Dagblaðið - 16.09.1978, Síða 4

Dagblaðið - 16.09.1978, Síða 4
4, DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978. ................ “ GAMLA KJÖTIÐ 679 KR. KG Kjotvero jr m I - ÞAÐ NYJA 980 KRÓNUR — Til eru um 600 tonn af gamla kjötinu sem er tæplega mánaðarneyzla landsmanna —13% verðlækkun á nýju kjöti „Þá er „verðlækkunin” á hinum ýmsu matvörum orðin að raunveruleika. Söluskatturinn hefur verið afnuminn — og niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum auknar verulega. — Nú er hægt að kaupa kindaskrokk (af fyrra árs birgðum) á 679 kr. kg. Það er fáeinum kr. meira en einn sígarettupakki kostar! Lærið i matinn á morgun kostar 864 kr. kg. Hins veg- ar eru ekki til nema um 6 tonn af gamla kjötinu í landinu qg það verður varla lengi að klárast, þegar það er komið á eina allsherjar útsölu. Slátur- k tíð er hafin og kjötið af nýslátruðu er að visu á lægra verði en það gamla var, en er hærra en það verð sem nú gildir á kjöti frá 1977. — Heilir kinda- skrokkar af nýslátruðu kosta 941 kr. hvert kg, hryggir 1187 kr., og kótelettur 1314 kr. Þannig er í rauninni líkt á komið með kindakjötsverðið i landinu og verðið á gjaldeyri, tvö verð eru 1 gangi i einu! Verðlækkunin á gamla kjötinu felst > 1 þvi að söluskatturinn var afnuminn og niðurgreiðslur rikissjóðs hækkaöar verulega — ekki aðeins á kindakjöti heldur einnig á nautakjöti. Niður- greiðslurnar voru auknar um 218 kr. á hvert kg í I verðflokki kindakjöts og um 294 kg á hvert kg nautakjöts í I verðflokki. Inn 1 verðið á nýja kjötinu kemur hins vegar hækkun til bænda um 12,9% og 53% hækkun á vinnslu og dreifingarkostnaði! Þannig verður þetta sennilega með vöruverðið í framtíðinni, að það hækkar þrátt fyrir afnám söluskatts. Það felst í hinu óstöðuga gengi — i hvert skipti sem ný sending af innfluttri vöru kemur 1 verzlanir breytist verðið. Þannig verður upphæðin sem söluskatturinn nam ekki lengi að komast inn í vöruverðið aftur. Hins vegar munar vissulega um söluskattinn 1 heildarverðinu, þannig að raunverulega lækka vörurnar í verði. Við megum þó ekki vera svo einföld að ætla að við sleppum algjörlega við þennan söluskatt, einhver hlýtur að verða að borga brúsann. Vonandi verða þaö einhverjir sem hafa bolmagn til þess — daglaunamenn þurfa i það minnsta ekki að borga þennan brúsa. ■A.Bj. SLÁTURVERDIÐ KOMIÐ Ákvcöiö hefur verið verð á slátri. 1.223 kr. kg., hjörtu og nýru 812 kr. Heilslátur með sviðnum haus og 1 kg hvert kg., mör, ópakkaður, 191 kr. og af mör kostar 1.227 kr., lifur kostar sviðnlr hausar 663 kr. V OPIÐ í DAG KL.1-5 Bragagata Sérstaklega falleg 2ja herb. 45 ferm íbúö í risi. Sérhiti. Verð 6,5 m. Útb. 4,5 m. Kleppsvegur 4ra herb. 90 ferm samþykkt ibúð í kjallara ásamt her- bergi í risi. Verð 13 millj., útb. 9 m. Hvassaleiti 3—4ra herb. ibúð á 1. hæð ásamt einu herbergi í kjall- ara. Bílskúr. Verð 17 millj., útb. 11—11,5 m. Krummahólar Glæsileg 5—6 herb. íbúð á 2 hæðum, eign sem vekur athygli. Verð kr. 20 m. HÚS OG EIGNIR Fasteignasalan, Bankastrœti 6. Sími 28611. Lúðvfk Gizurarson hrl. Sigurður Tryggvason i Vörumarkaðnum sagði að ekki hefði hafzt undan að saga kjötskrokka i gær. DB-mynd: Hörður. Menn hamstra kjöt, enda vissara V0N ER Á HÆKKUN AFTUR „Það hefur verið mikið að gera hér i allan morgun. Fólk kaupir þó nokkuð miklu meira en vant er,” sagði Sigurður Tryggvason verzlunarstjóri i Vörumarkaðnum í gærmorgun. „Fólk kaupir mikið af kjöti og biður þá aðallega um heila skrokka. Við höfum hins vegar ekki haft undan að saga og þá hafa menn bara keypt annað sem tiler. Mikið er lika keypt af hveiti og sykri og þá í stórum pakkningum. t vikunni hefur verið mikið hamstur á hreinlætis- og snyrtivörum enda er von á hækkun og henni mikilli þegar næsta sending kemur. Næsta sending á öllum vörum verður dýrari og eins nýja kjötið þeg- ar það kemur. Þegar allt kemur til alls hafa vörur ekki lækkað nema um 5— 6%. Það verður fljótt að hverfa líka.” Verzlunarstjórinn í Hagkaupi i Skeifunni tók í sama streng og Sigurður með það að kjöt væri hamstrað. Aðrar vörur hefði hann hins vegar ekki orðið var við að væru hamstraðar. -DS. Verðið á nýja kjötinu Kindakjöt Verðið núna Var áður Lækkun Heilir skrokkar 941 1085 13% Hryggir H87 1358 13% Kótelettur 1314 1497 13% Heil lærí eða niðursöguð 1161 1329 13% Verðið á gamla kjötinu Kindakjöt Kostar núna Niðurgr. pr.kg Raun- verð Ef sölusk. værí nú Kostaði áður m. sölusk. Fyrri niður- greiðsl. Lækkun i heilum % Heilir skrokkar 679 581 1260 815 1085 363 38% Hryggir 886 581 1467 1063 1358 363 35% Kótelettur 993 581 '1574 1192 1497 363 34% Lærí 864 581 1445 1734 1329 363 35% Nautakjöt i 11. verðfl. Heilir og hálflr skr. 1062 400 1462 1274 1370 135,30 23% Steik (afturhl. hryggs) 2197 400 2597 2363 2847 135,30 23% Gúllas 3425 400 3825 4110 4310 135,30 21% Hakk, I. verðfl. 2192 400 2592 2630 2759 135,30 21%

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.