Dagblaðið - 16.09.1978, Síða 1

Dagblaðið - 16.09.1978, Síða 1
4. ÁRG. — LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978. — 204. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11, — AÐALSlMI 27022. VORllKOMNIRVEL UPP UR „ÞAKINU” Lánastofnanir voru í lok ágúst- mánaöar komnar sex af hundraði upp fyrir það útlánamark sem for- ráðamenn þeirra settu sér í byrjun ársins í samvinnu við Seðlabankann. Samkvæmt samkomulaginu áttu úlán ekki að hækka meira en 29 af hundraði frá fyrra ári. Að sögn Jóhannesar Nordal seðlabankastjóra munu þessi 6% jafngilda um það bil fimm milljörðum króna. Á fundi viðskiptabanka, sparisjóða og fuíltrúa Seðlabankans hefur nú verið ákveðið að stefna að lækkun heildarútlána það sem eftir er af árinu. Er ætlunin að út- lánin hækki ekki í heild sinni meira en ætlað var i árebyrjun. Ástæður fyrir auknum útlánum, munu meðal annars vera hraðari verðbólguþróun, en reiknað var með í byrjun ársins og meiri birgðir sjávaraf- urða og annarra útflutningsvara en ella vegna útflutningsbannsins í vor. Seðlabankastjóri sagði að hlut- fallslega miklar birgðir útflutningsvara væru ekki óvenjulegar upi þetta leyti áre. í árslok væri aftur á móti full ástæða til að ætla þær minni. Birgðir landbúnaðarvara yrðu þá einnig farnar að minnka og þá yrði farið að draga úr útlánaþörf verzlunarinnar. í tilkynningu Seðlabankans um þetta mál segir að lausafjárstaða sumra banka hafi farið mjög versnandi að undanförnu. Með hliðsjón af þvi og stöðu og horfum í efnahagsmálum sé Ijóst að þörf sé á miklu aðhaldi í útlánum banka og sparisjóða á næstu mánuðum. ÓG. Einstakuratburður íGufunesi: KIRKJU- GARÐUR- INN FÆRÐUR í HEILU LAGI — biskup vígði hinn nýjagarð ígær Sóknarprestur Lágafellssóknar, Birgir Ásgeirsson, flutti bænarorö og siöan vigði biskupinn, hr. Sigurbjörn Einarsson, hinn nýja garó. Einnig má sjá á myndinni eigin- konu biskups, Hjálmar Finnsson forstjóra Áburðarverksmiðjunnar og biskupsritara, Magnús Guðjónsson. DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson Einstakur atburður gerðist uppi í Gufunesi i gær. Þá vígði biskupinn yfir íslandi kirkjugarð, sem hafði verið flúttur, nánast i heilu lagi, um set. Hér var um að ræða gamla kirkjugarðinn sem notaður var allt frá 13. öld. Garður- inn var lagður niður árið 1886. Maríu- kirkja var í Gufunesi í fullar sjö aldir. Þegar borgaryfirvöld í Reykjavik ákváðu árið 1952 að reisa áburðarverk- smiðju í Gufunesi var þeim er að þeirri ákvörðun stóðu ekki ljóst að á landsvæði því sem úthlutað var undir verksmiðj- una var forn kirkjugarður, allt frá 13. öld, enda var yfirborð hans slétt og stað- setning óljós. Skipulag um staðsetningu bygginga og vega varð þvi ekki gert með tilliti til legu kirkjugarðsins. Við jarðvinnu árið 1965 við grunn ný- bygginga kom í ljós að leifar grafinna í hinum gamla garði voru á allt öðrum stað en ætlað hafði verið. Þáverandi þjóðminjavörður, Kristján Eldiárn. kom þegar á staðinn til að athuga verksum- merki og siðar með honum biskupinn, hr. Sigurbjörn Einareson, og Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins, ásamt Aðalsteini Steindórssyni, umsjónar- manni kirkjugarða. Biskup gaf síðan leyfi til þess að moldir garðsins yrðu fluttar árið 1968, enda yrði ákveðnum skilyrðum full- nægt. Verkinu lauk síðan sama ár. Fluttar voru moldir 750 greftraðra úr garðinum. 749 moldir voru jarðsettar í hinum nýja garði, en bein Páls Jóns- sonar sýslumanns, sem dó árið 1819, tók þjóðminjavörður í sina vörzlu ásamt áletruðum silfurskildi sem í kistu hans var. Engar leifar legsteina fundust. Hinn forni kirkjugarður var 40x38 metrar að stærð. Þegar framangreindum moldum hafði verið raðað í hinn nýja garð var öll kirkjugarðsmold, sem áðin umlukti hin greftruðu i gamla garðinum, flutt í hinn nýja garð og geymir enn sem fyrr þau sem þar hvila. Nýi garðurinn var hlaðinn 1970, sam- kvæmt hönnun Reynis Vilhjálmssonar garðarkitekts. Á síðastliðnu vori lauk verkinu með því að gróðursett var ís- lenzk björk i garðinum. Þá e og minnis- merki í nýja garðinum. JH Tvenns konar kjötverð ígangi: Gamla kjötið 679 kr. kg —það nýja 980 krónur — sjá bis. 4 40 kindur tróðust undir og drukknuðu í Hítará Um fjörutíu kindur, mest lömb, tróðust undir og drukknuðu i Hítará á Mýrum sl. mánudag er fjársafn eftir fyrri leitardag rann yfir ána. Helgi Gíslason hreppstjóri á Tröðum i Hraunhreppi tjáði DB að er komið var með fjársafn sem í var fé svo þúsundum skipti eftir smölun i Vatns- hlið að Hitará hefði féð ruðzt út í vatnslitla ána á óheppilegum stað. Var bakkinn handan árinnar mjög hár og gekk fénu erfiðlega að komast þar upp úr ánni. í þeim troðningi varð óhappið. Um 40 kindur tróðust undir og drukknuðu við árbakkann. Féð, sem fórst var af ýmsum bæjurn, Mest, eða 12 lömo, var eign Helga á Tröðum. Sá sem næstflest átti af fénu er fórst átti 5 kindur, sumir aðeins eina. Helgi sagði að atvik sem þetta gæti alltaf skeð i leitum þegar verið væri með stórt safn i rekstri. Bændur á Mýrum væru jafnvel vanir stærri sköðum í sjó er fé væri í eyjum, úti fyrir ströndinni. Helgi kvað fé hafa verið bústið á fjalli og virtist feitt. -A.St. Sverrir Þóroddsson, Ronnie Peterson og MarioAndretti — sjá bls. 6 Lögreglan rannsakar meintbrot bygginga- meistara — sjá bls. 5

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.