýlishús, ca. 92 ferm með nýlegri
viðbyggingu. Húsinu fylgir aukalóð með byggingarrétti.
Vesturbær. Sérhæð
Úrvals sérhæð með bílskúr. íbúðin er á fyrstu hæð, vel
staðsett við Melhaga.
Makaskipti æskileg á einbýlishúsi, sem má kosta 40
milljónir.
Sumarbústaður
Góður sumarbústaður á eignarlandi við Hafravatn.
Bátaskýli og bátur fylgir.
Iðnaðarhúsnæði óskast til sölu.
Seljendur athugið
Höfum til sölu í makaskiptum fjölda af góðum eignum.
FASTEIGNASALAN
ASkálafell
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 10-22
MJOUHLIÐ 2 (VIO MIKLATORG)
SÍMI: 29922
SÖLUSTJÓRI: SVEINN FREYR
LOGM. ÓLAFUR AXELSSON HDL.