Dagblaðið - 16.09.1978, Side 2

Dagblaðið - 16.09.1978, Side 2
„SKAGAMENN ERU BEZTIR” Skagamaður (7099-0695) hríngdi: „Einhver Sívert hringdi i DB 12. sept. og vældi um afrek Valsmanna í undanförnum leikjum ÍA og Vals. Þaö er rétt að mikið hefur verið skrifað um baráttu ÍA og Vals. Valur hefur vinn- ing stigalega séð, 4 stig gegn 2 stigum tA. Litum á þá sigra. Á Akranesi lék Valur 1. júlí í ís- landsmótinu. Þar mátti Valur þakka fyrir 2 st. sem þeim voru færð á silfur- bakka á siðustu mín. eftir vítaspyrnu og eina tækifæri þeirra í leiknum. Áður höfðu Skagamenn sótt látlaust allan leikinn. Yfirburðir ÍA i úrslitaleik bikar- keppninnar munu seint líða Vals- mönnum úr minni. Þá fór það ekki framhjá neinum hverjir voru beztir. Sigur Vals yfir ÍA i siðasta leik ís- landsmótsins var spegilmynd af fyrri sigri þeirra. Aftur var þeim fært mark á silfurbakka eftir vítaspyrnu. Hér er því óhætt að tala um heppni Vals- manna. Þeir sem fylgzt hafa með íþrótta- fréttum vita hvor hefur jarmað meira I fjölmiðlum. Ætli Valsmenn eigi ekki heimsmet á því sviði. Ég læt því ósvarað hvort Skaga- menn hafi áhuga á að komast með tærnar þar sem Valsmenn hafa hæl- ana. En vist er um það að hælspörk Valsmanna sjást víða á leikmönnum ÍA. Ekki hefur borið á þvi að Skaga- menn hafi kvartað yfir þvi að Vals- mönnum hafi verið hampað i fjölmiðl- um og heldur ósanngjörn skrif I garð annarra liða 1. deildar er leikið hafa við Val. Eftir árangri á knattspyrnuvelli í sumar að dæma kemur i Ijós sú stað- reynd, eftir öll heimsmet Valsmanna, að í A er með langbezta lið á íslandi í sumar. Einnig á ÍA bezta leikmann Ís- landsmótsins og mesta markaskorar- anní l.deild. Hverjireru beztir? Skagamenn. »■ Lið Akraness, bikarmeistarí 1978. DB-mynd Bjarnleifur. ORD TIL UNGRA RÁÐHERRA Pólitískt aðhald og afbrotakennsla Vísurograbb um útvarp éh / ^ S (Z 4 Jón GunnarJónsson Óvenju margir hafa hringt til mín vegna pistla minna um útvarp og sjónvarp. Flestir tóku hressilega undir þá tillögu mína að dagskrá sjónvarpsins væri stytt og samræmd betur en nú er gert útvarpsdagskránni, þannig að fólk þyrfti síður að slíta sig frá hálfnuðum dagskrárliðum. En auðvitað er ekki hægt að komast hjá því að velja og hafna. En þessi timaruglingur stafar mikið af því hve dagskrárliðir sjónvarpsins eru óhóflega langir. — Þá tóku margir undir gagn- rýni mína vegna afbrotamyndanna og illra áhrifa þeirra. Það skal tekið fram að hin síðustu ótíðindi voru ekki fram komin, þegar grein mín var rituð. Þessi hörmulegi atburður gefur einmitt sérstaka ástæðu til rannsóknar á þvi hvaða veilur það eru I okkar þjóðfélagi, sem slíkir at- burðir gætu átt rætur sínar til að rekja. Nú hafa tveir tiltölulega ungir menn tekið við æðstu embættum menhta- og dómsmála. Vonandi láta þeir hraustlega að sér kveða við endurskoðun uppeldis- og refsimálanna, koma þvi öllu í mannlegra horf en verið hefur. Þjóðin verður að gera sér grein fyrir orsökum þeirrar upplausnar og afbrotaöldu, sem yfir dynur. Það þarf aö verða breyting á skemmtanaaðstöðu ungs fólks, sem draga kynni úr brennivíns- og vímunautn- um þess, og þáttur sjónvarpsins verður að gagn- rýnast og endurskoðast. ★ Þegar rætt er um útvarp og sjónvarp verður manni hugsað til skipulagsmála þessarar stofn- unar. Hefur nokkur teljandi endurnýjun átt sér stað í þeim efnum, er ekki allt i sömu skorðum og í upphaft voru settar? Því miður hafa þarna orðið litlar breytingar í 40 ár. Allt er i sömu sporum — jafnvel sjónvarpið, sú nýlega stofn- un, er I höndum þeirra, sem frá upphaft vega hafa ráðið þessum fyrirtækjum. Á fjórum ára- tugum hafa að sjálfsögðu orðið mannaskipti, en þó finnst manni þetta alltaf vera sama liðið: al- þingismenn og ritstjórar stjórnmálablaða, enda sömu íhaldsflokkarnir sem setja svip sinn á reksturinn kjörtimabil eftir kjörtímabil. Útvarp- ið hefur ætíð átt hóp úrvalsstarfsmanna, en Ijúfir verða leiðir, eins og segir i fornum fræð- um, ef þeir sitja of lengi á annars fletjum. Ríkisútvarpið heyrir að sjálfsögðu undir Al- þingi og menntamálaráðuneytið. Það er eðlilegt um ríkisstofnun. En skipun útvarpsráðs og verk- stjórnarhlutverk þess er aftur á móti ekki eðli- legt í nútima þjóðfélagi. 1 það ráð hafa að jafn- aði verið valdir heldur aðhaldssamir og miður frjálslyndir pólitískir bitlingamenn, sem kunn- astir hafa orðið fyrir að halda varðstöðu um það, að ráðandi stjómmálaflokkar á hverjum tíma komi þar sínum sjónarmiðum á framfæri — og helst sínum gæðingum í dagskrána. — Þessu þarf að breyta. Hið pólitíska aðhald við Ríkisutvarpið á að vera mjög hóflegt. í útvarps- ráð ætti að velja góða fulltrúa lista og menn- ingarmála, og skipta um menn á nokkurra ára fresti, svo að öruggt sé að ekki setjist þar upp ei- lífir augnakallar. Aðal dagskrárstjórn á að vera í höndum fastráðinna starfsmanna, sem eru dag- skrárstjórar í réttri merkingu þess orðs, án þess að ég ætli hér að varpa rýrð á embættisheiti hins eina og sanna allsherjar dagskrárstjóra. En þessir dagskrármenn eiga að undirbúa dagskrár og hafa umsjón með þeim. Slikir menn myndu svo öðru hvoru punta upp á dagskrána, eins og Jónas Jónasson gerir og Jökull Jakobsson gerði sællar minningar. Peninga til reksturs útvarps og sjónvarps á ekki að skera við neglur, eins og gert hefur verið. Þetta eru ekki ómerkilegri stofnanir en æðri skólar landsins. Þótt flestir væru þakklátir og ánægöir með út- varpið fyrstu ár þess voru ekki alltaf allir á sama máli. Ólafur hét bóndi á Ferjubakka í Axarfirði. Hann var að þvi spurður, hvort honum fyndist ekki útvarpiö fræða hann mikið og mennta. Hann svaraði: Útvarpstaðan anda minn ekkert fitað hefur, ét þó upp i sérhvert sinn sallann, er það gefur. Á stríðsárunum var dagskrárliður i útvarp- inu,-þar sem Páll ísólfsson kom fram með þjóð- kórinn svokallaða. Nefndist þátturinn Takið undir. Eins og við vitum hefur það verið háttur dagskrárgerðarmannanna fyrr og síðar, að fella þætti niður eða breyta a.m.k. um nöfn á þeim, þegar þeim sjálfum og öðrum var farið að leiðast sömu fyrirsagnirnar í dagskránni. í ársbyrjun 1947 var komin aftökustund þessa vinsæla þátt- ar Páls ísólfssonar. Nú var liðið rúmt ár frá stríðslokum og komnir nýir timar og nýir menn. Eitt af því siðasta, sem Páll lsólfsson gerði i sambandi við þennan vinsæla rabb- og söngva- þátt sinn, var að efna til samkeppni um laga- kunnáttu fólks. Hér er ekki tími til að lýsa því nánar. En það væri verðugt verkefni fyrir tón- listarmenn og menningarfulltrúa yngri kyn- slóðarinnar að fjalla um þetta og grafa upp þau gögn, sem enn kunna að vera til. Úrslitin urðu þau, að sjö einstaklingar sköruðu fram úr öðrum og kunnu eitt þúsund eða allt að 1300 lög og texta. í Útvarpstíðindum í febrúar 1947 eru birt nokkur kveðjuorð Páls ísólfssonar. Þar segir: Þegar ég í striðsbyrjun hóf þáttinn Takið undir, vakti það fyrir mér, að varðveita þyrfti öll þjóð- leg verðmæti, þar á meðal ættjarðarljóðin. Hætta var á, að hin erlendu áhrif yrðu mjög mikil einkum á æskulýðinn. Þessvegna, og aðeins þessvegna, var þessi þáttur hafinn í útvarpinu, á þeim alvörutímum, sem þá stóðu yfir á Islandi. Mér finnst nú, að æskan og allur almenningur í landinu hafi staðið sig vel, og betur en vænta mátti. — Og þó mikið hafi verið talað um ástand í ýmsum efnum, þá hefur það síst verið betra í öðrum löndum en hér. Og mér finnst við hafa stoppið tiltölulega vel. Ég hef þá trú, að söngþátturinn okkar hafi haft heillarík áhrif, vakið marga til umhugsunar um, hvað þeir áttu dýrast, og að varðveita ætti hin þjóðlegu verðmæti. Þetta eru orð Páls isólfssonar og þau voru fleiri. Þau eru góð heimild um hugsunarhátt þessara tíma og stefnu og starf okkar bestu manna. — En þvi miður urðu eftirstríðsárin ekki sá uppskerutími, menningar- og þjóðernis- lega séð, sem vonir stóðu til. En það er önnur saga. Ónefnd kona sendi Páli þessa visu: Margar stundir mundi ég vilja meö þér vaka, mætti ég ennþá einu sinni undir taka. Páll ísólfsson sagði einhverntíma i útvarps- spjalli: Enda þótt okkur hér I útvarpinu þyki gaman að hlusta á okkur sjálfa, þá höfum við þó komist að raun um það, að háttvirtir hlustendur hafa ekki eins góðan smekk. — Útvarpstíðindi 9. des. 1940.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.