Dagblaðið - 16.09.1978, Page 6

Dagblaðið - 16.09.1978, Page 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1978. Atfa Romeo ekinn 3000 km, er til sölu á gamla genginu. Hugsanlegur sparnaður væntanlegs kaupanda er um 700.000 krónur miðað við nýtt verð. Skoðið bilinn f dag, það er opið til kl. 7. í Sýningahöllinni Símar 81199 og 81410. Prentari óskast! Óskum að ráða prentara til starfa á smá- verkefnavélar. Upplýsingar gefur yfirverkstjóri. Síðumúla 12. Atvinna í Haf narfirði Óskum að ráða starfskraft til vinnu frá kl. 8— 12 f.h. til símavörzlu og almennra skrifstofu- starfa.Upplýsingar kl. 1—3 á skrifstofunni. Hf. Raftækjaverksmiðjan Lækjargötu 30, Hafnarfirði. Aðalfundur skiptinemasamtakanna ICYE verður haldinn á sunnudaginn 17. sept. kl. 17:00 í Hallgríms- kirkju. Kaus'ar Danskennsla Þjóðdansafélags Reykjavíkur hefst mánudaginn 25. sept. Innritað verður í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu, laugardaginn 23. sept. kl. 2—4 og mánudaginn 25. sept. frá kl. 4. Sími 12826. Kennsla í sýningaflokki hefst 21. sept. Þjóödansafélag Reykjavíkur. Námskeið hefjast 2. október 1978 og standa tíl 20. janúar 1979. I. Taiknun og máhm fyrir böm og unglinga iS aldursflokkar). II. Teiknun og málun fyrir fullorðna. III. Bókband. IV. Litografía (steinprent) fyrir starfandi Hstamenn og fólk, sem hefur lokið námi frá dagskóla Mynd- lista- og handíðaskóla íslands. Innritun hefst 18. september á skrrfstofu skólans aö Skiphotti 1. Skótastjóri Skipholti 1 Reykjavík simi: 19821 „Ronnie frábær ökumaður” — segir Sverrir Þóroddsson fv. kappakstursmaður — mistök í upphafi keppninnar orsök slyssins og dauða sænska kappaksturskappans n Hér hefur hlífin verið tekin framan af bil Andrettis og sést þá hversu lítil vörn er fyrir bílstjórann, ef högg kemur framan á bilinn. DB-myndir Sverrir Þóroddsson. Eins og kunnugt er fórst hinn kunni sænski ( kappakstursmaður Ronnie Peterson af slysförum á ítölsku Monsa kappakstursbrautinni. Sverrir Þór- oddsson var góðkunningi Petersons og hins nýja heimsmeistara Andretti, en þeir kepptu báðir á Lotusbilum og unnu því saman. Sverrir kynntist þessum köppum, er hann stundaði sjálfur kappakstur fyrir nokkrum árum. DB hitti Sverri að máli í gær, en hann var einmitt ytra í sumar og fylgdist með þeim Andretti og Peter- son í keppni og á æfingum. Hann mjög heiðarlegur gagnvart Andretti og veitti honum ekki mikla keppni. Þessir tveir kappar voru þó stigahæstir í heimsmeistarakeppninni og oft nr. 1 og 2 í keppnum. Andretti varð síðan heimsmeistari í keppninni sem Peter- son fórst í. Sverrir Þóroddsson sagði að italska Monsabrautin væri gerð fyrir mikinn hraða. Til þess að draga nokkuð úr hraðanum á henni var nýlega gerður veggur á brautinni er myndaði nokkurs konar trekt fyrir eina beygjuna. Bílarnir þurftu mjög að hægja á sér vegna þessa. Er keppnin hefst er fyrsti hringurinn ekinn á hægri ferð og síðan á að stöðva og ekki halda af stað fyrr en grænt Ijós er gefið. Það sem gerðist hins vegar nú, var að öftustu bílamir stönzuðu ekki er Ijósið var gefið og voru enn á 90— 100 km hraða. Þeir náðu þvi fljótt fremstu bílunum og allt fór í eina bendu. Þegar að hindruninni kom lentu einir 10 bílar i árekstri. Allir reyndu að troða sér. Ronnie lenti á grindverkinu og síðan keyrði annar bill á hann og það kviknaði í bíl Svíans. Bretinn James Hunt sýndi mikið snarræði er hann bjargaði hon- um úr brennandi bilnum. Að sögn Sverris er ákaflega lítil vörn fyrir bilstjórann framan á kappakstursbílunum. Vélin er fyrir aftan bílstjórann, og þeir eru með fæturna alveg fram í fremsta hluta bílsins. Ronnie slasaðist mikið á fótum, en var þó ekki talinn i lífs- hættu. Læknar framkvæmdu siðan mikla skurðaðgerð á Svíanum til þess að reyna að bjarga fótum hans en hann lézt á skurðborðinu. Sverrir sagði aö bilarnir á ítölsku Monsabrautinni ækju mjög þétt saman, þar sem hraðinn væri mjög mikill og fyrsti bíllinn klyfi loftið og hinir fylgdu þétt á eftir í kjalsoginu. Italirnir voru að reyna að koma í veg fyrir þetta með því að girða brautina að hluta og minnka þannig hraðann. -JH. sagði að Peterson hefði verið frábær ökumaður og oft jafnvel ekið hraðar en Andretti. En veikti punkturinn við Ronnie var sá að sögn Sverris að hann gat ekki fengið það bezta út úr hverjum bil, ekki „testað” hann nóg fyrir keppni. Á þessu sviði er Andretti snillingur. Er Ronnie kom til Lotus var Andretti mjög óánægður með það, þar sem hann taldi óheppilegt að tveir toppbílstjórar kepptu fyrir sama fyrir- tækið. Hins vegar mun sá samningur hafa verið gerður, að fyrirtækið myndi fremur styðja hann til þess að verða heimsmeistari og mátti Ronnie ekki sigra hann í keppni. En Andretti sigraði oftast á þessu keppnistímabili ef bíll hans bilaði ekki. Ronnie var Hinn nýi heimsmeistari Andretti við Ferrari sportbíl sinn. „Við hér erum bara undirsátar »» — sagði forstjórí Grænmetisverzl- unarinnar og býst við að taka við kartöflum af hverjum sem er Eftir þeim svörum sem Dagblaðið fékk í gær frá forstjóra Grænmetis- verzlunar landbúnaðarins ættu allir kartöfluframleiðendur að geta lagt inn sinar kartöflur hjá stofnuninni. Má við þvi búast að"ýmsir séu nú aflögufærir um kartöflur þar sem uppskera er góð um land allt. „Þetta hefur aldrei verið takmarkað, hverju hér væri tekið á móti," sagði Jóhann Jónsson forstjóri. „Annars veit ég ekkert um þetta. Það hefur ekki verið háldinn stjórnarfundur Grænmetis- verzlunarinnar og við höfum ekkert heyrt frá Framleiðsluráði land- búnaðarins um þetta. Við hér erum bara undirsátar.” DB spurði Svein Tryggvason hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins hvort Grænmetisverzlunin mætti taka við kartöflum frá hverjum sem væri. Sveinn sagði að sú regla gilti að fastir ræktendur kartaflna gengju fyrir, svo sem bændur í Þykkvabæ, en einnig hefði verið keypt aföðrum. Hann kvaðst annars ekki vilja tjá sig um þetta mál og visaði á Grænmetis- verzlunina. Þar með lokaðist hringurinn. -ASt/GM.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.