Dagblaðið - 13.09.1978, Síða 24
w
frfálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 13.SEPT. 1978.
Lokaverk Jökuls heitins Jakobssonar um son skóarans og dóttur bakarans er mik-
ið verk og flókið. Þjóðleikhúsið er þessa dagana bókstaflega undirlagt af æfingum
fyrir frumsj ninguna, sem er á föstudagskvöldið.
t gær var ein af sfðustu æflngunum og verkið keyrt i gegn eins og á venjulegri sýn-
ingu. Trúlega á leikstjórinn, Helgi Skúlason, eftir að lagfæra einhverja vankanta áður
en hin stóra stund rennur upp og verkið verður sýnt almenningi.
Á myndinni sjáum við eitt hópatriðið fyrir utan Hótel Áróru i norðlenzkum bæ þar
sem verksmiðjan er komin á hausinn og ibúarnir að komast á vonarvöl. Magnað leik-
rit og i mörgu ólikt fyrri verkum Jökuls.
— DB-mynd Ari
Flugvél frá Iscargo í hjálpar-
Lokahönd lögð á síðasta leikverk Jökuls
— tvær íslenzkar áhafnir flytja hjálpargögn
og matvæli á hið stríðshrjáða svæði
Flugvél Iscargo á flugi i Eritreu.
annarri vél, þar sem verkefni væru
næg. Félagið hugðist taka aðra DC 6
vél i notkun, en hún hefur staðið lengi
ónotuð á Reykjavíkurflugvelli. Það
óhapp varð þó, er unnið var við endur-
bætur á vélinni nýverið að það
kviknaöi i henni, þannig að sú vél er
úr sögunni. “ -JH.
Breiðholtsmálið:
„ VIÐSKIPTASIDFERDI
ÞJÓFA OG RÆNINGJA”
— segir AxelíRafha
„Rangfærslur í fréttaflutningi fjöl-
miðla af viðskiptum Raftækjaverk-
smiðjunnar hf. við Breiðholt hf. hafa
nú enn einu sinni verið endurteknar á
þann veg, að ég hlusta ekki á þetta
lengur án þess að svara,” sagði Axel
Kristjánsson, forstjóri í Rafha, er DB
átti tal við hann í gær.
„I dag er meðal annars sagt frá því,
að Sementsverksmiðjan krefjist
greiðslu á „veðskuld” Breiðholts hf.,
sem tryggð eigi að vera í eignarhluta
Raftækjaverksmiðjunnar hf. í Austur-
veri. Þetta er alrangt,” sagði Axel.
I stuttu máli kvað Axel málið
þannig vaxið:
Hinn 7. júlí 1977 seldi Breiðholt
Raftækjaverksmiðjunni hluta í. Háa-
leitisbraut 68, Austurveri. Meðal
áhvilandi skulda var fjárnám upp á
13.5 milljónir króna, sem Sements;
verksmiðjan hafði gert í eigninni,
vegna gjaldfallinna víxla frá Breið-
holti.
Afsali til Raftækjaverksmiðjunnar
dagsettu 7. júlí var þinglýst. Jafnframt
ritaði lögmaður okkar Sementsverk-
smiðjunni bréf. Tilkynnti hann eig-
endaskiptin 'og tilkynnti að frekari
tryggingar vegna viðskipta við Breið-
holt væru óheimilar. Enda brá nú svo
við, að Sementsverksmiðjan Ijáði ekki
máls á öðru en staðgreiðsluviðskiptum
við Breiðholt eftir þetta.
Mörgum mánuðum siðar, eða hinn
8. nóvember, fór Sementsverksmiðj-
an að gera fjárnám fyrir vixlum frá
Breiðholti i eign Raftækjaverksmiðj-
unnar. Um þetta höfðum við þá enga
hugmynd,” sagði Axel.
„Nú er reynt að hengja þessar
skuldir á okkur. Þetta eru ekki annað
en þjófar og ræningjar, ef þetta
gengur. Ef þetta viðskiptasiðferði er
það sem koma skal, þá bið ég fyrir ís-
lenzku þjóðfélagi,” sagði Axel Krist-
jánsson. Hann bætti við: „Það er
kannski kominn tími til að lögfræð-
ingur Sementsverksmiðjunnar geri sér
og öðrum grein fyrir skiptingu Breið-
holts, og m.a. Scanhouse og fleira, sem
fram fór á sama tíma og framangreind
viðskipti, ef þessum ofsóknum linnir
ekki.”
- BS
Gröndal
til alls-
herjar-
þingsins
Benedikt Gröndal, utanríkisráð-
herra, fer utan til þess að vera við-
staddur setningu 33. allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna hinn
19. september í New York.
Benedikt mun flytja þar ræðu
og taka þátt í hinni almennu um-
ræðu þingsins. Á dagskrá þess nú
eru I30mál.
Benedikt sat á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna árið 1966.
Hann sat í stjórn þingmannasam
taka Atlantshafsbandalagsins
1956—59 og hefur átt sæti i mörg-
um fundum samtakanna þá ogsíð-
ar. Þess má og geta, að hann hefur
átt sæti í endurskoðuoarnefnd laga
um utanríkisþjónustu. Hann er því
ekkr nýgræðingur í utanrikismál-
um, þótt hann hafi ekki gegnt
starfi utanríkisráðherra fyrr en nú.
- BS
Tugirmanna
kærðir
Kópavogslögreglan hefur
undanfarna daga gert átak gegn of
hröðum akstri og eru niðurstöður
lögreglumanna ógnvekjandi. í
fyrradag var verið i þrjár klukku-
stundir með radartæki til hraða-
mælinga og voru yfir 70 ökumenn
kærðir á þeim tíma. Telja lögreglu-
menn i Kópavogi að mjög fari i
vöxtof hraðurakstur.
Á einni götu í Kópavogi þar sem
margir voru kærðir eru tveir skólar
og stöðug umferð gangandi barna.
Þarna voru ökumenn mældir á yfir
80 km hraða.
Önnur gata, Nýbýlavegurinn, er
stórhættulegur öllum ökutækjum
sem of hratt fara. Samt flengjast
menn þar áfram og margir hafa
verið mældir þar á allt upp i 90 km
hraða. Lögreglumenn vonast til að
sliku linni nú og þeir geti kært
færri, þó þeir fari út að mæla. ASt.
BillyGraham
samkomur
íReyjavík
Billy Graham mun fara mikla
krossferð um Norðurlöndin í lok
þessa mánaðar, segir i tímaritinu
Rödd úr óbyggð. Samkomur
heldur hann í Osló og Stokkhólmi,
en blaðið segir að samkomurnar
verði sýndar í Reykjavik á sýn-
ingartjaldi með íslenzkum texta.
„Reynt verður að fylgja siðum
Grahams við þessar samkomur,
þannig að um er að ræða raun-
verulegar Billy Graham-samkom-
ur,” segir í Rödd úr óbyggð.
Ær Kaupio <s£x
* TÖLVUR
lac OG TÖLVUUR Pi
B AN K ASTRÆTI8
flugi i Erítreu
Flugvél frá íslenzka flugfélaginu
Iscargo hefur nú um nokkurt skeið
verið við hjálparflug í Eritreu, en þar
hefur geisað stríð að undanförnu eins
og kunnugt er. Hjálparstarf þetta er
skipulagt frá bækistöðvum hjálpar-
stofnunar kirkjunnar í Súdan og í fullu
samráði við yfirvöld þar í landi. Rauði
kross Erítreu á einnig aðild að þessu
hjálparstarfi.
Að sögn Lárusar Gunnarssonar hjá
Iscargo eru 7 flugliðar á vegum
félagsins nú í Erítreu, eða tvær
áhafnir. Flugstjórar félagsins á vél
Iscargo, sem er af gerðinni DC 6, eru
Reidar Kolsö og Magnús Guðbrands-
son. Lárus sagði að fiug þetta hefði
hafizt 9. júlí sl. og enn er óljóst hve
lengi starfið stendur, en það ætti þó að
skýrast á næstu vikum.
Lárus sagði að flugið hefði gengið
mjög vel, enda væri eingöngu flogið
samkvæmt samningum aðila. Daglegt
samband er haft við íslendingana
þarna syðra og er allt gott af þeim að
frétta. Ekki taldi Lárus þetta fiug
hættulegt, þrátt fyrir striðsástandið á
svæðinu, þótt þetta væri e.t.v. ekki
eins og að fijúga á milli Akureyrar og
Reykjavíkur.
1 Erítreu búa um 3 milljónir manna
og hafa á milli 600—800 manns orðið
að yfirgefa heimili sin vegna striðs-
rekstursins. U.þ.b. 90 þúsund manns,
einkum konur, börn og gamalmenni
eru nú háð daglegri framfærslu á mat
oglyfjum.
Lárus Gunnarsson hjá Iscargosagði
að vélin sem staðsett er í Erítreu væri
eina vél félagsins. Mikil þörf væri á